Bæjarráð, fundur nr. 407
Dags. 11.5.2006
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 11. maí 2006 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður
Rúnar Gíslason,
Davíð Sveinsson,
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Formaður setti fund og fól síðan bæjarstjóra fundarstjórnun.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Skipulags- og bygginganefnd, dags. 9.5.2006.
Fundargerð framlögð liðir 1,3,5,6,7,8,14 og 15
samþykktir og fundargerð samþykkt.
1.2. Safnanefnd, dags. 27.4. og 9.5.2006.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.
2. Aðrar fundargerðir.
Fundargerð Breiðafjarðarnefndar, dags. 13.3.2006.
Fundargerð framlögð.
3. Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands vegna
ársins 2005. Ársreikningur framlagður.
4. Lóðarumsóknir.
4.1. Íslandspóstur sækir um lóð 1 á deiliskipulagi að
verslunar- og þjónustusvæði við Aðalgötu.
Umsókn vísað til bæjarstjórnarfundar.
4.2. Orkan sækir um lóð við Aðalgötu.
Lóðarumsókn samþykkt.
4.3. Helgi Eiríksson sækir um lóð við Borgarflöt.
Þessi lóð er ekki á skipulagi og umsókn því hafnað.
4.4. Þorgrímur Kristinsson sækir um lóð 2 og 3 á
deiliskipulagi að verslunar- og þjónustusvæði við Aðalgötu.
Umsókn vísað til bæjarstjórnarfundar.
5. Bréf frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga,
dags. 12.4.2006. (Trúnaðarmál).
Erindi samþykkt.
6. Bréf frá Ungmennafélagi Íslands varðandi samstarf um
æskulýðs- og íþróttamál, dags. 5.4.2006.
Jákvætt tekið í erindið og bæjarstjóra falið að ræða við
forsvarsmenn Ungmennafélags Íslands.
7. Erindi frá Siglingaklúbbi Snæfells, dags. 24.4.2006.
Bæjarráð fagnar stofnun siglingakúbbsins, tekið er
jákvætt í staðsettningu og óskað er eftir frekari
upplýsingum og tillöguteikningum frá stjórn Siglingaklúbb
Snæfells.
8. Tilkynning um vaxtabreytingu frá Lánasjóði Sveitarfélaga,
dags.5.4.2006. Framlagt.
9. Bréf frá Samgönguráðuneytinu, varðandi varðveislu
vegarins yfir Kerlingarskarð, dags. 25.4.2006.
Bréf framlagt.
10. Ný tilnefning í stýrihóp vegna Grunnskóla og
Tónlistarskóla. Katrín Gísladóttir er tilnefnd í stýrihópinn,
þar sem Alda Pálsdóttir segir af sér vegna fluttnings.
11. Lögreglusamþykkt.
Drög að lögreglusamþykkt fyrir Stykkishólmsbæ framlögð
og vísað til samþykktar í bæjarstjórn.
12. Samningar vegna Vatnasafns.
Drög að samningum vegna Vatnasafns framlagðir.
13. Samstarfssamningur við Eflingu.
Framlagður.
14. Samningur við Golfklúbbinn Mostra um rekstur
tjaldsvæðisins í Stykkishólmi. Samningur framlagður.
15. Kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar 27. maí 2006.
Kjörskrá framlögð.
16. Elísabet gerði grein fyrirhuguðum fundi í skólanefnd
Tónlistaskóla Stykkishólms, þar sem gjaldskrá fyrir
næsta skólaár verður tekin fyrir.
17. Elísabet leggur til að drög að stefna Stykkishólmsbæjar
í málefnum aldraðra verði lögð fyrir næsta
bæjarstjórnarfund og kynnt stjórn Aftanskinn fyrir
næsta fund.
18. Davíð lagði fram fyrirspurn um hvort hagstætt væri
að bjóða út tölvuþjónustu bæjarins.
19. Davíð leggur til að Stykkishólmsbær sjái um að
skipuleggja og auglýsa viðtalstíma bæjarfulltrúa.
Tillaga samþykkt.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.19:14
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka