Bæjarráð, fundur nr. 419
Dags. 15.3.2007
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 15. mars 2007 kl. 17.00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður
Gretar D. Pálsson
Lárus Á. Hannesson
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Æskulýðs- og íþróttanefnd, dags. 1.3.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.2. Vinnuhópur um málefni frístundabænda, dags. 27.2.2007.
Fundargerð framlögð.
2. Opnun tilboða.
2.1. Opnun tilboða – yfirborðsfrágangur á miðbæ.
Eftirfarandi tilboð bárust:
Garðabræður kr. 44.243.985 m.vsk.
G.A.P. sf. kr. 37.299.440 m.vsk.
B.J. verktakar kr. 31.643.400 m.vsk.
Grásteinn ehf. kr. 29.431.070 m.vsk.
Kostnaðaráætlun kr. 33.230.746,-
Þegar búið var að fara yfir útreikninga þá var Grásteinn ehf. lægstur kr. 29.790.070 með v.s.k. Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við lægstbjóðanda Grástein ehf.
2.2. Bréf VST hf., dags. 13.3.2007, varðandi frávikstilboð Berglínar ehf.
Bréf VST hf. framlagt.
Bæjarráð á að taka ákvarðanir sem miða að hagsmunum heildarinnar.
Bæjarráð hafnar því að slegið verði af kröfum hönnunar og efnisvals eins og það kemur fram í framangreindu útboði.
Ekki verður séð af innsendum tilboðum í Hjallatanga 3. áfanga og miðbæ að aukinn kostnaður fylgi því að standa við kröfur útboðs. Í öllum tilfellum utan einu myndi kostnaður aukast eða í besta falli vera óbreyttur ef heimilað væri að nota hraun í stað malar í neðra burðarlag.
Jón Ágúst Guðmundsson hjá VST hefur fært skrifleg rök fyrir hönnun og efnisvali sbr. bréf dags 13.03.2007.
Þau rök sem fyrir liggja varðandi útboð í miðbænum styðja það að tilboði Borgarverks skuli tekið sem lægstbjóðanda í verkið.
Gretar D. Pálsson
ELísabet L. Björgvinsdóttir
3. Erindi til kynningar
3.1. Bréf HSH varðandi þakklæti fyrir framlag til eflingar æskulýðs- og íþróttastarfi á sambandssvæði HSH.
Bréf HSH framlagt.
3.2. Fyrsti aðalfundur Menningarráðs Vesturlands 11. apríl 2007 í Snæfellsbæ ásamt fundargerðum menningarráðs, dags. 12.1. og 2.2.2007.
Framlagt.
3.3. Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2006.
Ársreikningur Jeratúns ehf. framlagður.
4. Erindi til afgreiðslu.
4.1. Bréf Skipulagsstofnunar, dags. 7.2.2007 varðandi deiliskipulag Víkurhverfis.
Bæjarstjóri leggur til að hefja viðræður við Skipavík hf. um uppbyggingu hluta Víkurhverfisins. Samþykkt að fara í viðræður við Skipavík hf., en Lárus sat hjá.
4.2. Bréf Skipulagsstofnunar, dags. 8.3.2007 varðandi deiliskipulag íbúðarsvæðis við Borg.
Bæjarstjóri leggur til að lóðirnar verði auglýstar til úthlutunar þegar niðurstaða varðandi landspildu við Borg til ræktunar liggur fyrir. Samþykkt samhljóða.
4.3. Erindisbréf fyrir stýrihóp um mótun fjölskyldustefnu.
Erindisbréf framlagt og samþykkt.
5. Önnur mál.
5.1. Fyrirspurn Gretars um ráðningu ritara bæjarstjóra.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að búið sé að ráða Örnu Sædal Andrésdóttur.
Átta umsækjendur sóttu um starfið.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.18:05
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka