Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 418

Dags. 8.3.2007

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 8. mars 2007 kl. 17.00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:        Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                        Gretar D. Pálsson

                        Lárus Á. Hannesson

                        Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                        Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1.  Fundargerðir nefnda.

1.1.  Framkvæmdanefnd Ljósmyndasafns Stykkishólms, dags. 12.12.2006, 24.1. og 27.2.2007.

Í sambandi við fundin 12.12.2006, þá var Guðmundi Páli svarað skriflega. Bæjarráð fagnar þeim áfanga sem hefur náðs í sambandi við skráningu mynda í Ljósmyndasafni með ráðningu Sigurlínu.

Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

 

1.2. Fræðslunefnd Stykkishólms, dags. 5.3.2007.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 7.3.2007.

Fundargerð framlögð. Liður 1 deiliskipulagstillaga lögð fram af  íbúðabyggð við Móholt/Búðanesveg dags. 5.03.2007. Samþykkt að deiliskipulagstillagan af íbúðarbyggð við Móholt fari í auglýsingu skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b.

 

Liður 2 Einar Karlsson óskar eftir lóðarafmörkun/lóðarleigusamning fyrir Nesveg nr. 4, samkvæmt bréfi dags. 29.01.2007. Ekki er fallist á lóðarafmörkun þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu.

Liður 3 Páll Aðalsteinsson sækir um að byggja einbýlishús við Hjallatanga

 

nr. 2 samkvæmt teikningum  frá teiknistofu H.S.Á. dags. 1.02.2007. Stærðir: 184m2, 695,9 m3. Byggingarleyfisumsókn samþykkt.

 

Liður 4 Páli Aðalsteinsson sækir  um að byggja einbýlishús við Hjallatanga nr. 4 samkvæmt teikningum frá teiknistofu H.S.Á. dags. 1.02.2007. Stærðir: 184,0 m2, 695,9 m3. Byggingarleyfisumsókn samþykkt.

 

Liður 5 Bæring B. Jónsson f.h. Friðriks Jónssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Vikurgötu nr. 1 samkvæmt teikningum dags. 14.01.2007. Samtals 50  m2. Umsóknin var í grenndarkynningu frá og með 22. janúar til  og með 19. febrúar 2007. Engar athugasemdir bárust. Byggingarleyfisumsókn samþykkt.

 

Liður 6 Björgvin Ólafsson sækir um að byggja ofan á hús sitt við Laufásveg nr. 4 sbr. teikningar frá Verkfræðistofu E.K. dags. febrúar 2007. Samþykkt að grenndarkynna  óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Laufásvegi nr. 1, 3, 5 og 6 Aðalgötu nr. 11, 13 og 15, Víkurgötu nr. 7 og 8.

 

Liður 7 Stykkishólmsbær sækir um að staðsetja tetra öryggisfjarskiptaloftnet á þak skólahúss við Skólastíg nr. 11. Erindi samþykkt.

 

Liður 8 Orkuveita Reykjavíkur / Erla S. Gestsdóttir sækir um að byggja dæluhús við borholu í landi Ögurs ásamt lóðarafmörkun samkvæmt afstöðumynd og bréfi dags 12.02.2007. Samþykki eigenda liggur ekki fyrir. Leiðrétting á bókun á 90. fundi  skipulags- og byggingarnefndar þann 13. febrúar s.l. Erindi samþykkt með fyrirvara um samþykki eigenda og að gerð verði óveruleg breyting  á Aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar skv. 2. mgr. 21.gr skipulags- og byggingarlaga.

 

Liður 9 Tillaga um frístundabyggð fyrir almenning í landi Stykkishólmsbæjar. Tillögu vísað af bæjarstjórn til umsagnar skipulags- og byggingarnefndar og þá til  endurskoðunar á aðalskipulagi. Endurskoðun á aðalskipulagi,íbúaþing, samkvæmt  vísun bæjarstjórnar til skipulags- og byggingarnefndar. Samþykkt að skipulags- og byggingarnefnd, bæjarstjórn og skipulagshöfundar Aðalskipulags Stykkishólmsbæjar haldi íbúafund   þriðjudaginn 20. mars kl. 20:00 Ráðhúsinu,  í tengslum við endurskoðun á Aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar. Samþykkt að skipulags- og bygginganefnd sjái um skipulag  og undirbúning fundarins.  

 

Liður 10 Lagt fram bréf dags. 28.03.2007, frá Skipulagsstofnun  um samráðsfund Skipulagsstofnunnar og sveitarfélaga um skipulagsmál og umhverfismat.Samþykkt að

skipulags- og byggingarfulltrúi fari á fundinn.

 

Liður 11 Gunnar Már Gestsson sækir um að bæta við gluggum byggja við húsið að Silfurgötu nr. 22 samkvæmt teikningum frá Hjörleifi Sigurþórssyni dags. jan. 2007.

Erindi samþykkt með fyrirvara á eftirfarandi athugasemdum: a) Samþykki lóðarhafa   aðliggjandi lóðar Silfurgötu nr. 20 þarf að liggja fyrir. b) Að á lóðarmörkum verði eldvarnarveggur samkvæmt byggingarreglugerð c) Grenndarkynna ber erindið fyrir Silfurgötu nr. 20 og nr. 22a.

 

Liður 12 1.a Skrifleg bókun Berglindar Lilju Þorbergsdóttur vegna afgreiðslu bæjarstjórnar á deiliskipulagstillögu við Borg þann 22. febrúar s.l.

Ekki kom fram í bókaðri fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, þann 13. febrúar 2007, að nefndin hafi farið á staðinn, mælt fyrir húsunum og aðstæður skoðaðar. Sökum þess, gæti verið að bæjarstjórn hafi skort þær upplýsingar þegar ákvörðun þeirra var tekin um að hafna tillögu nefndarinnar.

Undirrituð leggur til að bæjarstjórn verði gerð nánari grein fyrir afstöðu byggingarnefndar, það er, að fram komi að aðstæður hafi verið skoðaðar á staðnum og það sé megin grundvöllur á ákvörðun nefndarinnar í þessu máli.

 

1.b Skrifleg bókun Björgvins Ólafssonar og Guðmundar Kristinssonar vegna afgreiðslu bæjarstjórnar á deiliskipulagstillögu við Borg þann 22. febrúar s.l.

Undirritaðir óska rökstuðnings bæjarstjórnar vegna höfnunar tillögu skipulags- og byggingarnefndar, við deiliskipulagstillögu við Borg sem samþykkt var samhljóða eftir mikla og góða vinnu í nefnd. Undirritaðir skora á bæjarstjórn að kynna sér málið betur, svo sem staðsetningu bílskúrs á reit A og hvort eigi að raska útliti Borgarinnar til að koma honum fyrir. Einnig er ekkert tillit tekið til þeirra íbúa sem þetta hefur áhrif á. Og því má segja að sú góða vinna sem skipulags- og byggingarnefnd hefur af hendi leyst í þessu máli sé að engu höfð.

 

 

Varðandi bókun undir lið 12 1a) og 1b) í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar dags. 07. mars 2007.

 

Ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar tekur mið af framlögðum gögnum , þ.e. fyrri deiliskipulagstillögum ásamt auglýstri tillögu, innsendum athugasemdum, umsögn byggingafulltrúa er lögð var fram á 90. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 13. febrúar 2007, og skoðun bæjarfulltrúa á staðnum ásamt viðræðum við formann Skipulags- og bygginganefndar og byggingafulltrúa um afgreiðslu nefndarinnar.

 

Það er rétt sem kemur fram í bókun Berglindar (12, 1a ) að engar upplýsingar né rök koma fram af hálfu skipulags-og byggingarnefndar varðandi afgreiðslu nefndarinnar á deiliskipulagstillögu við Borg.

 

Í fundargerð nefndarinnar frá 90. fundi þann 13.febrúar 2007 segir:

 

1. Deiliskipulagstillaga við Borg í Stykkishólmsbæ. Tillaga var í auglýsingu  til og með 8. janúar s.l. Athugasemdir bárust frá Gretari D. Pálssyni dags. 7.11.2006, Hinriki Axelssyni og Hönnu Maríu Björgvinsdóttur dags. 4.12.2006. Athugasemdir lagðar fram ásamt umsögn  dags. 15. 01.07.

Nefndin leggur til að ekki verði byggingarreitur fyrir bílskúra á lóðum. Hinsvegar möguleiki á innbyggðum bílskúrum við báðar lóðir.

 

Vegna skorts á rökstuðningi nefndarinnar við afgreiðslu á framangreindum lið var leitað eftir upplýsingum frá formanni og byggingafulltrúa sbr. hér að framan.

 

Varðandi bókun Björgvins og Guðmundar (12, 1b) , er vísað til framangreinds

rökstuðnings er kemur fram í umsögn byggingafulltrúa.

Ekki verður fallist á það sjónarmið sem fram kemur í bókun Björgvins og Guðmundar  að góð vinna nefndarinnar sé að engu höfð þó að hluti sjónarmiða ná ekki fram að ganga.

 

Elísabet Lára Björgvinsdóttir (sign)

Gretar D. Pálsson (sign)

 

Fundargerð samþykkt.

 

1.4. Stjórn Dvalarheimilis aldraðra, dags. 21.2.2007 og 7.3.2007.

Bæjarráð tekur jákvætt í afþreyingu fyrir aldraðra, sbr. 16. fundur liður 2 en biður um nánari útfærslu og kostnaðaráætlun.

Samþykkt að sótt sé um hjá Heilbrigðisráðuneyti að boðið verði upp á tvö rými í dagvistun, sbr. 15. fundi.

Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

 

1.5. Umhverfisnefnd, dags. 26.2.2007.

Tekið verður tillit til ábendinga umhverfisnefndar við tiltekt Áhaldahúss á vori komandi.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

1.6. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 21.2. og 5.3.2007.

Vísað til samþykktar í lið 1.4.

Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

 

2. Aðrar fundargerðir.

2.1.  74. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 23.1.2007. (www.breidafjordur.is)

             Fundargerð framlögð.

3. Opnun tilboða.

3.1. Opnun tilboða – Sameiginlegt útboð vegna Hjallatanga, 3. áfanga.

Eftirfarandi tilboð bárust:                       Með vsk.

Borgarverk ehf., Borgarnesi                  kr. 14.472.000

Ræktunarstöðin s.f., Hveragerði            kr. 18.684.700

Palli Sig. Ehf., Stykkishólmi                   kr. 14.881.900

BB og synir ehf., Stykkishólmi               kr. 13.608.410

 

Kostnaðaráætlun er kr. 15.538.600 með vsk.

Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

 

3.2.  Opnun tilboða – Skipulag miðbæjar, jarðvinna og lagnir.

Eftirfarandi tilboð bárust:                       Með vsk.

Berglín ehf.                                          kr. 18.959.000

frávik 13.2.1 + lagnaliðir með söndun

Borgarverk ehf., Borgarnesi                  kr. 18.575.000

BB og synir ehf., Stykkishólmi               kr. 21.351.499

 

Kostnaðaráætlun er kr. 23.257.000 með vsk.

 

Það er  mat Jóns Ágústs Guðmundssonar byggingarverkfræðings hjá verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen að frávikstilboðið komi ekki til álita og leggur til að samið verði við lægstbjóðandi í verkið.

Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Lárus situr hjá.

 

4. Erindi til kynningar

4.1.  Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands hf. 16. mars 2007.

Framlagt.

 

4.2. Ársreikningur Sorpurðunar Vesturlands hf. 2006.

Ársreikningur framlagður.

 

5. Erindi til afgreiðslu.

5.1.  Bréf bæjarritara, dags. 2.3.2007 varðandi kynnisferð til Noregs og Danmerkur.

Samþykkt að bæjarritari Stykkishólmsbæjar fari í þessa kynnisferð.

 

5.2.  Tölvupóstur frá stjórn Jeratúns ehf., dags. 28.2.2007 varðandi aukningu á hlutafé í Jeratúni og aðalfund Jeratúns 12. mars nk. kl. 16.00 í Fsn.

Samþykkt að auka hlutafé í Jeratúni um kr. 8.640.000. Lárus situr hjá. Bæjarráð leggur áherslu á það við stjórn Jeratúns að leitað verði allra ráða til að ná endurskoðun á leigusamningi vegna Fjölbrautaskóla Snæfellinga við ríkið.

Samþykkt að Erla Friðriksdóttir fari með umboð Stykkishólmsbæjar á aðalfundi Jertúns ehf. 12.mars n.k.

 

5.3.  Bréf Sóknarnefndar Stykkishólmskirkju, dags. 28.2.2007 varðandi beiðni um styrk vegna fasteignagjalda af Stykkishólmskirkju árið 2007.

Samþykkt að veita sóknarnefnd Stykkishólmskirkju styrk sem nemur fjárhæð fasteignagjalda. Sóknarnefnd er bent á Orkuveitu Reykjavíkur varðandi niðurfellingu á vatnsgjaldi.  

 

5.4. Bréf Lionsklúbbs Stykkishólms, dags. 28.2.2007 varðandi beiðni um styrk vegna fasteignagjalda af húsi Lionsklúbbsins við Aðalgötu.

Samþykkt að veita Lionsklúbbi Stykkishólms styrk sem nemur fjárhæð

fasteignagjalda. Lionsklúbbnum er bent á Orkuveitu Reykjavíkur varðandi

niðurfellingu á vatnsgjaldi.

 

5.5. Undirbúningstímar leikskólakennara í Leikskólanum í Stykkishólmi, erindi vísað til bæjarráðs af bæjarstjórn 22. febrúar sl.

Samþykkt að auka undirbúningstíma í 10 tíma á hverri deild á viku, um er að ræða 10 tíma aukningu á viku í heild fyrir Leikskólann. Elísabet situr hjá vegna hagsmuna.

 

5.6.  Bréf SSV, dags. 6.3.2007 varðandi tilnefningu á frumkvöðli Vesturlands 2006.

Bæjarráð Stykkishólmsbæjar tilnefnir Sigurjón Jónsson sem frumkvöðul Vesturlands     2006 fyrir smíði Víkingaskútu.

 

6. Önnur mál.

6.1 Boðun ársfundar og stofnfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. 23. mars 2007.

Samþykkt að Erla Friðriksdóttir fari með umboð Stykkishólmsbæjar á ársfundi og stofnfundi Lánasjóði sveitarfélaga ohf. 23. mars 2007.

 

6.2. Erla Friðriksdóttir bæjarstjóri leggur til að Stykkishólmsbær kanni möguleika á  kaupum eða legu á geymsluhúsnæði um 80-100 fermetra á stærð. Stykkishólmsbær er með geymsluhúsnæði víða í bænum, sum eru varla vatnsheld, því er mjög mikilvægt að Stykkishólmsbær hafi yfir að ráða traustu geymsluhúsnæði.

Tillaga samþykkt.

  

6.3. Lóðarumsókn Kristjáns Lárentsínusson um Hjallatanga 32.

Samþykkt að úthluta Kristjáni Lárentsínussyni lóðina að Hjallatanga 32.

    

6.4. Kvenfélagið Hringurinn gaf Stykkishólmsbæ styttu af hafmeyju eftir Guðmund frá Miðdal, sem áður stóð í Hólmgarði á 100 ára afmæli Kvenfélagsins. Bæjarráð þakkar Kvenfélaginu fyrir gjöfina.

 

6.5 Lárus kom með fyrirspurn um geymslu fyrir kerrur og hjól við Leikskólann. Starfsfólk Leikskólans er að vinna að lausn málsins.

 

6.6. Fyrirspurn frá Lárusi varðandi starf UMFÍ.

    

6.7. Fyrirspurn frá Lárusi varðandi byggðakvóta.

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 19:18

Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 



Til baka
Á næstunni
25. maí 2012
30. maí 2012
29. júní 2012
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré