Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 416

Dags. 18.1.2007

 416. fundur

 

 

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 18. janúar 2007 kl. 17.00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:       Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                       Gretar D. Pálsson

                       Lárus Á. Hannesson

                       Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                       Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1.    Fundargerðir nefnda.

 

1.1.Fræðslunefnd, dags. 11.12.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.2.Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 12.12.2006 og 16.1.2007.

Fundargerð skipulags- og bygginganefndar dags. 12.12. 2006 framlögð, liður 1 deiliskipulagstillaga af  parhúsum við Móholt/ Búðanesveg dags. 12.12. ´06. Samþykkt að unnið sé áfram með tillögur eitt og tvö.

Liður 2 deiliskipulagstillaga af  atvinnuhúsnæði á hafnarsvæði  við Nesveg dags.12.12.’06. Samþykkt að unnið sé áfram með tillöguna.

Liður 5 hraðahindrun á horni Lágholts og Sundabakka. Samþykkt að laga hraðahindrun við Lágholt og Sundabakka og koma fyrir bulduspelum í hallanum á                       Sundabakka og botnlanga við Lágholt 21a.

Liður 8 lögð fram tillaga að umferðarreglum við Búðanesveg, Aðalgötu, Tjarnarás, Búðanes og Hjallatanga. Tillaga samþykkt á síðasta bæjarstjórnarfundi þann 14.12. 2006.

Liður 9 lögð fram tillaga  að útfærslu á skipulagi miðbæjar ásamt  lóðarmörkum við Hafnargötu 1,5,7, Aðalgötu 2 og Frúarstíg nr. 1.

Vísað er í fund haldinn 3. janúar 2007 bæjarstjórnar með skipulags- og bygginganefnd, byggingafulltrúa og hönnuðum. Unnið verður áfram að málinu.

Liður 10 önnur mál, liður10.a samþykkt að athugað verði gerð hringtorgs á gatnamótum Búðanesvegar og Aðalgötu til að draga úr hraða og auðvelda                             umferðarflæði til og  frá leikskóla.

Liður 10.c  samþykkt að byggingafulltrúi sjái til þess að númerslausir bílar verði fjarlægðir af almennum bílastæðum, ef þurfa þykir. Fundargerð samþykkt.

Fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 16.1. 2007 liður 2 deiliskipulagstillaga af Víkurhverfi í Stykkishólmsbæ. Tillagan var í auglýsingu til og með 11. janúar s.l.  Athugasemdir dags. 7.01.07 bárust frá Benedikt E. Guðbjartssyni og Eddu Hermannsdóttur Bogahlíð 6, Reykjavík (Borgarbraut 28, Stykkishólmi). Athugasemdarbréf dags.7.01.07 frá Stefáni B. Heiðarssyni Borgarbraut 26, Þórhildi Halldórsdóttur Borgarbraut 24, Vigni Sveinssyni Borgarbraut 30, Ásgeiri Guðmundssyni Borgarbraut 20. Athugasemdir lagðar fram ásamt umsög  dags 15.01.07.

Deiliskipulagstillaga samþykkt samhljóða ásamt umsögn dags. 15.01.07.

Liður 4 Bæring B. Jónsson f.h. Friðriks Jónssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Vikurgötu nr. 1 samkvæmt teikningum dags.14.01.2007. Samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir eigendum við Víkurgötu nr. 2 og 4, og Aðalgötu nr.7 og 7a.

Liður 6 tillaga lögð fram að merkingu leikskólahússins. Staðsetning á merkinu samþykkt. Rétt nafn leikskólans skal notað, Leikskólinn í Stykkishólmi.

Fundargerð samþykkt.

 

1.3.Stjórn Dvalarheimilis, dags. 13.12.2006 og 10.1.2007.

Fundargerðir framlagðar og samþykktar. Bæjarráð lýsir  yfir ánægju með að stjórn dvalarheimilis hafi forgöngu um aukið félagsstarf aldraðra.

 

1.4.Umhverfisnefnd, dags. 18.12.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.5.Þjónustuhópur aldraðra, dags. 4.12.2006 og 8.1.2007.

Fundargerðir framlagðar og samþykktar. Bæjarráð óskar eftir því við þjónustuhóp aldraðra og stjórn Dvalarheimils komi með tillögu um hvernig dagvist fyrir aldraða verði best á komið hér í Stykkishólmi. Bæjarráð tekur fram að það sé stefna bæjarstjórnar að leysa húsnæðisþörf aldraðra. Kannaðar verði möguleikar á lóðum og fjármögnun.

 

1.6.Æskulýðs- og íþróttanefnd, dags. 21.12.2006.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

2.  Aðrar fundargerðir.

 

2.1.72. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 27.11.2006.

Fundargerð framlögð á www.breidafjordur.is.

 

2.2.Fundargerð stjórnar Lista- og menningarsjóðs, dags. 13.1.2007.

Fundargerð framlögð.

 

3.  Erindisbréf nefnda.

 

3.1.Drög að erindisbréfi Umhverfisnefndar.

Erindisbréf umhverfisnefndar samþykkt með áornum breytingum.

 

3.2.Drög að erindisbréfi Ungmennaráðs.

Erindisbréf ungmennaráðs samþykkt með áornum breytingum.

 

4.  Samningar.

 

4.1.    Bréf FMR, dags. 27.12.2006, varðandi samning um álagningarhluta Landskrár fasteigna ásamt samningi um álagningarhluta Landskrár fasteigna.

Samningur um álagningahluta Landskrá fasteigna við Fasteignamat ríkisins samþykktur og bæjarstjóra falið að skrifa undir samninginn.

 

5.  Opnun tilboða.

 

5.1.    Opnun tilboða – Gatnagerð við Aðalgötu – tjaldsvæði, dags. 17.1.2006.

          Samþykkt að ganga til samninga við BB og synir ehf., á grundvelli tilboðsins.

6.  Umsóknir um styrki.

 

6.1.   Margrét Ebba Ísleifsdóttir og Árdís Lára Gísladóttir sækja um styrk til námsferðar.

         Samþykkt að veita Margréti Ebbu og Árdísi Láru hvorri styrk að upphæð kr. 20.000

6.2.    Bréf Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla, dags. 20.12.2006, varðandi styrktarbeiðni.

         Samþykkt að veita Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla styrk að upphæð kr. 400.000 til sýningarhalds.

6.3.    Bréf Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla, dags. 20.12.2006, varðandi beiðni um styrk vegna fasteignagjalda.

         Samþykkt að veita Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla styrk sem nemur fasteignagjöldum á Norska húsinu og Reitarvegi 3 árið 2007. Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla er bent á Orkuveitu Reykjavíkur varðandi niðurfellingu á vatnsgjaldi.

 

7.  Erindi til umsagnar.

 

7.1.    Bréf Siglingastofnunar, dags. 20.12.2006 varðandi Samgönguáætlun 2007-2010, kafli 3, siglingamál, tillaga til umsagnar.

          Bæjarstjóra er falið að svara bréfinu og fara fram á að fá flýtingu á framkvæmdum við sjóvörn og smábátabryggju.

 

7.2.    Bréf Dóms- og kirkjumálaráðuneytis, dags. 27.12.2006 varðandi reglugerð um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna og lögregluumdæmi lögreglustjóra.

          Framlagt. Engar athugasemdir, bæjarstjóra falið að gera athugasemd við stuttan umsagnarfrest.

 

7.3.    Bréf Menntamálaráðuneytis, dags. 22.12.2006 varðandi drög að stefnu stjórnvalda í fornleifavernd ásamt greinargerð.

          Framlagt.

 

8.  Erindi til afgreiðslu.

 

8.1.    Bréf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 27.12.2006 varðandi forvarnarfulltrúa FSS/RK.

          Bæjarráð hefur ekkert að athugavert við þessa afgreiðslu.

 

8.2.   Trúnaðarmál frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.

                 Erindi samþykkt.

 

8.3.   Trúnaðarmál frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.

                 Erindi samþykkt.

 

8.4.    Bréf Gullvers sf., dags. 29.12.2006 varðandi umferðarrétt frá Austurgötu að Aðalgötu 7 og 7a.

          Bæjarstjóra falið að svara bréfinu.

 

8.5.    Bréf Guðmundar P. Ólafssonar, formanns framkvæmdanefndar um Ljósmyndasafn, dags. 12.12.2006.

          Bæjarráð leggur áherslu á við bréfritara að bæjarráð hefur fullann hug á að bæta hag Ljósmyndasafns Stykkishólms.

 

9.  Erindi til kynninga.

    

9.1.    Bréf Menntamálaráðuneytis, dags. 20.12.2006. varðandi verklagsreglur um tilkynningar­skyldu starfsfólks í leik-, grunn- og framhaldsskóla til barnaverndarnefndar.

          Framlagt.

 

9.2.    Bréf Menntamálaráðuneytis, dags. 22.12.2006 varðandi breytingar á grunnskólalögum nr. 66/1995 og endurskoðaðan almennan hluta aðalnámskrár grunnskóla frá 1999.

          Framlagt.

 

9.3.    Bréf Menntamálaráðherra, dags. 7.12.2006 varðandi lýsingu á vinnustöðum og bæklinginn “Góð lýsing í skólum”.

          Framlagt.

 

9.4.    Bréf sóknarnefndar Stykkishólmskirkju, dags. 16.1.2006 þar sem fram kemur þakklæti fyrir stuðninginn vegna framkvæmda við kirkjuplanið sl. haust.

          Bréf framlagt og sóknarnefndinni þökkuð hlýjar kveðjur.

 

9.5.    Bréf félagsmálaráðuneytis, dags. 10.1.2007 varðandi uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða.

         Framlagt.

 

10. Fjármál.

         Þriggja ára áætlun 2008-2010.

         Forsendur þriggja ára fjárhagsáætlunar Stykkishólmsbæjar og undirfyrirtækja fyrir  2008-2010 framlögð og unnið í fjárhagsáætlun. Samþykkt að vísa fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

 

11.  Forkaupsréttur

            Oddshús (Bókhlöðustígur 17).

            Bæjarráð fellur frá forkaupsrétti á Bókhlöðustíg 17.

 

12. Tillögur.

              Tillaga vegna fjárhagsáætlunar vísað til bæjarráðs af bæjarstjórnarfundi nr. 219.

              Tillaga vegna fjárhagsáætlunar.

 

Við undirrituð leggjum til að Stykkishólmsbær geri kröfu til olíufélaganna um bætur vegna samráðs þeirra undangengin ár.

Stykkishólmur er eitt af þeim bæjarfélögum sem nefnd eru í skýrslu um samráðsmál olíufélaganna og á því rétt á bótum samkvæmt. dómi í máli Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum.

Við leggjum til að framlag til Ljósmyndasafns Stykkishólms verði 2,5 milljónir og fáist skaðabætur frá olíufélögunum renni það einnig til Ljósmyndasafns og Amtsbókasafns.

 

Davíð Sveinsson

Lárus Á. Hannesson

Berglind Axelsdóttir

 

Bæjarráð leggur til að ákvörðun um  kröfugerð gagnvart olíufélögunum um bætur vegna samráðs þeirra verði frestað, þar til fyrirliggur fordæmisgefandi dómur frá Hæstarétti um sambærileg mál. Bæjarráð hefur fullann hug á að bæta hag Ljósmyndasafns Stykkishólms.

 

13. Rætt var um formlega opnun Leikskólanum í Stykkishólmi.

Tímasetning ákveðin síðar.

 

14. Kynning á fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar verður þriðjudaginn 6. febrúar 2007.

15. Lárus spurðist fyrir um umdæmisfulltrúa UMFÍ.

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.20:18

Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré