Bæjarráð, fundur nr. 411
Dags. 7.9.2006
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 7. september 2006
kl. 17.00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður
Gretar D. Pálsson
Lárus Á. Hannesson
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Húsnæðisnefnd, dags. 28.8.2006.
Fundagerð framlögð liður 1 varðar leiguíbúð að Garðaflöt 1a samþykkt að úthluta Unnari Valby Gunnarssyni og til vara Guðrúnu Svönu Pétursdóttur, og fundargerð samþykkt.
1.2. Safna- og menningarmálanefnd, dags. 6.9.2006.
Fundargerð framlögð og samþykkt. Bæjarráð tekur undir þakkir safna- og menningarnefndar til fyrrverandi nefndar og sýningarhönnuðar, enda er sýningin einstaklega góð og vel að henni staðið í alla staði.
1.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 5.9.2006.
Fundargerð framlögð, liður 1 varðar deiliskipulagstillögur af parhúsabyggð í Móholti við Búðanesveg og Hjallatanga frá teiknistofu Glámu Kím dags. 28.08. 2006. Samþykkt að unnið verði áfram með tillögu nr. 4.
Liður 3 varðar reglur um skilti í Stykkishólmsbæ. Vísað af bæjarráði til skipulags- og byggingarnefndar þ. 22.júní s.l. Samþykkt að öll auglýsingaskilti við þjóðveg verði staðsett á einum stað við bæjarskilti. Bæjarráð vísar í fund í bæjarráði nr. 408 lið 2.3. um nánari reglur.
Liður 5 erindi frá Stuart K. Hjaltalín Skúlagötu 10 óskar eftir að bæta við glugga efst á gafl hússins norðan megin sbr. tölvupóst dags. 30.08.2006. Erindi samþykkt.
Liður 6 fyrir hönd Íslandspósts sækir Gunnar Örn Sigurðsson um leyfi til að byggja póstmiðstöð við Aðalgötu nr. 31 samkv. teikn frá ASK arkitektum dags. 21.06.2006 og bréfi dags. 30.08. 2006. Samtals 316,4 m2, 1392,7 m3.
Erindi samþykkt með fyrirvara um samþykki Brunamálastofnunar.
Liður 7 erindi frá Hólmgeiri S. Þórsteinssyni Aðalgötu 14 sækir um leyfi til að loka svalapalli og færa stiga samkvæmt teikningum frá Lárusi Péturssyni dags. 5.09.2006. Erindi samþykkt.
Liður 8 erindi frá Óla Jóni Gunnarssyni og Ósk Bergþórsdóttur Skólastíg nr. 9 um endurbætur á húsinu sem næst upprunalegu horfi samkvæmt teikningum frá arkitektum Ólöf og Jon ehf dags. ágúst 2006.
Erindi samþykkt með fyrirvara um samþykki Húsfriðunarnefndar Ríkisins.
Liður 9 Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir framkvæmdaleyfi að leggja hitaveitulögn milli nýrrar borholu í landi Ögurs og dælustöðvar við íþróttavöll í Stykkishólmi samkvæmt bréfi og teikn. dags. 1.09. 2006. Samþykkt að veita framkvæmdaleyfi. Samþykki landeigenda liggur fyrir. Samþykkt að athugað verði að leggja göngustíg samhliða framkvæmdinni. Samþykkt að leita eftir samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur við lagningu göngustígsins.
Liður 10 Skipavík ehf./ Sævar Harðarson sækir um leyfi til að byggja 6 íbúða raðhús við Laufásveg 33-43 ásamt að fjölga bílastæðum sbr. teikningu frá Skipasmíðastöðinni Skipavík dags. 20.06.06. Samtals 434,4m2, 1427,2 m3. Erindi samþykkt. Samþykkt að bílastæðafjöldi verði samkvæmt deiliskipulagi við Laufásveg og að aukabílastæði verði komið fyrir Borgarbrautarmegin. Fundargerðin í heild samþykkt.
1.4. Skólanefnd Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 16.8.2006.
Fundargerð framlögð, liður 3 varðar ráðningu kennara. Samþykkt að ráða Mari Helene Bjørnstad í 100% stöðu píanókennara við skólann.
Fundargerðin í heild samþykkt.
1.5. Fræðslunefnd, dags. 6.9.2006.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2. Aðrar fundargerðir.
2.1. Stjórn Sorpurðunar Vesturlands, dags. 23.8.2006.
Fundargerð framlögð.
3. Skipun í nefndir skv. 57. grein samþykktar um stjórn og fundarsköp Stykkishólmsbæjar.
3.1. Húsnæðisnefnd.
Skipun í húsnæðisnefndina, Páll Hjaltalín, formaður, Daði H. Sigurþórsson og Anna S. Guðmundsdóttir. Varamenn, Guðfinna D. Arnórsdóttir, Helga Sveinsdóttir og Sesselja Kristinsdóttir.
3.2. Umhverfisnefnd.
Skipun í Umhverfisnefnd, Guðfinna D. Arnórsdóttir formaður, Björn Ásgeir Sumarliðason, Trausti Tryggvason, . Varamenn, Magdalena Hinriksdóttir, Sesselja Pálsdóttir, Kristján Lár Gunnarsson, vísað verður til bæjarstjórnar að fullmanna þessa nefnd.
3.3. Varastjórn Náttúrustofu Vesturlands.
Skipun í varastjórn Náttúrustofu Vesturlands, Erla Friðriksdóttir, Guðfinna D. Arnórsdóttir og Lárus Á. Hannesson
4. Formaður stýrihóps um sameiningu grunnskóla og tónlistarskóla gerir grein fyrir stöðu mála.
Björn Sverrisson formaður kom á fund og greindi frá því sem er í gangi með húsnæðismál grunn- og tónlistarskóla. Kynnti hann skipurit og greindi frá því að búið er að ráða ráðgjafa að verkefninu sem er Anna Kristín Sigurðardóttir.
Um það bil 25 manna vinnuhópur mun vinna að verkefninu og verður skipulag hópavinnunnar svipað og var á íbúaþinginu. Unnið er eftir 12 þrepum og er fyrirkomulagið að amerískri fyrirmynd. Á næstunni verður haldinn kynningar-fundur verkefnisins, þá koma þrír vinnufundir og að lokum kynning á niðurstöðum. Meiningin er að niðurstöður verði kynntar í byrjun janúar 2007. Birni Sverrissyni var þakkað fyrir góða kynningu og vék hann síðan af fundi. Listi manna í vinnuhóp samþykktur ásamt því að farið verði á leit við Aftanskin um að þeir tilnefni einn fulltrúa í hópinn og annan til vara.
5. Jeratún ehf. – árshlutareikningur 1.1.-30.6.2006.
Árshlutareikningur 1.1.-30.6.2006 framlagður.
6. Samningur við TM vegna trygginga Stykkishólmsbæjar.
Samþykkt að segja upp samningi við Tryggingamiðstöðina vegna trygginga Stykkishólmsbæjar. Samþykkt að leita eftir tilboðum.
7. Bréf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 14.8.2006 –Trúnaðarmál.
Erindi samþykkt.
8. Fundarboð og dagskrá aðalfundar SSV 15. september nk. kl. 10.00 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Framlagt.
9. Bréf SSV, dags. 24.8.2006 varðandi beiðni um fjárstuðning við unga frumkvöðla.
Samþykkt að veita 100.000 kr. styrk til verkefnisins Ungir frumkvöðlar, vegna þátttöku fulltrúa frá Stykkishólmsbæ.
10. Bréf Grunnskólans í Stykkishólmi, dags. 22.8.2006, varðandi beiðni um ráðningu stuðningsfulltrúa við grunnskólann. Trúnaðarmál.
Erindi samþykkt.
11.Hækkun húsaleigu fasteigna innan eignasjóðs Stykkishólmsbæjar.
Samþykkt að hækka húsaleigu um 10% frá 1. september 2006 og að húsaleiga hækki fjórum sinnum á ári þ.e. næst 1. janúar 2007 og miðast húsaleiga við breytingu á vísitölu neysluverðs.
12. Umsókn um námsstyrk.
12.1. Elísabet Valdimarsdóttir.
Samþykkt að veita Elísabetu námstyrk eins og reglur um námstyrki til starfsmanna Stykkishólmsbæjar gera ráð fyrir.
12.2. Íris Huld Sigurbjörnsdóttir.
Samþykkt að veita Írisi Huld námstyrk eins og reglur um námstyrki til starfsmanna Stykkishólmsbæjar gera ráð fyrir.
12.3. Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir.
Samþykkt að veita Steinunni Ingibjörgu námstyrk eins og reglur um námstyrki til starfsmanna Stykkishólmsbæjar gera ráð fyrir.
13. Tilboð frá Sæferðum ehf. varðandi framlengingu samnings um upplýsingamiðstöð.
Erindi frestað og óskað eftir umsögn frá stjórn Eflingar. Lárus sat hjá vegna tengsla.
14. Ný lántaka 50.000.000 kr. með 4,75% vöxtum til 16 ára.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 50.000.000 kr. með 4,75% vöxtum til 16 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að fjármagna byggingu leikskóla í Stykkishólmi, sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.
Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
15. Undirskriftalisti frá íbúum á Laufásvegi vegna staðsetningar á Jaðri.
Framlagt. Samþykkt að boða til fundar með íbúum í Fögruhlíð, Laufásvegi 1,3, 4, 5 og 10.
16. Samningur við Pétur Knútsson og Messíönu Tómasdóttur vegna flutnings á Jaðri.
Samningur framlagður, ákvörðun frestað til næsta bæjarstjórnarfundar.
17. Samningur við Sumarbústaði sf. um flutning á Jaðri.
Samningur framlagður, ákvörðun frestað til næsta bæjarstjórnarfundar.
18. Niðurstöður sorpútboðs.
Bæjarritari gerði grein fyrir opnun sorpútboðs, endanlegar niðurstöður liggja ekki fyrir.
19. Hreystivöllur.
Samþykkt að setja Hreystivöll niður við Grunnskólann Borgarbraut, samþykkt að byggingafulltrúi staðsetji Hreystivöllinn í samráði við skólastjóra Grunnskólans. Samþykkt að Stykkishólmsbær sjái um að skipta um jarðveg undir vellinum.
20. Gjaldskrá heilsdagsskóla.
Samþykkt að hafa gjaldskrá óbreytta og samþykkt verði 25-50% systkinaafslátt af vistgjöldum í tengslum við vistun í leikskóla og vistun hjá dagforeldri.
21. Tilboð Skipavíkur ehf. í framkvæmdir að Hafnargötu 7.
Samþykkt tilboð Skipavíkur ehf í innanhúsvinnu við Hafnargötu 7 og að leitað verði tilboða annara í skiptingu á þaki á Hafnargötu 7.
22. Tillaga frá Gretari D. Pálssyni um að stofnað verði ungmennaráð.
Bæjarráð Stykkishólmsbæjar samþykkir að skipa 5 manna Ungmennaráð sem starfi með Æskulýðs- og íþróttanefnd bæjarins að aðstöðusköpun og afþreyingar-möguleikum unglinga á aldrinum 16 ára – 21 árs.
Æskulýðs og íþróttanefnd tilnefnir ungmenni á þessum aldri í Ungmennaráðið og gerir tillögur að erindisbréfi Ungmennaráðs.
23. Tillaga frá Gretari D. Pálssyni um að aðalskipulag Stykkishólmsbæjar verði endurskoðað.
Bæjarráð Stykkishólmsbæjar samþykkir í samræmi við 16.gr Skipulags og byggingarlaga nr 135/1997 að fram fari mat á þörf á endurskoðun gildandi aðalskipulags Stykkishólmsbæjar. Skipulags- og byggingarnefnd verði falið að standa að íbúafundi vegna þessa.
24. Tillaga frá Gretari D. Pálssyni um að stjórn Dvalarheimilis verði falið að semja samþykktir fyrir Dvalarheimili Stykkishólms.
Bæjarráð Stykkishólmsbæjar samþykkir að fela stjórn Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi að gera tillögur um samþykktir fyrir Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi.
25. Tillaga frá Gretari D. Pálssyni um að opna fyrir úthlutanir lóða í seinasta áfanga í Hjallatanga.
Bæjarráð Stykkishólmsbæjar samþykkir að opnað verði fyrir úthlutun lóða í lokaáfanga Hjallatanga.
26. Fyrirspurn frá Lárusi Á. Hannessyni, Berglindi Axelsdóttur og Davíð Sveinssyni til meirihluta bæjarráðs.
Samkvæmt bókun Gretars D. Pálssonar frá bæjarstjórnarfundi 25. ágúst hefur grenndarkynning á fyrirhuguðum flutningi á Jaðri frá Aðalgötu að Laufásvegi átt sér stað. Hvernig var staðið að þessari lögboðnu kynningu?
Gretar D. Pálsson óskar eftir að eftirfarandi verði bókað:
Varðandi framangreinda fyrirspurn bæjarfulltrúanna Berglindar Axelsdóttur, Davíðs Sveinssonar og Lárusar Hannessonar þykir undirrituðum rétt að eftirfarandi komi fram og sé áréttað:
a) Bókun sem fyrirspyrjendur vísa til er gerð af undirrituðum einum en ekki af meirihluta bæjarráðs sem fyrirspurn er beint til. Fyrirspurn ætti því að beinast til undirritaðs.
b) Í fyrirspurn bæjarfulltrúanna er bókun mín undir lið 18 á bæjarstjórnarfundi þann 24. ágúst slitin úr eigin samhengi, ásamt því að vera slitin úr samhengi við tillögu Lárusar Hannessonar um grenndarkynningu og umræðu um þá tillögu. Allir bæjarfulltrúarnir sem undirrita fyrirspurnina voru viðstaddir þá umræðu og ættu því að gera sér grein fyrir því.
c) Undirritaður hefur ekki haldið því fram að lögformleg grenndarkynning, í samræmi við Skipulags- og byggingalög nr. 73/1997, 7.mgr. 43.gr. um grenndarkynningu og 2.mgr. 26.gr. og gr.7.2.3 í skipulagsreglugerð, þyrfti að eiga sér stað eða hafi átt sér stað vegna flutnings Jaðars á Laufásveg nr. 6.
Afgreiðslur Skipulags- og bygginganefndar Stykkishólmsbæjar ganga út frá því að flutningur Jaðars samræmist gildandi deiliskipulagi sbr. afgreiðslur nefndarinnar frá, 10. nóvember 2005, einnig bæjarráðs Stykkishólmsbæjar skv. afgreiðslu 17. nóvember 2005 og 22.júlí 2006 og bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar skv. afgreiðslum 25.ágúst 2005 ,
24.nóvember 2005 og 24.ágúst 2006.
Undirritaður sem þáverandi formaður Skipulags- og byggingarnefndar taldi rétt að kynna fyrir íbúum að Laufásvegi 1,3, 4 og Fögruhlíðar fyrirhugaðan flutning. Það var gert með fundi þann 2. ágúst 2005 í Ráðhúsinu Stykkishólmi. Þann fund sátu ásamt undirrituðum og fulltrúum frá ofangreindum húsum bæjarstjóri og byggingafulltrúi.
d) Undirritaður lítur svo á að framsetning og tilgangur fyrirspurnar sé tilraun til að rýra trúverðugleika minn og störf. Harma ég slík vinnubrögð af hálfu minnihlutans.
Gretar D. Pálsson
27. Tillaga frá Elísabetu Láru Björgvinsdóttur um gjaldskrá um gjaldskrá sundlaugarinnar verði tekin til endurskoðunar, sérstaklega m.t.t. barna og unglinga.
Samþykkt að endurskoða gjaldskrá sundlaugarinnar, sérstaklega m.t.t. barna og unglinga.
28. Tillaga frá Elísabetu Láru Björgvinsdóttur um að skólanefnd Tónlistaskóla Stykkishólms verði falið að semja reglugerð fyrir Tónlistarskóla Stykkishólms sbr. Lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistaskóla nr. 75/1985.
Samþykkt að fela skólanefnd Tónlistaskóla Stykkishólms að semja reglugerð fyrir Tónlistaskóla Stykkishólms.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.20:34
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka