Bæjarráð, fundur nr. 406
Dags. 11.4.2006
406. fundur
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund þriðjudaginn 11. apríl 2006 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru:
Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður
Rúnar Gíslason,
Guðmundur Kristinsson, varamaður
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Formaður setti fund og fól síðan bæjarstjóra fundarstjórnun.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Ljósmyndasafn Stykkishólms, dags. 5.4.2006.
Fundargerð og gjaldskrá framlagðar og samþykktar. Bæjarstjóra falið að svara erindi nefndarinnar.
1.2. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 10.4.2006.
Fundargerð framlögð liðir 1-10 og 11 b. samþykktir og fundargerð samþykkt.
1.3. Jafnréttisnefnd Stykkishólmsbæjar, dags. 21.11.03., 20.1.05., 27.3.06. og 10.4.06.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar. Jafnréttisáætlun Stykkishólmsbæjar samþykkt.
1.4. Stefnumörkun í málefnum aldraðra, dags. 17.1., 24.1., 16.3., 21.3., 29.3., 3.4.06.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.
2. Aðrar fundargerðir.
2.1. Safnanefnd Byggðasafns Snæfellinga, dags. 4.4.2006.
Fundargerð framlögð.
2.2. Aðalfundur Eflingar Stykkishólms, dags. 1.4.2006.
Fundargerð framlögð. Það eru tilmæli frá aðalfundinum að bæjarstjórn láti kanna eftir réttum leiðum hvort varðveita beri gamla veginn yfir Kellingaskarð. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið.
2.3. Fundur fulltrúa Framkvæmdaráðs Snæfellsnes með fulltrúum
Stykkishólmsbæjar, dags. 4.4.2006 ásamt samantekt vegna Green Globe 21 úttektar á Snæfellsnesi 11.-14. mars 2006.
Fundargerð og greinargerð framlögð.
4. Erindi HEFST frá bæjarráðsfundi nr. 405.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
“Bæjarráð Stykkishólms samþykkir styrkumsókn HEFST dags. 6. apríl 2006 til að byggja reiðskemmu á svæði félagsins við Fákaborg. Styrkurinn nemi allt að 15 millj. kr. að gatnagerðagjöldum inniföldum.
Skilyrði styrkveitingar Stykkishólmsbæjar eru:
- Þinglýstur eigandi hússins verði HEFST.
- Styrkur að upphæð 10 millj. kr. fáist frá úthlutunarnefnd Landbúnaðarráðuneytisins um byggingu reiðhúsa.
- Aðrar fjármögnunarleiðir sem HEFST tilgreinir í umsókninni að upphæð 5 millj. kr. gangi eftir.
- Styrkgreiðslur af hálfu Stykkishólmsbæjar hefjast árið 2007 og dreifast jafnt á 5 ár.”
Elísabet Lára Björgvinsdóttir
Rúnar Gíslason
Samþykkt samhljóða. Erindi HETST varðandi árlegan rekstrarstyrk sem nemi a.m.k. árlegum fasteignagjöldum af húsinu, er vísað til samþykktar bæjarráðs frá 12. janúar s.l.
5. Lóðinni að Hjallatanga 4 sagt lausri.
Uppsögn lóðar lögð fram.
6. Lóðarumsóknir.
6.1. Þórarinn Sighvatsson f.h. Sumarbústaða ehf. sækir um lóðir að Hjallatanga 4 og 12.
Samþykkt að veita Sumarbústöðum ehf. lóðirnar að Hjallatanga 4 og 12.
7. Bæjastjóri gerði grein fyrir stöðu samningagerðar um Vatnasafn í Stykkishólmi.
8. Mat á landi við Borg í Stykkishólmi.
Bæjarráð samþykkir að Ingi Tryggvason lögfræðingur úr Borgarnesi meti landið.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.18:46
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka