Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 409

Dags. 22.7.2006

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 22. júlí 2006 kl. 17.00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:       Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                        Gretar D. Pálsson

                        Lárus Á. Hannesson

                        Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                        Íris Huld Sigurbjörnsdóttir, fundarritari

 

Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1.   Fundargerðir nefnda.

1.1.       Hafnarstjórn, dags. 10.7.2006.

Fundargerð framlögð. Liður 3 varðandi erindi Sæferða vegna akstursbrúar Baldurs samþykktur. Liður 4 varðandi áætlun á farþegafjölda samþykktur. Liður 6 breyting á 12. grein gjaldskrár Stykkishólmshafnar þ.a. ferjur greiði eftir umfangi sorps skv. taxta þess aðila sem Stykkishólmsbær hefur samning við um sorphirðu á hverjum tíma samþykktur. Fundargerðin í heild samþykkt.

      1.2.       Safna- og menningarmálanefnd, dags. 28.6.2006.

                   Fundargerðin framlögð og samþykkt.

      1.3.       Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 18.7.2006.

Fundargerð framlögð. Liður 1 varðandi leyfi til byggingar á einbýlishúsi við Hjallatanga 20 samþykktur. Liður 4 varðandi breytingu á innkeyrslu að húsi við Tjarnarási nr. 1. Afgreiðsla nefndarinnar að heimila ekki innkeyrslu frá Búðarnesvegi samþykkt. Fundargerðin í heild samþykkt.

      1.4.       Þjónustuhópur aldraðra, dags. 13.7. og 20.7.2006.

Fundargerðir framlagðar og samþykktar. Samþykkt að úthluta Magnúsi Sigurðssyni kt. 010536-3919 þjónustuíbúðinni sem um ræðir.

 

2.   Aðrar fundargerðir.

      2.1. 68. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 24.4.2006.

      2.2. 57. og 58. fundur Félagsmálanefndar Snæfellinga, dags. 21.3. og 16.5.2006.

      2.3. Framhaldsaðalfundur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, dags.

             21.6.2006.

             Fundargerðir framlagðar.

 

3.   Lóðaumsóknir.

      3.1. Lára Gunnarsdóttir og Ólafur K. Ólafsson sækja um lóð að

             Hjallatanga 9.

             Samþykkt að veita Láru og Ólafi lóðina að Hjallatanga 9. 

             Staðfestingargjald kr. 20.000.

      3.2. Guðmundur Þór Guðþórsson sækir um lóð að Hjallatanga 26.

             Samþykkt að veita Guðmundi lóðina að Hjallatanga 26.

             Staðfestingargjald kr. 20.000.

      3.3. Páll Aðalsteinsson sækir um lóð að Hjallatanga 2.

             Samþykkt að veita Páli lóðina að Hjallatanga 2.

             Staðfestingargjald kr. 20.000.

4.   Tilnefningar í stjórnir:

      a)          Náttúrustofa Vesturlands.

Samþykkt að tilnefna  Gretar D. Pálsson, Katrínu

Pálsdóttur og Hilmar Hallvarðsson.

      b)         Stjórn Dvalarheimilis aldraðra.

Samþykkt að tilnefna Róbert Jörgensen, Katrínu

Gísladóttur og Guðbjörgu Egilsdóttur. Til vara Elísabetu

L. Björgvinsdóttur, Katrínu Pálsdóttur og Birnu

Pétursdóttur.

      c)          Stjórn FSH.

Samþykkt að tilnefna Gretar D. Pálsson, Erla

Friðriksdóttir og Lárus Á. Hannesson. Til vara Elísabet L.

Björgvinsdóttir, Ólafur Guðmundsson og Berglind

Axelsdóttir.

 

5.   Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 14.6.2006, varðandi landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 27.-29.9.2006 á

      Akureyri.

      Framlagt.

 

6.   Fundarboð aðalfundar SSV 15. september nk. í Grundarfirði.

      Dagskrá og nánari tilhögun mun liggja fyrir um miðjan ágúst.

 

7.  Reglur um fjárhagsaðstoð frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.

     Reglurnar framlagðar og samþykktar.

 

8.  Bréf Kennarasambands Íslands, dags. 27.6.2006, varðandi greiðslur í námsleyfi kennara.

      Framlagt.

 

9.  Bréf framkvæmdanefndar Ljósmyndasafns Stykkishólms, dags. 5.7.2006.

      Framlagt. Tillaga kom fram um að skipa bæjarstjóra sem fulltrúa í framkvæmdanefnd Ljósmyndasafns Stykkishólms í stað

      forstöðumanns bókasafns. Tillagan samþykkt samhljóða.

 

10. Garðaflöt 1-3a, frá bæjarráðsfundi nr. 408, dags. 22.6. sl.

      Samþykkt að taka saman rekstraryfirlit yfir þessar íbúðir ásamt áætlun um viðhalds- og endurbótakostnað.

 

11. Erindi UMFÍ frá bæjarráðsfundi nr. 407, dags. 11.5. sl.

      Samþykkt að fara í viðræður við UMFÍ.

 

12. Bréf framkvæmdastjóra Danskra daga 2006, dags. 18.7.2006.

      Samþykkt að Dönsku daga nefndin verði umsagnaraðili um leyfi til dansleikjahalds á Dönskum dögum.

 

13. Erindi Gunnhildar Gunnarsdóttur vegna Evrópumóts 16 ára og yngri í körfuknattleik.

      Samþykkt að veita Gunnhildi Gunnarsdóttur styrk að fjárhæð kr. 20.000.

 

14. Erindi Skipavíkur ehf., dags. 17.7.2006., varðandi íbúðabyggð í 

      Víkurhverfi.

Samþykkt að ljúka deiliskipulagsvinnu áður en gengið verður til samninga um hluta af íbúðabyggð í Víkurhverfi. Hverfinu verði áfangaskipt og lögð áhersla á að flýta deiliskipulagsvinnu eins og unnt er.

 

15. Erindi Skipavíkur ehf., dags. 17.7.2006., varðandi verslun 

      Skipavíkur.

Samþykkt að fara í viðræður við Skipavík ehf.

 

16.  Bréf undirbúningsnefndar listahátíðar unga fólksins, dags.

      18.7.2006.

      Framlagt.

 

17.  Kostnaðaráætlun frá Landslagi ehf. varðandi yfirborðsfrágang

      miðbæjar.

      Samþykkt að vinna kostnaðaráætlun á undirvinnu og lögnum.

 

18.  Gretar ræddi flutning á Aðalgötu 19 (Jaðri) og lagði til að farið yrði

      í flutning á húsinu og

      Aðalgata 17-19 skipulögð fyrir þjónustuíbúðir fyrir aldraða.

Samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til samninga um flutning á Aðalgötu 19.

 

19. Gretar lagði til að deiliskipulagsvinna við Borgina verði fullunnin og landspildan við Borg verði innkölluð og nýtt lóðabréf unnið fyrir Skúlagötu 21.

Samþykkt samhljóða.

 

20. Gretar lagði til að gamla slökkvistöðin við Aðalgötu 6a verði rifin.

      Samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 19.43.

Íris Huld Sigurbjörnsdóttir, fundarritari.

 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré