Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 414

Dags. 9.11.2006

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 9. nóvember 2006 kl. 17.00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:        Elísabet L. Björgvinsdóttir

                        Gretar D. Pálsson

                        Lárus Á. Hannesson

                        Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                        Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1.  Fundargerðir nefnda.

1.1.  Landbúnaðarnefnd, dags. 2.11.2006.

Fundargerð framlögð, samþykkt að skipa Lárus F. Hallfreðsson fulltrúa í vinnuhóp um málefni frístundabænda, og fundargerð samþykkt.

 

1.2.  Safna-og menningarmálanefnd, dags. 7.11.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 7.11.2006.

Fundargerð framlögð. Liður 1 deiliskipulagstillaga af Víkursvæði. Samþykkt að setja deiliskipulagstillögu í auglýsingu, með fyrirvara að gert sé ráð fyrir leiksvæðum.

Liður 3 Jón Árelíus Ingólfsson og Sigrún Elín Svavarsdóttir Skúlagötu 15 óska m.a. eftir leyfi fyrir tveimur bílastæðum samkvæmt bréfi dags. 1. október 2006.

Samþykkt að synja beiðni um fjölgun bílastæða og lóðarstækkun sbr. liði 2 og 3 í   bréfi þar sem gert er ráð fyrir grænu svæði í deiliskipulagstillögu og þar með óskertri landlögun Maðkavíkur.

Liður 4 Skipavík ehf. sækir um lóð fyrir austan Reitarveg nr. 12. Vísað af bæjarráði dags. 19.10.06 til skipulags- og byggingarnefndar.

Samþykkt að erindi verði synjað. Ekki er til deiliskipulag af svæðinu og er   land austan við Reitarveg nr. 12 að hluta til aðkoma að Reitarvegi nr. 8 og 10. Samþykkt að gera deiliskipulag að svæðinu.

Liður 5 Magnús Þór Kristinsson Árnatúni 1 óskar eftir leyfi fyrir endurnýjun á utanhúsklæðningu  sbr. bréf dags. 9.10.´06. Erindi samþykkt.

Liður 6 Ásmundur Skeggjason f.h. Álfa ehf. sækir um lóðarstækkun að Reitarvegi 10 samkvæmt tölvupósti dags. 9.10.´06. Hafnað er tímabundnum lóðaleigusamningi.  Samþykkt að gera deiliskipulag að svæðinu eins og fram kemur í lið 4.

Liður 7 Guðmundur Þór Guðþórsson  sækir um leyfi til að byggja einbýlishús að Hjallatanga nr. 26 eftir teikningum frá Stefáni Ingólfssyni arkitekt dags. 1.09.´06. Samtals 192,5 m2, 687,9 m3. Erindi samþykkt.

Liður 10 Ægir Jóhannsson Skólastíg 18 óskar eftir að setja glugga efst á gafla viðbyggingar   til útloftunnar á þakrými. Erindi samþykkt.

Önnur mál liður 11 a. samþykkt að stöðuleyfi fyrir gáma verði ekki endurnýjað nema á   geymslusvæði við Snoppu. 

 

1.4. Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 30.10.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.5. Stjórn Dvalarheimilis aldraðra, dags. 1.11.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.6. Stýrihópur um framtíðarsýn Stykkishólmshafnar nr. 3, 4 og 5, dags. 4.10., 30.10 og 6.11. 2006.

Fundargerðir framlagðar og samþykktar, taka skal fram að tölur um farþegafjölda vantar inn fyrir frífarþega og eldri borgara.

 

1.7. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 6.11.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.8. Æskulýðs- og íþróttanefnd, dags. 24.10.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

2. Aðrar fundargerðir.

2.1. Íbúafundur með íbúum á Laufásvegi, dags. 23.10.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

3. Lóðaumsóknir um lóðir í lokaáfanga við Hjallatanga.

3.1. Sigurður Páll Jónsson og Hafdís Björgvinsdóttir sækja um lóð að Hjallatanga 46.

Samþykkt að veita Sigurði Páli Jónssyni og Hafdísi Björgvinsdóttur lóðina að Hjallatanga 46.

 

3.2. Eggert Halldórsson sækir um lóð að Hjallatanga 38.

Samþykkt að veita Eggerti Halldórssyni lóðina að Hjallatanga 38.

Lóðirnar verða gerðar tilbúnar á sumri komandi 2007.

 

4. Framkvæmdaáætlun Snæfellsness send með tölvupósti.

Bæjarstjóra falið að koma með athugasemdir við framkvæmdaáætlun Snæfellsness fyrir næsta bæjarstjórnarfund.

 

5. Samgönguáætlun 2007-2018.

Bæjarráð Stykkishólms gerir athugasemd við tillögur Samgönguráðs er varðar skilgreiningu Stykkishólmshafnar í tillögu til þingsáætlunar um Samgönguáætlun fyrir árin 2007-2018.

Í frumvarpinu( þingsáætluninni) er Stykkishólmshöfn ekki lengur í grunnnetinu.

Stykkishólmshöfn þjónar mikilvægri tengingu yfir Breiðafjörð sem ferjuhöfn. Einnig er Stykkishólmshöfn ein af stærri ferðamannahöfnum landsins.

Með vísan í framangreind atriði leggur Bæjarstjórn Stykkishólms  áherslu á að höfnin verði áfram hluti grunnetsins.

 

6. Bréf Samgönguráðuneytisins, dags. 5.10.2006,  varðandi umhverfismat samgöngu­áætlunar www.samgonguraduneyti.is.

Framlagt.

 

7. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 3.11.2006, varðandi fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2006 (dagskrá send með tölvupósti).

Framlagt.

 

8. Bréf frá Þroskahjálp, dags. 30.10.2006 vegna beiðni um rekstrarframlag.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

9. Bréf frá Skógræktarfélagi Íslands, dags. 25.10.2006, varðandi ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins um að hvetja sveitarfélög til að ætla skógrækt aukið vægi í aðal- og deiliskipulagsáætlunum sínum.

Framlagt.

 

10. Bréf frá Kristjáni Lár Gunnarssyni, dags. 24.10.2006, varðandi skráningu lögheimilis að Arnarborg 9.

Samþykkt að heimila Kristjáni Lár Gunnarssyni kt. 300983-4729 og Maríu Guðrúnu Guðmundsdóttur kt. 241084-3969 að skrá lögheimili sitt að Arnarborg 9, en þeim er bent á að Arnarborg 9 er frístundabyggð samkvæmt Aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar og sveitarfélagið veitir þjónustu á svæðinu í samræmi við það.

 

11. Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 24.10.2006, varðandi endurgreiðslu vsk. vegna slökkvibifreiða og tækjabúnaðar slökkviliða sem sambandið annast nú.

Framlagt.

 

12. Bréf frá Siglingastofnun, dags. 31.10.2006, varðandi rekstrarform hafna sem reknar eru með tapi þrjú ár í röð.

Framlagt og vísað til hafnarstjórnar.

 

13. Bréf frá Samgönguráðuneytinu, dags. 3.11.2006, varðandi umsögn um drög að frumvarpi um fjarskipti.

Framlagt.

 

14. Erindi frá Þorbirni Geir Ólafssyni, frestað frá bæjarráðsfundi nr. 413.

Vegna  auka bílastæðis við Reitaveg 6, fyrri afgreiðsla staðfest, þar sem erindi var hafnað.   Erindi vísað til deiliskipulagsvinnu á svæðinu.

 

15.  Umsókn Sigrúnar Þórsteinsdóttur um námsleyfi frestað frá bæjarráðsfundi nr. 413.

Samþykkt að vísa erindinu til næsta bæjarstjórnarfundar.

Samþykkt að gerðar verði reglur um námsleyfi leikskólakennara hjá Stykkishólmsbæ.

Elísabet sat hjá vegna sinna starfa sem aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann.

 

16.  Bréf frá foreldrafélagi Lúðrasveitar Stykkishólms, dags. í nóvember 2006, varðandi beiðni um styrk í búningasjóð sveitarinnar.

Samþykkt að veita foreldrafélagi Lúðrasveitar Stykkishólms styrk kr. 100.000 í búningasjóð sveitarinnar.

 

17. Tilboð í Garðaflöt 1-3a.

Komið hafa tvö tilboð í Garðaflöt 1-3a. Annað frá Neshjúpi ehf. kt. 681096-2219 að upphæð kr. 35,7 milljónir, en hitt frá Þ.B. Borg ehf. kt. 620199-2069 fyrir hönd óstofnaðs félags að upphæð kr. 36,2 milljónir. Samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna við bjóðendur. Lárus sat hjá.

 

18. Viðræður við UMFÍ.

Samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við UMFÍ, vegna stöðu svæðisfulltrúa UMFÍ á Vesturlandi og starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í Stykkishólmi.

 

19. Bréf nefndar samkvæmt ályktun Alþingis til aðgangs að opinberum gögnum um öryggismál, dags. 17.10.2006.

Framlagt.

 

20. Skipun fulltrúa í vinnuhóp um málefni frístundabænda.

Samþykkt að skipa Símon Sturluson D-lista, Lárus Á. Hannesson L-lista, Helga Guðmundsdóttir frá Nýræktarfélagi, Lárus F. Hallfreðsson frá Landbúnaðarnefnd og Guðmundur Benjamínsson frá Fjáreigendafélagi  í vinnuhópinn um málefni frístundabænda.

 

21. Erindi vegna endurmatsteymis.

Samþykkt að tilnefna Guðmund Andrésson í endurmatsteymi vegna starfsmats.

 

22. Ný lántaka 40.000.000 kr. með 4,75% vöxtum til 16 ára.

 

Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:

 

Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 40.000.000 kr. með 4,75% vöxtum til 16 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að fjármagna byggingu leikskóla í Stykkishólmi, sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.

 

Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

 

23. Drög að fjárhagsáætlun 2007.

Þór Örn Jónsson bæjarritari gerði grein fyrir fyrstu drögum að fjárhagsáætlun fyrir árið 2007.

 

24. Fyrirspurnir Lárusar Á. Hannessonar, Berglindar Axelsdóttur og Davíðs Sveinssonar.

Hver er staðan á fyrirhuguðum framkvæmdum í gamla miðbænum?Bæjarstjóri sagði að unnið væri í kostnaðaráætlun og útboðsgögnum og að lausn gagnvart eigendum Hafnargötu 1, eins og áður hefur verið greint frá.  

Hvað hefur komið útúr könnun bæjarstjóra á kostnaði og möguleikum á upptökum á bæjarstjórnarfundum? Erla gerði grein fyrir málinu eins og hún hefur áður gert.  Kostnaður við hljóðvörpun um netið er um 1 millj. kr. og hljóð og myndvörpun um 2,5 millj. kr.  Nepal er að vinna að kerfi sem getur leyst þetta en loka prófun búnaðarins er ekki lokið og kostnaður liggur ekki fyrir en áætlað er að hann verði ekki undir 500.000 kr. og rekstrarkostnaður s.s. við aukna bandbreidd er um 33.000 kr. án vsk. á mánuði. Samþykkt að áfram verði skoðað að leita eftir ódýrari leið til að miðla bæjarstjórnarfundum. 

      

25. Úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála í máli  nr. 71/2005.

 

Varðar niðurstöður Úrskurðarnefndar skipulagsmála sbr. bréf dags. 27.10.2006

 

Stykkishólmsbær hefur allt frá 1974 með gerð Húsakönnunar Harðar Ágústssonar lagt áherslu á verndun gamalla húsa og byggðamynstra. Afgreiðslur skipulags- og bygginganefndar, bæjarráðs og bæjarstjórnar hafa tekið mið af þessum áherslum þegar fjallað hefur verið um eldri hluta bæjarins. Fyrirtæki og einstaklingar hafa lagt mikið upp úr þessum áherslum við uppgerð og endurbyggingu húsa svo eftir er tekið.

Við Bókhlöðustíg má nefna endurbyggingu húsa við nr. 1 , nr. 8, nr. 10 og nr. 15. Einnig má nefna hús við Skólastíg sem hafa verið endurbyggð eða eru í endurbyggingu. Stór hluti Skólastígs tilheyrir byggðamynstri Bókhlöðuhöfðans.

Endurbygging húsanna er þegar við á unnin í samstarfi við Húsafriðunarnefnd og arkitekta sem þekktir eru og viðurkenndir fyrir störf sín við eldri hús og byggðakjarna.

Við endurbyggingu Bókhlöðustígs 10 hefur verið sérstaklega vel til vandað og sama má segjast við tillögu að bílskúr við það hús. Arkitekt og eigandi hafa leitast við að fella fyrirhugaðan bílskúr að húsinu og gerð þess og tíðaranda og þar með fellt hann að byggðamynstri svæðisins.

Ekki verður séð að niðurstaða Úrskurðarnefndar Skipulagsmála, varðandi bílskúr að Bókhlöðustíg 10 Stykkishólmi, byggi á öðru en persónulegu mati nefndarmanna á að umræddur bílskúr falli ekki að byggðamynstri við Bókhlöðustíg. Því til sönnunar er síðan fært að engin bílskúr sé við götuna. Hið rétta er að þrír bílskúrar eru við götuna eða með aðkomu frá götunni og að auki þrír stakstæðir geymsluskúrar. Nefndin úrskurðar að í ljósi þessa sé um verulega breytingu að ræða og bæjarstjórn því ekki heimilt að nýta ákvæði í skipulags- og byggingalögum og reglugerðum um grenndarkynningu.

Stykkishólmsbær hefur farið að öllu samkvæmt lögum og reglum varðandi undirbúning og útgáfu byggingaleyfis fyrir bílskúr að Bókhlöðustíg 10. Ágreiningur er um hvort bygging bílskúrs sé óveruleg eða veruleg breyting í byggðamynstri svæðisins.

Undirritaður telur forkastanlegt að Úrskurðarnefnd skuli taka sér 13 mánuði til að fjalla um mál sem samkvæmt reglugerð um nefndina má aldrei taka lengri tíma en 3 mánuði. Samkvæmt grein 14.1 byggingareglugerðar fellur byggingaleyfi úr gildi innan 12 mánaða hafi framkvæmdir ekki hafist. Með óeðlilegum drætti og seinagangi hefur Úrskurðarnefnd tekist að fella úr gildi byggingaleyfi sem var úr gildi fallið skv. reglugerð og því má segja að úrskurður nefndarinnar sé marklaus.

 

Þar sem úrskurði Úrskurðarnefndar skipulagsmála verður ekki áfrýjað til æðra stjórnsýslustigs, leggur undirritaður til eftirfarandi:

 

Bæjarráð Stykkishólmsbæjar samþykkir að unnið verði deiliskipulag fyrir Bókhlöðustíg, Skólastíg norðanverðan og Höfðagötu norðanverða.

 

Gretar D.Pálsson

Forseti bæjarstjórnar

 

Samþykkt samhljóða að unnið verði deiliskipulag fyrir Bókhlöðustíg, Skólastíg norðanverðan og Höfðagötu norðanverða.

 

26. Dagskrá Aðalfundur Héraðsnefndar Snæfellinga haldinn í Ráðhúsinu í Stykkishólmi 13. nóvember 2006 kl:17:00.

Framlagt.

 

27. Undirritaður leggur til að dagskrár bæjarráðsfunda verði betur flokkaðar eftir eðli þeirra mála sem á dagskrá eru.

 

Dregið verði saman undir sama kafla t.d fundargerðir með dagskrárliði sem þurfa afgreiðslu bæjarráðs. Undir annan kafla fundargerðir sem þurfa staðfestingar og undir enn einn kafla fundargerðir sem lagðar eru fram til kynningar.

 

Nefna má t.d. eftirfarandi flokkun að auki sem dæmi:

 

Umsóknir um styrki og rekstrarframlög

Erindi frá öðrum stjórnsýslustofnunum.

Fjármál.

Samningar.

Lánsumsóknir.

Fyrirspurnir.

Upplýsingar frá bæjarstjóra.

 

Vel upp sett dagskrá auðveldar fundarmönnum undirbúning og vinnu á viðkomandi fundi.

 

Gretar D. Pálsson

 

Samþykkt samhljóða.

 

 

28.  Elísabet vakti athygli á reglugerð varðandi það að heimila flottrollsveiðar á grunnslóð við Snæfellsnes, sbr. ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins 2. nóv. sl.

 

Lagt er til að bæjarráð taki undir með Snæfelli, félagi smábátaeigenda á Snæfellsnesi varðandi mikilvægi þess að viðhafa skynsamlega umgengni, nýtingu og virðingu á grunnslóðinni og þá sérstaklega á Breiðafirði. Samþykkt samhljóða.

 

29. Leigusamningur milli The Artangel Trust og Stykkishólmbæjar um notkun á Bókhlöðustíg 19 fyrir Vatnasafnið framlagður og samþykktur. 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.20:50

Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré