Bæjarráð, fundur nr. 413
Dags. 19.10.2006
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 19. október 2006 kl. 16.00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir
Gretar D. Pálsson
Lárus Á. Hannesson
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Atvinnumálanefnd, dags. 11.10.2006.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.2. Safna- og menningarmálanefnd, dags. 10.10.2006.
Fundargerð framlögð. Liður 1 umsóknir um stöðu forstöðumanns Amtsbókasafnsins. Tvær umsóknir hafa borist um stöðuna. Samþykkt að ráða Ragnheiði Óladóttur í starfið og fundargerð samþykkt.
1.3. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 9.10.2006.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.4. Æskulýðs- og íþróttanefnd, dags. 6.10.2006.
Fundargerð framlögð. Liður 3 ungmennaráð. Eftirtaldir samþykktir í ungmennaráð: Sigrún Björk Sævarsdóttir, Auður Hinriksdóttir, Gísli Sveinn Gretarsson, Ísak Hilmarsson og Drífa Árnadóttir. Gretar D. Pálsson sat hjá vegna skyldleika. Fundargerð samþykkt.
1.5. Vinnuhópur um skólahúsnæði, dags. 4.10.2006.
Fundargerð framlögð.
2. Lóðarumsókn. Skipavík ehf. sækir um lóðina austan við Rækjuneshúsið.
Samþykkt að vísa lóðarumsókn til skipulags- og bygginganefndar.
3. Drög að leigusamningi við Artangel.
Drög að leigusamningi framlögð og bæjarstjóra falið að skrifa undir leigusamning við Artangel.
4. Fundarboð SSV vegna fundar með alþingismönnum Norðvesturkjördæmis 24.10.2006.
Fundarboð framlagt.
5. Bréf Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, dags. 11.10.2006, varðandi tilraunaverkefnið Hreyfing fyrir alla.
Bréf framlagt og vísað til æskulýðs- og íþróttanefndar.
6. Samningur við Íslenska Gámafélagið um sorphirðu í Stykkishólmi.
Samningur framlagður og samþykktur.
7. Verksamningur við Sumarbústaði ehf. um gangstéttafrágang.
Verksamningur framlagður og samþykktur.
8. Samþykktir fyrir Dvalarheimili aldraðra frá bæjarráðsfundi 412.
Samþykktir fyrir Dvalarheimili aldraðra samþykktar með breytingum.
9. Erindisbréf stjórnar Dvalarheimilis aldraðra frá bæjarráðsfundi 412.
Erindisbréf framlagt og samþykkt með breytingum.
10. Bréf frá Þorbirni Geir Ólafssyni vegna bílastæðis við Reitaveg 6.
Framlagt og erindi frestað til næsta bæjarráðsfundar.
11. Beiðni frá Sigrúnu Þórsteinsdóttur um námsleyfi.
Framlagt og erindi frestað til næsta bæjarráðsfundar.
12. Árshátíð starfsmanna Stykkishólmsbæjar.
Samþykkt að árshátíð starfsmanna Stykkishólmsbæjar verði haldin með sama hætti og s.l. tvö ár.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.17:25
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka