Bæjarráð, fundur nr. 420
Dags. 12.4.2007
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 12. apríl 2007 kl. 17.00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður
Gretar D. Pálsson
Berglind Axelsdóttir, varamaður
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Fræðslunefnd, dags. 2.4.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.2. Safna- og menningarmálanefnd, dags. 3.4.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.3. Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 26.3.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.4. Stýrihópur um mótun fjölskyldustefnu Stykkishólmsbæjar,
dags. 10.4.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.5. Umhverfisnefnd, dags. 29.3.2007 ásamt drögum að
verksviði umhverfisfulltrúa.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2. Aðrar fundargerðir.
75. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 20.2.2007 (www.breidafjordur.is)
Fundargerð framlögð.
3. Erindi til kynningar.
3.1. Bréf Siglingastofnunar Íslands, dags. 16.3.2007 varðandi beiðni um að byggingu smábátaviðlegu verði flýtt og beiðni um styrk úr hafnabótasjóði vegna breytingar á ferjuaðstöðu.
Framlagt.
3.2. Bréf Varasjóðs húsnæðismála, dags. 22.3.2007 varðandi umsókn um framlag úr Varasjóði húsnæðismála vegna sölu fjögurra íbúða.
Bréf Varasjóðs húsnæðismála framlagt.
3.3. Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 28.3.2007 varðandi tilkynning um eignarhluti í Lánasjóði sveitarfélaga ohf.
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. framlagt. Bæjarráð fagnar að Stykkishólmsbær fær greiddan arð að upphæð kr. 55.590.000 á næstu fjórum árum.
3.4. Bréf Varasjóðs húsnæðismála, dags. 29.3.2007 varðandi úthlutun
rekstrarframlaga vegna félagslegra íbúða vegna ársins 2006.
Bréf Varasjóðs húsnæðismála framlagt.
3.5. Aðalfundur Menningarráðs Vesturlands 2007 haldinn 11. apríl 2007 í Snæfellsbæ.
Framlagt.
3.6. Bréf Vegagerðarinnar, dags. 30.3.2007 varðandi ósk um úrbætur Snæfellsnesvegi.
Bréf Vegargerðarinnar framlagt.
3.7. Ársskýrsla Golfklúbbsins Mostra 2006.
Ársskýrsla Golfklúbbsins Mostra framlögð.
4. Styrkbeiðnir.
4.1. Bréf aðstandenda Forvarnardags Samnesara, samstarfshóps forstöðumanna félagsmiðstöðva á Snæfellsnesi og tómsstunda- og forvarnafulltrúa Snæfellinga, dags. 27.3.2007 varðandi styrkbeiðni vegna forvarnardaga Samnesara sem haldnir verða 16.-18. apríl í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ.
Samþykkt að taka jákvætt í verkefnið og styrkja það sem fram fer í Stykkishólmi.
5. Erindi til afgreiðslu.
5.1. Bréf Rakelar Olsen, dags. 15.3.2007 varðandi Frúarhúsið í Stykkishólmi.
Bæjarráð fellur frá að nýta sér forkaupsréttar ákvæði á Frúarhúsinu í Stykkishólmi.
5.2. Bréf Eflingar, dags. 6.12.2006 varðandi endurbætur og viðhald á tjaldsvæðum.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi Eflingar um viðhald og endurbætur á tjaldstæðinu.
5.3. Bréf stjórnar Foreldrafélags Leikskólans í Stykkishólmi, dags. 21.3.2007 varðandi leiksvæði bæjarins.
Bæjarráð tekur jákvætt í bréf Foreldrafélags Leikskólans og leggur til að unnið verði skipulega að lagfæringu leikvalla í Stykkishólmi.
5.4. Samkomulag slökkviliðsstjóra á Snæfellsnesi undirritað í mars 2007.
Samkomulag framlagt, bæjarráð hefur engar athugasemdir við samkomulag slökkvistjóra á Snæfellsnesi.
5.5. Bréf Dallilju I. Steinarsdóttur og Guðfinnu D. Arnórsdóttur dags. 30.3.2007 þar sem þær segja starfi sínu lausu við Félagsmiðstöðina X-ið í Stykkishólmi.
Bæjarráð þakkar Dallilju og Guðfinnu fyrir vel unnin störf og verður þeirra sárt saknað.
5.6. Bréf Sjávarútvegsráðuneytis, dags. 20.3.2007 varðandi auglýsingu til
sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta.
Stykkishólmsbær hefur sótt um byggðakvóta á grundvelli 2. greinar þ.e. vegna óvæntri skerðingu á heildaraflaheimilda fiskiskipa í Stykkishólmi.
5.7. Bréf smábátaeigenda, dags. 2.4.2007 þar sem sótt er um byggðakvóta.
Smábátaeigendur geta sótt um byggðakvóta þegar og ef honum verður
úthlutað til Stykkishólmsbæjar.
5.8. Bréf Guðmundar P. Ólafssonar og Ingunnar K. Jakobsdóttur, dags. 12.3.2007 varðandi deiliskipulag á hafnarsvæðinu við Skipavík.
Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar hafa svarað bréfinu. Athugasemdir um skipulag í bréfinu er vísað til umfjöllunar í skipulags-og byggingarnefnd.
5.9. Bréf FSS, dags. 2.4.2007 varðandi erindisbréf fyrir Félagsmálanefnd Snæfellinga, stefnu og framkvæmdaáætlun í barnavernd 2006-2010 og reglur um fjárhagsaðstoð.
Erindisbréf samþykkt. Stefna og framkvæmdaáætlun í barnavernd og reglur um fjárhagsaðstoð framlagt.
5.10. Bréf Rakelar Olsen, dags. 4.4.2007 varðandi skipulag miðbæjar.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið leggur til að kannaður verði möguleiki á að hliðra stíg við Frúarhúsið.
5.11. Bréf stjórnar Golfklúbbsins Mostra, dags. 15.3.2007 varðandi aðalskipulag Stykkishólmsbæjar og afmörkun Víkurvallar.
Bæjarráð samþykkir að samningur við Golfklúbbinn Mostra og Stykkishólmsbæjar verði endurskoðaður. Erindinu er varðar skipulag vísað til skipulags- og bygginganefndar.
5.12. Bréf SDS, dags. 26.3.2007 varðandi tillögu SDS að breytingu á reglugerð fyrir starfsmenntunarsjóð Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu.
Bæjarráð samþykkir tillögu SDS.
6. Skipun í þjóðhátíðarnefnd.
Bæjarráð skipar eftirfarandi sem aðalmenn í þjóðhátíðarnefnd: Eydís Eyþórsdóttir formaður, Hrannar Pétursson, Einar Strand. Varmenn eru eftirtaldir: Arna Sædal Andrésdóttir, Alma Diego, Björn Ásgeir Sumarliðason. Öðrum tilnefningum er vísað til næsta bæjarstjórnarfundar.
7. Fjármál.
7.1. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga á 4,95% vöxtum til 10 ára að fjárhæð kr. 35.000.000.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 35.000.000 kr. með 4,95% vöxtum til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir í miðbæ Stykkishólms, sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.
Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
7.2. Drög að ársreikningi fyrir árið 2006.
Drög að Ársreikningi Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2006 framlagður og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
8. Tillögur.
8.1. Tillaga um endurskoðun gatnagerðargjalda.
Bæjarstjóri leggur til að gatnagerðagjöld verði endurskoðuð og breytt gjaldskrá tekur gildi á árinu 2008. Samþykkt samhljóða.
9. Önnur mál.
9.1. Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum sínum við Sæmund framkvæmdastjóra UMFÍ um starf svæðisfulltrúa UMFÍ á Vesturlandi.
9.2. Gretar gerði grein fyrir frumdrögum að samningi við Skipavík um hluta Víkurhverfis.
9.3. Bókun varðandi bókun meirihluta bæjarstjórnar Stykkishólms þann 22.3.
Tillögur okkar frá því á bæjarstjórnarfundi 222 þann 22.3. og varða fyrirhugaða samningsgerð við Skipavík um uppbyggingu Víkurhverfis austan Borgarbrautar. Þessar tillögur eru mjög skýrar og miða að því að ná fram umræðu á einfaldan máta um stórt mál. Okkur þykir miður að ekki var grundvöllur hjá meirihluta bæjarstjórnar Stykkishólms til að ræða málið á lýðræðisgrunni.
Berglind Axelsdóttir
Lárus Ástmar Hannesson
Bókun:
Tilögur minnihlutans frá bæjarstjórnarfundi 222 þann 22.3. voru ekki skýrar. Jafnframt hafna ég þeirri fullyrðingu að meirihluti bæjarstjórnar vilji ekki ræða málin á lýðræðisgrunni.
Gretar D. Pálssonar
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.18:40
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka