Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 415

Dags. 7.12.2006

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 7. desember 2006

kl. 17.00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                 Gretar D. Pálsson

                 Berglind Axelsdóttir, varamaður

                 Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                 Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1. Fundargerðir nefnda.

1.1. Fræðslunefnd, dags. 6.11.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.2. Hafnarstjórn, dags. 20.11.2006.

Fundargerð framlögð, liður 1 flotbryggja Siglingaklúbbs Snæfells samþykkt að kaupa  bryggjuna á kr. 2.000.000. Liður 5 a) samþykkt að sótt verði um styrk til Siglingastofnunar vegna kaupa á flotbryggju strax á næsta ári. Liður 5 b) samþykkt orðalagsbreyting á 19. grein um farþegagjöld í gjaldskrá Stykkishólmshafnar.

Fundargerð samþykkt.

 

1.3. Æskulýðs- og íþróttanefnd, dags. 20.11.2006.

Fundargerð framlögð, liður 2 gjaldskrá sundlaugar

Gildir frá 1. janúar 2007

Fullorðnir 310 kr.

Börn 6-16 140 kr.

5 ára og yngri frítt

Ellilífeyrisþegar 140 kr. (með lögheimili utan Stykkishólms)

Öryrkjar 75% frítt

Leiga á handklæði 250 kr.

Leiga á sundfötum 250 kr.

Árskort í sundlaug 20.000 kr.

30 miða kort fullorðnir 5.000 kr.

10 miða kort fullorðnir 2.500 kr.

30 miða kort börn 2.500 kr.

10 miða kort börn 1.100 kr.

Einnota rakáhöld, body lotion o.fl. 100 kr.

gjaldskrá sundlaugar samþykkt. Fundargerð samþykkt.

 

1.4. Framkvæmdanefnd ljósmyndasafns, dags. 21.11.2006.

Fundargerð framlögð, samþykkt að starfshlutfall bókavarðar sé aukið í 100% vegna skráningu  Ljósmyndasafnsins m.a. Gretar  bendir á þetta er Framkvæmdanefnd ljósmyndasafns Jóhanns Rafnssonar í stað stjórn Ljósmyndasafns Stykkishólms. Fundargerð samþykkt.

 

1.5. Skólanefnd Tónlistarskólans, dags. 27.11.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.6. Safna- og menningamálanefnd, dags. 5.12.2006.

Fundargerð framlögð, punktar frá umræðufundi um framtíðarstaðsetningu Amtsbókasafns lagðir fram og fundargerð samþykkt.

 

1.7. Umhverfisnefnd, dags. 27.11.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

2. Aðrar fundargerðir.

2.1.  Stýrihópur Stykkishólmshafnar, dags. 29.11.2006 ásamt greinagerð dags. 29.11.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

2.2. Hópur um málefni frístundabænda, dags. 28.11.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.              

  

2.3. Breiðafjarðarnefnd, dags. 27.10.2006 (www.breidafjordur.is).

Fundargerð framlögð.

 

2.4. Stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga dags. 4.12.2006.

Fundargerð framlögð. Samþykkt að stjórn FSS og forstöðumaður sé í stafshóp um málefni fatlaðra.

 

2.5. Fundargerð stjórnar- og aðalfundar Sjávarorku ehf. dags. 27.10.2006.

Fundargerð framlögð. Samþykkt er að nýta ekki rétt til kaupa á auknu hlutfé í Sjávarorku ehf.

 

3. Lóðaumsóknir, umsóknir um lóðastækkun og skil á lóðum.

3.1.  Þórarinn Sighvatsson f.h. Sumarbústaða ehf. óskar eftir að halda lóðum við Neskinn nr. 3 og 5 til 27. desember 2007.

Samþykkt að Sumarbústaðir ehf. haldi lóðunum Neskinn nr. 3 og 5 í sex mánuði í viðbót.

 

3.2.  Þórarinn Sighvatsson f.h. Sumarbústaða ehf. óskar eftir því að skila inn lóð nr. 4 við Hjallatanga.

Samþykkt að Stykkishólmsbær taki við lóðinni að Hjallatanga 4.

 

3.3. Þórarinn Sighvatsson f.h. Sumarbústaða ehf. sækir um stækkun lóðar við Aðalgötu 28 eins og hægt er.

Vísað er á fyrri afgreiðslu og bent er á að verið er að deiliskipuleggja svæðið.

 

3.4. Páll Aðalsteinsson f.h. Stykkis ehf. sækir um lóð nr. 4 við Hjallatanga.

Samþykkt að veita Stykki ehf. lóðina að Hjallatanga 4.

 

3.5. Þorgrímur Vilbergsson sækir um lóð nr. 44 við Hjallatanga.

Samþykkt að veita Þorgrími Vilbergssyni lóðina við Hjallatanga 44.

 

3.6. Emil Þór Guðbjörnsson sækir um byggingareit B við Letisund.

Byggingareitur B við Letisund er ekki til úthlutunar.

 

3.7. Kaupþing banki hf. sækir um reit  K við Aðalgötu.

Samþykkt að veita Kaupþing banki hf. lóðina á reit K við Aðalgötu.

Með fyrirvara um að flutningi Jaðars verði lokið.

 

4.  Opnun tilboða.

4.1. Tilboð opnuð vegna trygginga fyrir Stykkishólmsbæ þann 20.11.2006.

       

Eftirfarandi tilboð bárust:

 

Frá VÍS                                  kr. 3.712.145

Frá Tryggingamiðstöðinni         kr. 2.902.452 auk ágóðahlutdeildar.

Frá Sjóvá                               kr. 3.670.649

 

Samþykkt að taka tilboði Tryggingamiðstöðvarinnar.

 

4.2.Tilboð opnuð vegna raforkukaupa fyrir Stykkishólmsbæ og Stykkishólmshöfn þann 20.11.2006.

 

Eftirfarandi tilboð bárust:

Frá Orkuveitu Húsavíkur

Frá Rarik

Frá Orkuveitu Reykjavíkur

       

Samþykkt að taka lægsta tilboði frá Rarik. Gretar sat hjá vegna tengsla.

 

5. Umsóknir um styrki.

5.1. Gísli Sveinn Gretarsson og Ísak Hilmarsson sækja um styrk f.h. nemenda í sögu FSN vegna fræðslu- og menningarferðar til Rómar, erindi dags. 27.11.2006.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðni. Gretar sat hjá vegna tengsla.

 

5.2. Hesteigendafélag Stykkishólms sækir um styrk til byggingar reiðskemmu, erindi dags. 4.12.2006.

Tekið er jákvætt í erindið og vísað til fyrri samþykktar bæjarráðsfundar nr. 406, ákvörðun vísað til næsta bæjarstjórnarfundar.

 

5.3. Snæfell sækir um aukinn beinan fjárstyrk, erindi dags. 21.11.2006.

Samþykkt að styrkur Snæfells verði kr. 1.500.000 á árinu 2007.

 

6. Reglugerð.

6.1. Reglugerð fyrir Tónlistarskóla Stykkishólms.

Reglugerð fyrir Tónlistarskóla Stykkishólms samþykkt.

 

7. Erindi til afgreiðslu.

7.1.  Bréf frá Umsjónarnefnd um aðgerðir gegn minkum dags. 1.12.2006.

Bæjarráð Stykkishólms er tilbúið að leggja til sömu upphæð til veiða á mink á meðan á átak við útrýmingu minks á Snæfellsnesi og lagt hefur verið til veiða í Stykkishólmsbæ undanfarin ár.  Bæjarráð er tilbúið til að haga greiðslum vegna minkaveiða eins og best hentar verkefninu á meðan á átakinu stendur. 

 

7.2.  Bréf frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga dags. 13.11.2006 varðandi bætta

þjónustu við fötluð börn á grunnskólaaldri.

Samþykkt að fatlaðir nemendur fái samfellda heilsárs þjónustu í lengri viðveru.

 

7.3. Stefna Snæfellsness í sjálfbærri þróun.

Stefna Snæfellsness í sjálfbærri þróun samþykkt.

 

7.4. Framkvæmdaáætlun Snæfellsness (frestað á bæjarráðsfundi 414).

Bæjarstjóra falið að senda athugasemdir til Framkvæmdaráðs Snæfellsness vegna Framkvæmdaáætlun Snæfellsness.

 

7.5. Bréf frá Lánasjóði Sveitarfélaga dags. 14.11.2006 varðandi sameiningu eldri skuldabréfalána í einn lánssamning.

Framlagt og bæjarstjóra heimilað að skrifa undir sameinaðan lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga, ekki um nýja lántöku að ræða.

 

7.6. Erindi frá Umhverfisstofnun vegna tilraunaverkefni um útrýmingu minks 2006-2009.

Samþykkt að bæjarstjóri sjái um að tilnefna lykil veiðimann.

 

8. Erindi til kynningar.

8.1. Bréf  frá Steinþóri Sigurðssyni dags. 14.11.2006  ásamt teikningum af miðbæ Stykkishólms. Framlagt.

 

8.2. Bréf frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu dags. 31.10.2006 vegna flutnings vistunarmatsskrár til Landlæknisembættisins. Framlagt.

 

8.3.  Bréf frá Brunamálastofnun dags. 9.11.2006 vegna vatnsöflunar og þjálfunar Slökkviliðsmanna. Framlagt.

 

8.4. Bréf frá Umhverfisstofnun dags. 9.11.2006 varðandi ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu á starfsleyfi fyrir urðun á óvirkum úrgangi við Ögur. Framlagt.

 

8.5. Afrit af bréfi til samgöngunefndar Alþingis dags. 29.11.2006 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi ósk um breytingu á hafnarlögum. Framlagt.

 

9. Fjármál.

9.1. Útsvarsprósenta og fasteignagjöld fyrir árið 2007.

           

Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu:

 

Tillaga um að útsvar fyrir árið 2007 verði óbreytt miðað við fyrra ár þ.e. 13.03%.

 

Tillaga að álagningu fasteignagjalda árið 2007.

 

Fasteignaskattur A-flokkur                             0,43%

Fasteignaskattur B-flokkur                             0,88%

Fasteignaskattur C-flokkur                             1,65%

 

Lóðaleiga íbúðarhúsnæðis                              2,00%

Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis                           2,50%

Lóðarleiga ræktunarland                                6,00%

 

 

Holræsagjald íbúðarhúsnæði                          0,22%

Holræsagjald atvinnuhúsnæði                         0,22%

 

Sorphirðu- og sorpeyðingargjöld pr. ílát/tunnu    21.000 kr.

 

Staðgreiðsluafsláttur 3% til þeirra sem greiða fyrir 1. mars 2007 öll fasteignagjöld og eru skuldlausir við bæjarsjóð og fyrirtæki bæjarins.

 

Sorphirðu og/eða sorpeyðingagjöld af fyrirtækjum verði innheimt skv. sérstakri gjaldskrá.

 

Fasteignaskattur verði felldur niður hjá elli- og örorkulífeyrisþegum sem njóta fullrar tekjutryggingar og búa í eigin húsnæði. Þeir sem hafa skerta tekjutryggingu fái 50% afslátt af fasteignaskatti.

 

Gjalddagar fasteignagjalda verða 5 talsins á tveggja mánaða fresti þ.e. febrúar, apríl, júní, ágúst, október, fyrst 1. febrúar 2007.

 

Bæjarráð samþykkir tillögurnar samhljóða.

 

Samkvæmt hækkun á byggingavísitölu þá verða vatnsgjöld

Orkuveitu Reykjavíkur:

 

Fastagjald verður  3721 kr.

Fermetragjald 164 kr. á fermetra

 

 

9.2. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2007.

Bæjarritari og bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun og framkvæmdaáætlun fyrir árið 2007.

Samþykkt að vísa fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar.

 

10. Önnur mál.

10.1. Elísabet Lára gerði grein fyrir gjöf Árna Helgasonar á fimm árituðum geisladiskum Ég man þá tíð, þar sem hann syngur textana sína við undirleik Jóns Svans Péturssonar. Bæjarráð þakkar Árna fyrir gjöfina.

10.2 Fyrirspurn frá Berglindi um hve margar umsóknir um svæðisfulltrúa UMFÍ hafi borist..

Bæjarstjóri sagði að margar fyrirspurnir hafi komið og nokkrar umsóknir, sem  enn hafa ekki borist bæjarskrifstofu.

      

10.3. Gretar lýsti yfir ánægju sinni á uppsetningu fundargerðar bæjarráðs.

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.19:50

Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 



Til baka
Á næstunni
25. maí 2012
30. maí 2012
29. júní 2012
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré