Bæjarráð, fundur nr. 412
Dags. 5.10.2006
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 5. október 2006
kl. 17.00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson, varamaður
Lárus Á. Hannesson
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Gretar D. Pálsson setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Fræðslunefnd, dags. 2.10.2006
Fundargerð framlögð. Samþykkt að sumarleyfi í leikskólanum verði 4 vikur samfleytt árið 2007. Fundargerð samþykkt.
1.2. Hafnarstjórn, dags. 3.10.2006
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 3.10.2006
Liður 1 deiliskipulagstillaga af parhúsum við Móholt. Samþykkt að unnin verði ný deiliskipulagstillaga.
Liður 2 deiliskipulagstillaga við Borg Skúlagötu. Samþykkt að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
Liður 3 deiliskipulagstillaga af Víkursvæði. Samþykkt að skipulag verði fullunnið með tilliti til athugasemda nefndar.
Liður 5 Þorbjörn Geir Ólafsson og aðrir eigendur að Reitavegi 6 óska eftir lóðarstækkun sbr. bréf dags 15.08.2006. Ekki er fallist á stækkun lóðarinnar.
Liður 6 Hafsteinn Sigurðsson óskar eftir að byggja bílskúr við Silfurgötu nr. 11 samkvæmt teikningum frá Brynjari Daníelssyni dags. ágúst ´06. Stærðir 42,5 m2,155,1 m3. Erindi samþykkt. Samþykkt er lóðarstækkun að gangstétt.
Liður 8 Pétur Geirsson f. h. Hús og Hótel Stykkishólms sækir um að staðsetja tímabundið 2 sumarhús á lóð hótelsins. Samþykkt að húsin verði staðsett tímabundið á lóð við Hamraenda nr. 4.
Liður 9 Björgvin Ólafsson Laufásvegi 4 óskar eftir leyfi fyrir garðhúsi á lóð. Samþykkt að uppfylltum skilyrðum.
Liður 11 Sigríður Pétursdóttir Lágholti nr. 21 sækir um að klæða hús og bílskúr samkvæmt bréfi. Erindi samþykkt.
Liður 13 Emil og Bergur ehf. sækir um að byggja parhús að Borgarhlíð 2-4, samkvæmt teikningum frá Teiknistofunni Glámu Kím dags.15.09.06. Stærðir: Borgarhlíð nr.2, 74,8 m2, 248,3 m3, Borgarhlíð nr. 4, 85,9 m2, 288,5m3. Erindi samþykkt.
Liður 14 lögð fram tillaga að legu götu og
bílastæðum við Laufásveg 1 til 10.
Samþykkt að vinna eftir tillögu.
Fundargerð samþykkt.
1.4. Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 25.9.2006
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.5. Stjórn Dvalarheimilis aldraðra, dags. 12.9.
og 4.10. 2006
Fundargerð 12/9 2006, liður 1 samþykkt að hækka húsaleigu í þjónustuíbúðum um 10% frá og með 1.nóvember og að húsaleiga hækki fjórum sinnum á ári þ.e. næst 1. janúar 2007 og miðast húsaleiga við breytingu á vísitölu neysluverðs. Liður 2 c. samþykkt tilboð Björns Benediktssonar í málun á norðurenda Skólastíg 14., Gretar sat hjá vegna tengsla, fundargerð samþykkt. Fundargerð 4/10 2006 framlögð, liður 1 a. samþykktir fyrir Dvalarheimili Stykkishólms, frestast til næsta bæjarráðsfundar, liður 1 b. erindisbréf fyrir stjórn Dvalarheimilis í Stykkishólmi, frestast til næsta bæjarráðsfundar.
Fundargerð samþykkt.
1.6. Stýrihópur skólahúsnæðis, dags. 25.8., 31.8.
og 18.9. 2006
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.
1.7. Vinnuhópur skólahúsnæðis, dags. 20.9.2006
Fundargerð framlögð og samþykkt. Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með vinnu stýrihóps og vinnuhóps um skólahúsnæði.
1.8. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 14.9.2006
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.9. Húsnæðisnefnd, dags. 20.9.2006
Fundagerð framlögð liður 1 varðar leiguíbúð að Garðaflöt 1a samþykkt að úthluta Garðari Ö. Tómassyni og Kolbrúnu Önnudóttur íbúðina. Liður 2 varðar leiguíbúð að Skúlagötu 9 j.h.h. samþykkt að úthluta Jóhönnu Ómarsdóttur og til vara Svövu Gunnarsdóttur, og fundargerð samþykkt.
1.10 Stýrihópur um myndun framtíðarsýnar fyrir Stykkishólmshöfn, dags. 10.9.2006 og 21.9.2006
Fundargerðir framlagðar, samþykkt að leitað verði eftir vinnu landslagsarkitektsins Sigurborgu hjá Landlínu í Borgarnesi um tillöguvinnu. Fundargerðir samþykktar.
2. Lóðaumsókn: Skipavík sækir um lóð við Aðalgötu 22 fyrir verslunarhúsnæði.
Erindi frestað. Samþykkt að ræða við AA-samtökin.
3. Opnun tilboða - gangstéttar.
Það barst eitt tilboð. Samþykkt að ganga til samninga við Sumarbústaða ehf. á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.
4. Tilboð í eldhústæki í leikskóla.
Samþykkt að taka lægsta tilboði frá fyrirtækinu Fastus kr. 2.148.073 m/vsk.
5. Tilboð í búnað á bókasafn.
Samþykkt tilboð í búnað á bókasafnið frá Þjónustumiðstöð bókasafna kr. 4.280.200 m/vsk.
6. Umsókn um styrk til náms- og kynnisferðar Grunnskólans og Tónlistarskólans, erindi frá bæjarráðsfundi nr. 405 þann 6.4.2006.
Samþykkt að veita hverjum starfsmanni sem fer í ferðina styrk kr. 20.000.
7. Fundarboð kynningarfundar vegna Umhverfismats áætlana – ný lög nr. 105/2006. Kynningarfundurinn verður haldinn á Hótel Hamri, fimmtudaginn 12. október 2006.
Framlagt.
8. Bréf frá Landsbankanum dags. í september vegna gjafar til Amtsbókasafnsins. Landsbankinn gefur bókasafninu níu ljóðabækur í ritröðinni Norrænar bókmenntir sem listahópurinn Nýhil hefur gefið út.
Framlagt og Landsbankanum þakkað fyrir gjöfina.
9. Bréf frá SSV dags. 21.9.2006 varðandi ályktanir aðalfundar SSV. Ályktanirnar má finna á www.ssv.is.
Framlagt.
10. Bréf frá SSV dag. 22.9.2006 varðandi námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn.
Framlagt.
11. Bréf frá Menningarráði Vesturlands dags. 13.9.2006 varðandi samstarfssamning sveitarfélaga á Vesturlandi um menningarmál og fjárhagsáætlun ráðsins fyrir árið 2007.
Bréf framlagt og vísað til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2007.
12. Bréf frá Sorpurðun Vesturlands dag. 26.9.2006 varðandi gjaldskrárbreytingu.
Framlagt.
13. Bréf frá SSV dags. 30.8.2006 varðandi ályktun stjórnar SSV um ný lög um skipulags og byggingarmál.
Framlagt.
14. Bæjarmálasamþykkt breytingar á greinum 65. og 57.
Bæjarmálasamþykkt grein 65 samþykkt í eftirfarandi mynd:
Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.
65. gr.
Afgreiðsla fjárhagsáætlunar.
Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins fyrir næsta fjárhagsár að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til félagsmálaráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni. Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.
og grein 57, C. Stjórnir til fjögurra ára, liður 1 og 8
samþykkt með eftirfarandi hætti:
1. Hafnarstjórn. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara skv. 10. gr. laga nr. 61/2003. Stjórnin fer með málefni Stykkishólmshafnar. Stjórnin starfar samkvæmt erindisbréfi.
8. Stjórn Náttúrustofu Vesturlands. Bæjarstjórn kýs, samkvæmt 12. gr. laga um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur nr. 60/1992, með síðari breytingum, þrjá fulltrúa, skal einn þeirra vera formaður, og jafnmarga til vara.
15. Umsögn Ríkislögreglustjóra dags. 18.9.2006 um lögreglusamþykkt fyrir Stykkishólmsbæ.
Umsögn framlögð og tekið verður tillit til ábendinga Ríkislögreglustjóra við gerð lögreglusamþykktar fyrir Stykkishólmsbæ.
16. Bréf frá Sæferðum dags. 28.9.2006 og tölvupóstar dags. 26.9.2006 og 29.9.2006 varðandi farþegagjald.
Bréf og tölvupóstar framlagðir og bæjarstjóra falið að svara Sæferðum.
17. Bréf frá Hafnarsambandi Sveitarfélaga varðandi kjör fulltrúa á Hafnarsambands-þing 2006, haldið á Höfn í Hornafirði 12. og 13. október.
Samþykkt að kjósa Erlu Friðriksdóttur sem fulltrúa Stykkishólmshafnar á Hafnarsambandsþingi 2006 og Símon Sturluson til vara,
18. Samningur við Önnu Kristínu Sigurðardóttur varðandi undirbúning sameiningar Grunn- og tónlistarskóla á einn stað.
Samningur framlagður og samþykktur.
19. Lagt til að leitað verði eftir tilboðum í rafmagnskaup Stykkishólmsbæjar.
Samþykkt að leitað verði tilboða í rafmagnskaup Stykkishólmsbæjar hjá öllum raforkusölufyrirtækjum.
20. Drög að erindisbréfi umhverfisnefndar.
Drög að erindisbréfi fyrir umhverfisnefnd Stykkishólmsbæjar framlagt og vísað til umsagnar umhverfisnefndar.
21. Tillaga frá LÁH, BA og DS um að stofnaður verði vinnuhópur um stefnu í málefnum frístundabænda.
Við gerum það að tillögu okkar að settur verði á stofn vinnuhópur sem hafi það verkefni að koma með tillögu að stefnu í málefnum frístundabænda.
Vinnuhópurinn samanstandi af:
Einum tilnefndum af Nýræktarfélaginu
Einum tilnefndum af Fjáreigendafélaginu
Einum tilnefndum af Landbúnaðarnefnd
Einum tilnefnum af D-lista
Einum tilnefndum af L-lista
Hópurinn komi sér saman um verkaskiptingu þ.e.a.s. formann og ritara.
Bæjarstjóra verði falið að boða til fyrsta fundar.
Hópurinn haldi að minnsta kosti einn opinn fund með áhugafólki um frístundabúskap í Stykkishólmi.
Vinnuhópurinn taki sér ekki lengri tíma en sex mánuði til verksins.
Lárus Ástmar Hannesson
Berglind Axelsdóttir
Davíð Sveinsson
Tillaga samþykkt.
22. Bréf frá Jón A. Ingólfssyni og Sigrúnu E. Svavarsdóttir varðandi lóðarstækkun og framkvæmdir við Skúlagötu 15.
Bæjarstjóra falið að kanna málið.
23. Tillaga frá Gretari um að leitað yrði frekara samstarfs við
Aftanskin um félagsstarf aldraðra.
Samþykkt samhljóða.
24. Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Orkuveitu
Reykjavíkur um Fráveitu Stykkishólmsbæjar.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.20:30
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka