Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 417

Dags. 15.2.2007

 

 

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 15. febrúar 2007 kl. 17.00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:       Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                       Gretar D. Pálsson

                       Lárus Á. Hannesson

                       Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                       Íris Huld Sigurbjörnsdóttir, fundarritari

 

Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1.  Fundargerðir nefnda.

1.1.Atvinnumálanefnd, dags. 30.1.2007.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

1.2.Fræðslunefnd, dags. 13.2.2007.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

1.3.Hafnarstjórn, dags. 8.2.2007.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

1.4.Safna- og menningarmálanefnd, dags. 6.2.2007.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

1.5.Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 13.2.2007.

Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, dags. 13. febrúar 2007 framlögð.

Liður 1 deiliskipulagstillaga við Borg í Stykkishólmsbæ. Tillaga var í auglýsingu  til og með 8. janúar s.l. Nefndin leggur til að ekki verði byggingarréttur fyrir bílskúr á lóðum. Hinsvegar möguleiki á innbyggðum bílskúrum við báðar lóðir.  Samþykkt samhljóða að vísa afgreiðslu til bæjarstjórnar. Liður 2 Olíufélagið hf. / Guðlaugur Pálsson sækir um að færa olíu- og díseltanka á hafnarbryggju við Stykkið í Stykkishólmi samkvæmt bréfi og teikningum dags 19.12.2006. Umsögn hafnarnefndar lögð fram og erindi samþykkt ásamt umsögn hafnarnefndar að uppfylltum skilyrðum Samþykkt samhljóða. Liður 3 fyrirspurn frá Sævari Harðarsyni f.h. Skipavík um eftirfarandi breytingartillögur á deiliskipulagi af frístundabyggð við Arnarborg: A) Breytingar á vegakerfi svæðisins B)  Breytingar á lóðarmörkum og byggingarreitir færðir til. C)  Að heimilt verði að byggja  allt að 150 m2 innan byggingarreits  á hverri lóð í stað 100m2 áður. Nefndin samþykkir breytingu á deiliskipulagi. Samþykkt samhljóða að tillaga um breytingu á deiliskipulagi verði sett í auglýsingu. Liður 4 deiliskipulagstillaga lögð fram af  íbúðabyggð við Móholt/Búðanesveg dags. 5.02.´07. Nefndin leggur til að það verði tvö einbýlishús við Hjallatanga í stað einbýlishúss og parhúss. Samþykkt samhljóða. Liður 5 deiliskipulagstillaga lögð fram af atvinnuhúsnæði á hafnarsvæði við Nesveg  dags. 2.02.07. Nefndin hefur endurskoðað deiliskipulagstillögu með tilliti til athugasemda      samkvæmt bókun nefndarinnar frá 9. maí 2006. Lagt er til að deiliskipulagstillaga  verði samþykkt. Samþykkt samhljóða að deiliskipulagstillagan verði auglýst. Liður 7 Orkuveita Reykjavíkur / Erla S. Gestsdóttir sækir um að byggja dæluhús við borholu í landi Ögurs ásamt lóðarafmörkun samkvæmt afstöðumynd og bréf dags 12.02.´07. Samþykki eigenda liggur ekki fyrir. Nefndin samþykkir með fyrirvara um samþykki landeigenda. Samþykkt samhljóða. Liður 8 Skipavík óskar eftir byggingarleyfi fyrir Arnarborg nr. 1   samkv. teikningum dags. 23.01.07.  Erindið samþykkt. Samþykkt samhljóða. Liður 9 Skipavík óskar eftir byggingarleyfi fyrir Arnarborg nr. 5 samkvæmt teikningum frá Glámu Kím dags. 23.01.2007. Erindið samþykkt. Samþykkt samhljóða. Liður 10 Hamraafl ehf./Símon Sturluson  sækir um leyfi til að byggja skemmu að Hamraendum nr. 3 samkvæmt teikningum  dags. febrúar 2007.  Erindið samþykkt. Samþykkt samhljóða. Liður 11 Una Særún Karlsdóttir og Sigursveinn P. Hjaltalín Neskinn 8 sækja um að endurnýja klæðningu, glugga og breyta glugga í svalahurð samkvæmt bréfi dags. 6.02.07. Erindið samþykkt. Samþykkt samhljóða. Liður 18.a. Nefndin telur að brýnt sé að gerðar verði viðeigandi endurbætur á Silfurgötu 9 og 9a vegna slysahættu frá þakklæðningu í slæmum veðrum. Samþykkt samhljóða að senda eigendum viðkomandi eigna áskorun um að viðeigandi úrbætur verði gerðar áður en tjón og slys hljótast af.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

1.6.Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 29.1.2007.

Bæjarráði þykir eftirsjá í Martin Markvoll sem hefur sagt upp störfum og verður hans sárt saknað. Fundargerðin samþykkt samhljóða.

1.7.Stjórn Dvalarheimilis aldraðra, dags. 14.2.2007.

Fundargerðin framlögð og samþykkt samhljóða.

1.8. Stýrihópur um stækkun grunnskóla og byggingu tónlistarskóla, dags. 12.2.2007.

Fundargerðin framlögð og samþykkt samhljóða.

1.9.Umhverfisnefnd, dags. 29.1.2007.

Fundargerðin framlögð. Samþykkt samhljóða að varðveita tjörnina við gamla flugvöllinn og gerð göngustígs meðfram Hömrum vísað til endurskoðunar aðalskipulags. Bæjarráð telur nauðsynlegt áður en lengra er haldið að fá frekari upplýsingar um hugmynd nefndarinnar á nánari útfærslu á starfi umhverfisfulltrúa. Fundargerðin samþykkt samhljóða að öðru leyti.

1.10. Vinnuhópur um málefni frístundabænda, dags. 30.1.2007.

Fundargerðin framlögð og samþykkt samhljóða.

1.11. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 12.2.2007.

Fundargerðin framlögð og samþykkt samhljóða.

 

2. Aðrar fundargerðir.

2.1.73. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 11.12.2006.

Fundargerðin framlögð.

 

3. Lóðaumsóknir.

3.1. Skipavík ehf. sækir um lóð við Borgarbraut, Reit A fyrir þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Umsókninni hafnað á grundvelli deiliskipulags þar sem lóðin er fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði skv. deiliskipulagi.

 

4. Erindi til kynningar.

4.1. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 2.2.2007 varðandi námsferðir á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

4.2. Bréf Dóms- og kirkjumálaráðuneytis, dags. 6.2.2007 varðandi reglugerð um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna og lögregluumdæmi lögreglustjóra.

 

4.3. Bréf Menntamálaráðuneytis, dags. 23.1.2007 varðandi æskulýðsrannsóknirnar Ungt fólk, stefnumótun í málefnum barna og ungs fólks.

 

4.4. Bréf Félagsmálaráðuneytis, dags. 2.2.2007 varðandi staðfestingu á breytingu á samþykkt um stjórn og fundasköp bæjarstjórnar.

4.5. Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 22.1.2007 varðandi vexti lána af eigin fé.

 

4.6. Bréf Siglingastofnunar, dags. 16.12.2006 varðandi úttekt á slysavörnum í höfnum.

 

4.7. Kynningarfundur vegna Ímyndarkönnunar Vesturlands á vegum SSV og Bifrastar.

Erindi til kynningar framlögð.

 

5. Erindi til umsagnar.

 

5.1. Bréf Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, dags. 22.1.2007 varðandi umsögn um drög að reglugerð um takmarkanir á tóbaksreykingum og drög að reglugerð um smásölu tóbaks.Framlagt. 

 

5.2. Bréf samgöngunefndar Alþingis, dags. 7.2.2007 varðandi beiðni um umsögn um frumvarp til vegalaga.Framlagt.

 

5.3. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30.1.2007 varðandi beiðni um umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða. Framlagt.

 

6. Erindi til afgreiðslu.

6.1. Boðsbréf frá stjórn Kvenfélagsins Hringsins vegna móttöku í tilefni af 100 ára afmæli Kvenfélagsins laugardaginn 17. febrúar 2007. Bæjarráð þakkar boðið fyrir hönd bæjarstjórnar. Eftirfarandi tillaga lögð fram.

“Bæjarráð samþykkir að færa kvenfélaginu Hringnum í Stykkishólmi 100.000,- (eitthundrað þúsund krónur) að gjöf, sem þakklætisvott fyrir óeigingjarnt starf félagsins að samfélagsmálum síðastliðin 100 ár.

Gretar D. Pálsson (sign.)”

Samþykkt samhljóða.

 

6.2. Bréf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 29.1.2007 varðandi tillögu um breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð.Samþykkt samhljóða.

 

6.3. Bréf Golfklúbbsins Mostra, dags. 1.2.2007 varðandi beiðni um niðurfellingu fast­eigna­gjalda á húseign og ræktunarlandi golfklúbbsins við Aðalgötu 29.Samþykkt að veita Golfklúbbnum Mostra styrk sem nemur fjárhæð fasteignagjalda. Golfklúbbnum er bent á Orkuveitu Reykjavíkur varðandi niðurfellingu á vatnsgjaldi.

 

6.4. Bréf Kvenfélagsins Hringsins, dags. í febrúar 2007 varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda á húseign félagsins við Aðalgötu.Samþykkt að veita Kvenfélaginu Hringnum styrk sem nemur fjárhæð fasteignagjalda. Kvenfélaginu  er bent á Orkuveitu Reykjavíkur varðandi niður­fellingu á vatnsgjaldi.

 

6.5. Bréf Eflingar Stykkishólms, dags. 4.2.2007 varðandi staðsetningu upplýsingamiðstöðvar ferðamála.Samþykkt samhljóða að upplýsingamiðstöð verði fundinn annar staður á komandi sumri.

 

6.6. Bréf Sigrúnar Þórsteinsdóttur, leikskólastjóra, dags. 5.2.2007 varðandi aukningu á undir­búningstíma leikskólakennara. Samþykkt að vinna kostnaðarmat á þessari aukningu og erindinu vísað til afgreiðslu hjá bæjarstjórn.

 

6.7. Hljóðbúnaður verðkönnun. Samþykkt að málið verði skoðað áfram miðað við einfaldari útfærslur.

 

6.8. Bréf Írisar H. Sigurbjörnsdóttur, dagsett í febrúar 2007 þar sem hún segir starfi sínu lausu.Bæjarráði þykir eftirsjá í Írisi og verður hennar sárt saknað.

 

6.9. Vinabæjarmót í Lappeenranta 8.-12. ágúst 2007.Ákvörðun um fulltrúa er vísað til bæjarstjórnar.

 

7. Tillögur.

7.1. Tillaga að breytingu á afslætti elli- og örorkulífeyrisþega vegna fasteignagjalda árið 2007.

“Fasteignaskattur árið 2007 verði felldur niður hjá elli- og örorkulífeyrisþegum sem hafa tekjutryggingu a.m.k. að fjárhæð 50.000 kr. á mánuði, búa í eigin húsnæði og hafa lögheimili í Stykkishólmi.  Þeir sem hafa tekjutryggingu allt að 50.000 kr. á mánuði fái 50% afslátt af fasteigna­skatti.”

Samþykkt samhljóða.

 

7.2. Tillaga varðandi frístundabyggð.

“Við undirrituð gerum það að tillögu okkar að skipulagt verði nýtt svæði undir frístundabyggð fyrir almenning í landi Stykkishólms og svæðið opnað til framkvæmda svo skjótt sem auðið er. 

Greinargerð:

Um nokkurra ára skeið hefur verið eftirsókn eftir lóðum til bygginga á frístunda­húsum í nágrenni Stykkishólms.  Ekki hafa verið til úthlutunar lóðir fyrir áhugasama.  Við teljum að Stykkishólmsbær eigi því að ganga fyrir skjöldu og skipuleggja og opna svæði  í þessum tilgangi.  Við teljum að ef af verður efli það atvinnu hér í bæjarfélaginu með aukningu á þjónustusölu og ekki síst geti þeir aðilar sem stundi byggingariðnað aukið sína veltu og möguleika.  Það er því von okkar að tillögunni verði vel tekið til eflingar okkar ágæta bæjarfélags.

 

Lárus Ástmar Hannesson (sign.)

Berglind Axelsdóttir (sign.)

Davíð Sveinsson (sign.)”

 

Gretar bendir á að eftirspurn eftir frístundalóðum fyrir fyrirtæki og einstaklinga hefur ekki verið mikil þar sem aðeins einn aðili hefur sótt um á síðasta ári og var því erindi vísað til endurskoðunar aðalskipulags og að auki hefur skipulags- og byggingarnefnd verið falið að kanna þörfina á endurskoðun á aðalskipulagi m.a. með íbúaþingi.

 

Samþykkt að vísa tillögunni til umsagnar skipulags- og byggingarnefndar og þá til endurskoðunar aðalskipulags.

 

8. Önnur mál.

8.1. Tillaga vegna deiliskipulagstillögu af íbúðarhúsnæði við Tjarnarmýri.

“Bæjarráð samþykkir að setja deiliskipulagstillögu dags. 17.01.2006 af íbúðarhúsnæði við Tjarnarmýri í auglýsingu.

Greinagerð:

Tillagan hafði fengið mikla umfjöllun í skipulags- og byggingarnefnd og var að lokum mælt með samþykkt tillögunnar með breytingum í nefndinni þann 17. janúar 2006. Bæjarráð vísaði þann 2. febrúar 2006 afgreiðslu tillögunnar til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn hafnaði tillögunni þann 16. febrúar 2006.

Undirritaður telur ekki ástæðu til að hafna tillögunni án undangenginnar kynningar á fyrirhuguðu deiliskipulagi, þannig að sjónarmið íbúa fái að koma fram. Því er framan­greind tillaga um auglýsingu deiliskipulagstillögunnar lögð fram.

 

Gretar D. Pálsson”

 

Samþykkt samhljóða.

 

8.2. Tillaga um stýrihóp um mótun Fjölskyldustefnu fyrir Stykkishólmsbæ.

Undirritaður leggur til að bæjarstjórn skipi á næsta fundi sínum 3ja manna stýrihóp sem hafi það hlutverk að móta og gera tillögu að Fjölskyldustefnu fyrir Stykkis­hólmsbæ. Nánar verði kveðið á um hlutverk hópsins og skil verkefnis í erindisbréfi.

 

Greinagerð:

Sveitarstjórnum á hverjum tíma ber að marka sér opinbera stefnu í málefnum fjölskyldunnar án tillits til gerðar hennar.

Það er mikilvægt að Stykkishólmsbær hlúi að fjölskyldunni og skapi henni þroskavænleg skilyrði. Markmið með Fjölskyldustefnu er að efla fjölskyldur í nútímaþjóðfélagi.  Fjölskyldan gegnir lykilhlutverki í þroskaferli einstaklingsins.  Leggja þarf áherslu á að skapa einstaklingnum bestu möguleg skilyrði svo hann geti vaxið, þroskast og notið hæfileika sinna sjálfum sér og öðrum til góðs og samfélaginu til framfara.

 

Gretar D. Pálsson

 

Samþykkt samhljóða.

 

8.3. Elísabet leggur til að fengið verði tilboð í endurbætur/endurgerð á heimasíðu Stykkishólmsbæjar ásamt möguleikum á vefrænni þjónustu.

Samþykkt samhljóða.

 

8.4. Bæjarstjóri lagði fram skýrslu vinnuhóps um stækkun grunnskóla og byggingu tónlistarskóla sem kynnt var á kynningarfundi 14. febrúar. Bæjarráð lýsir ánægju sinni með frábæra vinnu vinnuhópsins og færir öllum þeim sem að komu bestu þakkir. Jafnframt er lagt til að boðað verði til námsfagnaðar hjá vinnuhópnum. 

 

8.5. Bæjarstjóri lagði fram ársreikning SSV fyrir árið 2006.

 

8.6. Bæjarstjóri lagði fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 8.2.2007 varðandi boðun á XXI. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 23. mars.

 

8.7. Bæjarstjóri minnti á að Guðrún Erna Magnúsdóttir fulltrúi í safna- og menningar­málanefnd hefur ekki lengur kjörgengi. Tilnefningu fulltrúa í hennar stað vísað til bæjarstjórnar.

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 19.52.

Íris Huld Sigurbjörnsdóttir, fundarritari.

 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré