Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 410

Dags. 10.8.2006

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 10. ágúst 2006 kl. 17.00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:       Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                        Gretar D. Pálsson

                        Lárus Á. Hannesson

                        Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                        Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1.   Fundargerðir nefnda.

1.1.            Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 18.7.2006.

Fundargerð framlögð.

Liður 1 varðandi leyfi til að byggja við Austurgötu 5 samþykktur.

Liður 2 deiliskipulag Víkurhverfis. Lárus kom með tillögu að gert verði ráð fyrir leiksvæði á flatlendi í hverfinu.

Liður 4 varðandi niðurrif á Aðalgötu 6a (gamla slökkvistöðin) í eigu Stykkishólmsbæjar, erindi samþykkt.

Liður 5 afturköllun á byggingaleyfi við Reitarveg nr. 4 frá Daða Heiðari Sigurþórssyni og Hjálmdísi Berglindi Bergmannsdóttur, erindi samþykkt.

Liður 6 varðandi umsókn um leyfi frá Hólmgeiri S. Þórsteinssyni um byggingu stiga frá svölum niður á sólpall og geymslu undir svölum ásamt sólpalli og skjólgirðingu við Aðalgötu 14, erindi samþykkt.

Liður 7 Fyrirspurn frá Skipavík ehf./Sævari Harðarsyni um að byggja 6 íbúða raðhús við Laufásveg  33-43 sbr. teikningu dags. 20.06.06. Fyrirspurn er í samræmi við gildandi skipulag.

 

Bókun nefndar: Nefndin leggur til að gildandi deiliskipulag af miðbæ verði endurskoðað vegna mikils umferðarþunga og bílastæðavanda sem skapast hefur við núverandi nýtingu hússins við Laufásveg nr. 21-31, sem mun aukast við byggingu húss nr. 33-43. Athugað verði með aðkomu að húsunum Borgarbrautarmegin.

 

            Bókun samþykkt og fundargerðin í heild samþykkt.

 

2.   Ársreikningur FSH ehf. fyrir árið 2005 og fundargerð aðalfundar FSH ehf. 2006.

      Ársreikningur lagður fram. Fundargerð aðalfundar FSH ehf.

Fundargerð lögð fram.

Liðir 1.       Kosning stjórnar og endurskoðenda félagsins.

Erla Friðriksdóttir, Gretar D. Pálsson og Lárus Á. Hannesson voru kjörin í stjórn félagsins og var Gretar D. Pálsson kosinn stjórnarformaður. Reynir Ragnarsson var kjörin endurskoðandi félagsins.  

Liður 3 Ársreikningur lagður fram.

Stjórnarformaður gerði grein fyrir ársreikningi, þar kom fram að rekstrartap ársins var 5,1 milljónir kr. Eignir félagsins voru 72,3 milljónir, eigið fé neikvatt um 15,4 milljónir, langtímaskuldir 77,6 milljónir kr. og skammtímaskuldir 10,1 milljónir kr. Ársreikningur var samþykktur.     

Liður 4 ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar eða taps ársins.Tap ársins er fært yfir á óráðstafað eigið fé félagsins.

Liður 5 greiðslur til stjórnarmanna og endurskoðenda félagsins. Ákveðið að hafa greiðslur óbreittar frá fyrra ári.

Liður 6 önnur mál, fram kom tillaga um hækkun húsaleigu um 10% frá 1. september 2006 og að húsaleiga hækki miðað við hækkun neysluvísitölu fjórum sinnum á ári, næst hækkar húsaleiga 1. janúar 2007. Tillögur samþykktar.

Bæjarstjóra falið að skrifa bréf til leigutaka til útskyringar á hækkun        húsaleigu.Fundargerð samþykkt að öðru leyti.

 

3.   Lóðaumsóknir.

      3.1. Edda Baldursdóttir sækir um lóð að Reitarvegi 6a.

Samþykkt að veita Eddu Baldursdóttur lóðina að Reitarvegi 6a. Staðfestingargjald kr. 20.000.

      3.2. Heimir Laxdal Jóhannsson sækir um lóð við Hafnargötu-lóð C skv. deiliskipulagi.

      Umsókn Heimis Laxdal hafnað þar sem loðin er ekki til úthlutunnar samanber ákvörðun bæjarstjórnar á fundi þann 26. maí 2005, að úthluta ekki lóðum í miðbæ Stykkishólms þar til annað er ákveðið.

      3.3. Beiðni Sigurjóns Jónssonar um framkvæmdafrest vegna Hjallatanga 32.

      Samþykkt að veita Sigurjóni framkvæmdafrest í  6 mánuði vegna Hjallatanga 32.

4.   Tilboð í búnað vegna leikskóla við Búðarnesveg.

      Tilboð framlögð, Elísabet gerði grein fyrir tilboðunum. Samþykkt að ganga að tilboði Pennans í lausan húsbúnað í starfsmannaaðtöðu að upphæð kr. 985.000. Elísabet sat hjá, þar sem hún er starfsmaður leikskólans.

5.   Bréf Félagsmálaráðuneytisins, dags. 18.7.2006, varðandi beiðni um upplýsingar um málefni innflytjenda hjá einstökum sveitarfélögum.

      Bréf Félagsmálaráðuneytis framlagt og bæjarstjóra falið að svara spurningum sem framkoma í bréfinu varðandi málefni innflytjenda.

6.   Erindi Sæferða ehf., dags. 3.8.2006, varðandi umsókn um leyfi til að halda dansleik á Dönskum dögum 2006 og umsókn um veitingaleyfi í tengslum við dansleikinn ásamt umsögnum framkvæmdastjóra Danskra daga og tölvupósti frá sýslumanni Snæfellinga.

      Erindi hafnað á grundvelli fyrirliggjandi umsagna. Samkvæmt bréfi framkvæmdastjóra Danskra daga samræmis það ekki hugmyndum þeim sem unnið hefur verið eftir við undirbúning hátíðarinnar að halda stórdansleik með tilheyrandi vínveitingum og samkvæmt ábendingu sýslumanns, að skv. 2. mgr. 16. gr. Áfengislaga nr. 75/1998 er einungis heimilt að veita leyfi til áfengisveitinga um borð í skipum í skipulögðum hópferðum. Lárus sat hjá vegna tengsla við Sæferðir ehf.

7.   Garðaflöt 1-3a rekstraryfirlit og áætlun um viðhalds- og endurbótakostnað.

      Bæjarritari gerði grein fyrir málinu. Ákvörðun um mögulega sölu á Garðaflöt 1-3a er vísað til næsta bæjarstjórnarfundar.

8.   Sex mánaða uppgjör Stykkishólmsbæjar 2006.

      Bæjarritari gerði grein fyrir 6 mánaða uppgjörinu.

9.   Tillaga frá Lárusi að flokkstjórar áhaldahúss og byggingafulltrúi fylgist með skemmdum er verða á gangstéttum og sjái um að tjónvaldur greiði tjónið.

      Samþykkt samhljóða.

10.Tillaga frá Lárusi að fundi bæjarstjórnar verði hljóðvarpað á netinu.

      Samþykkt að bæjarstjóri kanni kostnað við hljóðvarp á netinu.

11.Fyrirspurn frá Lárusi varðandi að á fundi safna- og menningarmálanefndar 12. júlí 2006 var samþykkt að ræða við fyrrverandi forstöðumann Amtbókasafns Stykkishólms, Sigurlínu Sigurbjörnsdóttur, um að taka að sér forstöðu safnsins að nýju. Hvað kom út úr þeim viðræðum?

     

 

 

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 19:40

Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré