Bæjarráð, fundur nr. 408
Dags. 22.6.2006
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 22. júní 2006 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður
Gretar D. Pálsson,
Lárus Á. Hannesson,
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Gretar setti fund.
1. Kosning formanns og varaformanns.
Gretar stakk upp á Elísabetu L. Björgvinsdóttur sem formann bæjarráðs og var hún kosin samhljóða. Formaður tók við fundarstjórn. Elísabet stakk upp á Gretari sem varaformann bæjarráðs og var hann kosin samhljóða og fól síðan bæjarstjóra fundarstjórnun.
2. Fundargerðir nefnda.
2.1. Fræðslunefnd, dags. 22.5.2006.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.2. Hafnarnefnd, dags. 19.5.2006.
Fundargerð framlögð. Liður 1 gjaldskrá Stykkishólmshafnar samþykktur og fundargerð samþykkt.
2.3 Skipulags- og bygginganefnd, dags. 21.6.2006.
Fundargerð framlögð. Liðir 1-10 og 13-15 samþykktir, ásamt lið 16b lóð er við Hjallatanga 20 samþykktur og fundargerð samþykkt. Samþykkt að fela skipulags- og bygginganefnd að búa til reglur varðandi stærð, staðsetningu og umhirðu skilta í landi Stykkishólmsbæjar.
2.4. Skólanefnd Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 15.5.2006.
Fundargerð framlögð liður 2 samþykktur og fundargerð samþykkt.
2.5. Stjórn Ljósmyndasafns Stykkishólms, dags. 30.5.2006.
Fundargerð framlögð og samþykkt. Bæjarráð tekur undir þakkir til Sigurlínu og Birnu fyrir vel unnin störf.
2.6. Stýrihópur um stækkun grunnskóla og tónlistarskóla, dags. 2.5., 11.5., 17.5. og 19.6.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar, samþykkt að bæjarstjóra verið falið að semja við Önnu Krístínu Sigurðardóttir sem sérfræðiráðgjafa við verkefnið.
3. Aðrar fundargerðir.
3.1. 34. fundur stjórnar Sorpurðunar Vesturlands, dags. 8.6.2006.
Fundargerð framlögð.
4. Umsókn um leyfi til áfengisveitinga.
4.1. Ríkharður Hrafnkelsson f.h. Golfklúbbsins Mostra, endurnýjun eldra leyfis.
Samþykkt með tveimur atkvæðum að endurnýja leyfi Golfklúbbsins Mostra til áfengisveitinga. Lárus greiddi atkvæði á móti, þar sem þetta sæmræmis ekki forvarnastenu Stykkishólmsbæjar.
4.2. Sigurjón Sigurðsson f.h. Hótel Breiðafjarðar-endurnýjun eldra leyfis.
Samþykkt samhljóða að endurnýja leyfi Hótel Breiðafjarðar til áfengisveitinga.
5. Ársreikningur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga 2005-sent í tölvupósti.
Framlagt.
6. Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands -sent í tölvupósti.
Framlagt.
7. Lóðaumsóknir:
7.1. Pálmi Ólafsson sækir um lóð við Hjallatanga 13 og til vara Hjallatanga 15.
Samþykkt að veita Pálma Ólafssyni lóðina við Hjallatanga 13
7.2. Sumarbústaðir ehf. sækja um lóð við Hjallatanga 20.
Samþykkt að veita Sumarbústöðum ehf. lóðina við Hjallatanga 20
7.3. Sumarbústaðir ehf.skila inn lóð við Hjallatanga 4
Sumarbústaðir ehf. drógu erindið til baka fyrir fund.
8. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
8.1. 40.000.000 kr. með 4,4% vöxtum til 10 ára.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 40.000.000 kr. með 4,4% vöxtum til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að fjármagna byggingu leikskóla í Stykkishólmi, sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.
Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
8.2. 50.000.000 kr. með 4,65% vöxtum til 16 ára.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 50.000.000 kr. með 4,65% vöxtum til 16 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að fjármagna byggingu leikskóla í Stykkishólmi, sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.
Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
9. Endurskoðun lögreglusamþykktar-lögreglusamþykkt send í tölvupósti.
Framlögð og vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
10.Endurskoðun bæjarmálasamþykktar-bæjarmálasamþykkt send í tölvupósti.
Framlögð og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
11.Endurskoðun erindisbréfa:
a) Bæjarráð
Framlagt og samþykkt.
b) Æskulýðs- og íþróttanefnd
Framlagt og samþykkt.
c) Atvinnumálanefnd
Framlagt og samþykkt.
d) Skipulags- og byggingarnefnd
Framlagt og samþykkt.
e) Fræðslunefnd
Framlagt og samþykkt.
f) Húsnæðisnefnd
Framlagt og samþykkt.
g) Skólanefnd tónlistarskólans
Framlagt og samþykkt.
h) Safna- og menningarmálanefnd
Framlagt og samþykkt.
i) Hafnarstjórn
Framlagt og samþykkt.
12.Erindisbréf stýrihóps um myndun framtíðarsýnar fyrir Stykkishólmshöfn.
Framlagt og samþykkt.
13.Erindi frá Hvítasunnukirkjunni vegna niðurfellingar fasteignagjalda.
Samþykkt að veita Hvítasunnukirkjunni styrk að upphæð kr.79.044 vegna fasteignagjalda. Hvítasunnukirkjunni er bent á Orkuveitu Reykjavíkur varðandi niðurfellingu á vatnsgjaldi.
14.Erindi frá Gunnhildi Gunnarsdóttur um fjárstuðning í U-16 landslið Íslands í körfuknattleik.
Samþykkt að veita Gunnhildi Gunnarsdóttur styrk að upphæð kr. 20.000.
15.Erindi frá aðstandendum listahátíðar um fjárstuðning vegna listahátíðar ungs fólks á Snæfellsnesi.
Samþykkt að veita aðstandendum listhátíðar ungs fólks á Snæfellsnesi styrk að upphæð kr. 100.000, að því gefnu að listasmiðjur verði í Stykkishólmi og afrakstur smiðjanna verði sýndur á Dönskum dögum sé þess óskað.
16.Erindi frá Körfuknattleikssambandi Íslands vegna stuðnings við Egil Egilsson í æfingabúðir fyrir yfirburða unglinga í körfuknattleik.
Samþykkt að Egill Egilsson hljóti laun sem nemur einu stöðugildi við Vinnuskóla Stykkishólmsbæjar frá 12.6 til 4.8. 2006, á meðan hann dvelur í æfingabúðum KKÍ.
17.Endurskoðun gjaldskrár vinnuskólans vegna sláttar og hirðingar lóða, klippingu og snyrtingu á trjám.
Hækkun og breytingar á gjaldskrá samþykktar.
18.Bréf frá Sæferðum ehf., dags. 4. júní 2006 vegna hafnaraðstöðu fyrir nýja ferju.
Framlagt og vísað til hafnarstjórnar.
19.Bréf frá Bændasamtökum Íslands, mótt. 19.6.06 um samskipti sveitastjórna við búnaðarfélögin.
Framlagt.
20.Umsóknir um starf afgreiðslugjaldkera.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umsóknum. Bæjarstjóra falið að ganga frá að ráða í starf afgreiðslugjaldkera.
21. Erindi Siglingaklúbbs Snæfells, dags. 20.6.2006.
Erindi framlagt og rætt, styrkbeiðni vísað til bæjarstjórnar.
22.Samningur við Sæferðir ehf. um rekstur upplýsingamiðstöðvar.
Framlagður.
23. Innköllun á lóðum samkvæmt “eins árs reglunni”.
16. júní 2005 samþykkti bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar að lóðir féllu til baka til bæjarins ef lóðarhafi hafði ekki hafið framkvæmdir innan eins árs.
Eftirtaldar lóðir eru innkallaðar á grundvelli þessarar samþykktar:
12.09.2001- Hjallatagi 2- Berglín, Baldur Bergmann
29.10. 2003- Reitur H við- Þverveg Þ.B. Borg
20.01. 2005 – Reitarvegur 6a- Erlar Kristjánsson
24. Háskólasetur/ fræðimannaíbúð.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu og honum falið að koma með tillögu að húsaleigu.
25. Ljósmyndasafn Stykkishólms.
Samþykkt að fela safna- og menningarmálanefnd að gera drög að samþykktum fyrir Ljósmyndasafn Stykkishólms og nefndin leiti umsagnar framkvæmdanefndar um gjöf Jóhanns Rafnssonar.
26. Tillaga frá Gretari varðandi fundargerðir nefnda.
Samþykkt að birta fundargerðir nefnda á heimasíðu Stykkishólmsbæjar eins fljótt og auðið er eftir fund.
27. Tillaga frá Gretari varðandi reglur um ráðningar sarfsmanna hjá Stykkishólmsbæ.
Samþykkt að samdar verði reglur um ráðningar starfsmanna hjá Stykkishólmsbæ.
28. Lárus kom með fyrirspurn hvert ráðningarhlutfall bókara sé.
29. Gretar kom með hugmynd um mögulega sölu á Garðaflöt 1 til 3a.
Samþykkt að skoða mögulega sölu á Garðaflöt 1 til 3a. Lárus sat hjá.
30. Gretar vekur athygli á uppkeyrslu og plani fyrir framan Stykkishólmskirkju á Borginni.
Samþykkt að kanna möguleika aðkomu bæjarfélagsins til að flýta fyrir frágangi fyrir framan kirkjuna.
31. Tillaga frá Lárus að kannað yrði kosti þess að malbika gangstétttir.
Samþykkt.
32. Lárus kom með fyrirspurn um þjónustu bókasafnsins við vistmenn Dvalarheimilis í Stykkishólmi og lagði áherslu á að þjónusta yrði áfram eins og verið hefur.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.21:32
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka