Bæjarráð, fundur nr. 421
Dags. 3.5.2007
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 3. maí 2007 kl. 20:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður
Gretar D. Pálsson
Lárus Á. Hannesson
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 17. 4.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Deiliskipulagstillaga lögð fram af íbúðabyggð við Tjarnarmýri. Tillagan var í auglýsingu 1. mars til 12. apríl s.l. Athugasemdarlisti móttekin 11.04.2007.
Samþykkt að vísa málinu til skipulags- og byggingarnefndar og nefndin beðin um að koma með nýja deiliskipulagstillögu í samræmi við aðalskipulag.
Liður 2 Deiliskipulagstillaga lögð fram af lóðum á hafnarsvæði við Nesveg. Tillaga var í auglýsingu frá 1. mars til 12. apríl s.l. Athugasemdarbréf bárust.. Umsögn lögð fram dags. 15.04.2007.
Deiliskipulagstillaga frá 12.02.2007 ásamt umsögn samþykkt, með þeirri breytingu að settar verði jarðmanir við norðaustur gafl húsanna.
Liður 3 Gunnar Már Gestsson og Eyrún María Guðmundsdóttir sækja um að byggja við
húsið að Silfurgötu nr. 22, samkvæmt teikningum frá Hjörleifi Sigurþórssyni. Þar með fellur fyrri meðferð máls úr gildi.
Samþykkt að grenndarkynna tillögu dags. 26.03.2007, fyrir Silfurgötu 20 og 24 A.
Liður 4 Fyrirspurn frá Jon Nordstein f.h. eigenda Vikurgötu 8 (Staðarfells) um að stækkun og endurbyggingu útihússins við Staðarfell samkvæmt bréfi og tillöguteikningum dags. 28. mars 2007.
Samþykkt niðurrif á skúr og endurbyggingu húss á einni hæð. Ekki er leyft að hafa íbúðarrými í byggingu. Bæjarráð er samþykk áliti nefndarinnar.
Liður 5 Kristján Auðunn Berntsson sækir um að byggja við Víkurflöt 3, samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu E.K. dags. mars 2007.
Erindi samþykkt.
Liður 6 Gunnlaugur Árnason óskar eftir afmörkun á lóð Hafnargötu 9, samkvæmt bréfi dags. 17.03.2007. Lögð var fram álitsgerð frá Pétri Kristinssyni lögmanni frá 2. maí 2007.
Það er ekki á valdi Stykkishólmsbæjar að ákvarða mörk á milli lóða sem áður voru Skólastígur 2. Um er að ræða erfðafestulóð sem Sigurður Ágústsson hf. seldi hluta af með frjálsum samningi. Það er því á valdi lóðarhafa að skýra út hvaða hluti lóðarinnar var seldur Sólborgu hf.1982. Mörk milli lóðanna þurfa að ákvarðast í samstarfi núverandi handhafa lóðanna.
Stykkishólmsbær getur því ekki orðið við beiðni Sæfells hf. að því leyti sem hin umbeðna breyting á lóðinni kann að skerða þann hluta lóðarinnar sem ekki var afsalað árið 1982.
Liður 8 Tillaga að lóðarafmörkun við Hafnargötu 11 samkvæmt tillögu.
Ákveðið að grenndarkynna tillögu að lóðarmörkum fyrir Silfurgötu 1 og 3 og Hafnargötu 9 og 13.
Liður 11 Stefán Björgvinsson f.h. Hamraafls ehf. , sækir um hurðabreytingu á skemmu að Hamraendum nr. 3, skemmubili nr. 2.
Erindi samþykkt.
Liður 12 Ásmundur Skeggjason/ Anna María Guðmundsdóttir Silfurgötu 14 sækja um að girða lóð sbr. teikningu móttekin 16.04.2007.
Erindi samþykkt.
Liður 13 Nafn á vegi við athafnasvæðis A2 samkvæmt deiliskipulagi.
Samþykkt að óska eftir tillögum frá íbúum.
Liður 14 Stykkishólmsbær leggur fram tillögu á staðsetningu upplýsingaskilta við Frúarstíg vegna framkvæmda á miðbæ.
Erindi samþykkt.
Liður 15 Hjörleifur Sigurþórsson f.h. eigenda Skólastígs nr. 12 sækir um að rífa húsið og byggja nýtt samkvæmt teikningum dags. mars 2007. Stærðir: 108,1 m2, 275,4m3.
Óskað er eftir umsögn frá Húsfriðunarnefnd Ríkisins um niðurrif.
Liður 17 Lögð fram tillaga að reglugerð um skilti í Stykkishólmsbæ.
Samþykkt að fresta málinu. Bæjarráðsmenn eru hvattir til að kynna sér reglugerðir um skilti hjá öðrum sveitarfélögum fyrir næsta fund.
Fundargerð samþykkt.
1.2. Stjórn Dvalarheimilis aldraðra, dags. 17.4.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt. Lýst er yfir ánægju með að leyfi er fengið fyrir tveimur plássum í dagvistun frá Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðuneytinu.
1.3. Umhverfisnefnd, dags. 30.4.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.4. Þjónustuhópur aldraðar, dags. 16.4.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
1.5. Æskulýðs- og íþróttanefnd, dags. 23.4.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2. Aðrar fundagerðir.
2.1. Fundargerð Framkvæmdaráðs Snæfellsness, dags. 24. febrúar 2007.
Fundargerð framlögð.
2.2. Fundargerð Framkvæmdaráðs Snæfellsness, dags. 19. mars 2007.
Fundargerð framlögð.
3. Skýrsla vinnuhóps um málefni frístundabænda.
Skýrsla framlögð. Lýst er yfir ánægju með skýrsluna og niðurstöðum vísað til skipulags- og byggingarnefndar í tengslum við endurskoðun á aðalskipulagi.
4. Lóðaumsóknir.
4.1. Símon Sturluson f.h. Hamraafls sækir um lóðina Hamraenda 4, dags. 19.3.2007.
Lóðarumsókn hafnað, þar sem á bæjaráðsfundi 8. september 2005 var ákveðið að útbúið verði stæði fyrir stóra bíla og vinnuvélar að Hamraendum 4. Samþykkt að lóð nr. 6 á Hamraendum verði útbúin fyrir stæði fyrir stóra bíla og vinnuvélar. Samþykkt að auglýsa lóð að Hamraendum 4 til umsóknar.
5. Erindi til kynningar.
5.1. Bréf SSV, dags. 3.4.2007 varðandi stöðu héraðsnefnda
Bréf framlagt.
5.2. Bréf Lappenranta City Holding Company Ltd., dags. 27.3.2007 varðandi málstofu „From friendship to business co-operation“ í Lappenranta 4. – 7. júní 2007.
Bréf framlagt.
5.3. Bréf Kaupþings dags. 4.4.2007 varðandi gjöf til leikskóla til að auka grænmetisneyslu barna. Kaupþing gefur öllum leikskólum efni og áhöld til að útbúa lítinn matjurtagarð.
Bréf framlagt. Kaupþingi þökkuð gjöfin.
5.4. Bréf UST dags. 3.4.2007 ásamt verndaráætlun Þjóðgarðarins Snæfellsjökuls.
Bréf framlagt.
5.5. Ársskýrsla og Ársreikningur Menningarráðs Vesturlands 2006.
Ársskýrsla framlögð.
5.6. Ársskýrsla Framkvæmdaráðs Snæfellsness 2006.
Ársskýrsla framlögð.
6. Styrkbeiðnir.
6.1. Þorsteinn Sigurlaugsson f.h. Seakayak Iceland sækir um styrk, dags. 15.4.2007 vegna sjókayak hátíð Eiríks Rauða sem fram fer í Stykkishólmi 26.-28. maí n.k.
Samþykkt að veita Þorsteinu Sigurlaugssyni fh. Seakayak styrk kr. 80.000 til kynningar á hátíðinni.
6.2. Björgvin Rúnar Valentínusson sækir um styrk, dags. 25.4.2007 til að leika með U18 landsliðið á Norðurlandamóti Unglingalandsliða í körfuknattleik.
Samþykkt að veita Björgvini Rúnari Valentínussyni styrk kr. 20.000 , Elísabet L. sat hjá vegna tengsla.
7. Erindi til afgreiðslu.
7.1. Staða Green Globe verkefnisins á Snæfellsnesi og næstu skref, dags. í apríl 2007.
Skýrsla framlögð og bæjarstjóra falið að hafa samband við aðra aðila Green Globe á Snæfellsnesi.
7.2. Vinnuskólinn og áhaldahús – endurskoðun gjaldskrár.
Samþykkt að hækka gjaldskrá eftirleiðist miðað við hækkun neysluverðsvísitölu. Hækkun núna er 5% miðað við neysluverðsvísitölu maí 2007 sem er 268,7.
7.3. Vinnuskólinn – hækkun tímalauna.
Samþykkt að hækka laun 3% frá fyrra ári, samkvæmt samræmi við samninga Launanefndar sveitarfélaga.
8. Fjármál.
8.1. Afskriftir viðskiptakrafna.
Samþykkt að afskrifa viðskiptakröfur að upphæð kr. 53.079.053, er það að stærstum hluta vegna Þór hf.
9. Samningar.
9.1. Verksamningur við BB og syni vegna gatnagerðar 3. áfanga Hjallatanga.
Verksamningur framlagður og staðfestur.
9.2. Verksamningur við Borgarverk vegna jarðvegsframkvæmda í miðbæ.
Verksamningur framlagður og staðfestur.
10. Tillögur.
10.1. Bæjarstjóri leggur til að samningur við Eflingu verði endurnýjaður.
Samþykkt að endurnýja samning á grundvelli eldri samnings.
10.2. Bæjarstjóri leggur til að endurnýjaður verði samningur við Mostra um rekstur tjaldsvæðis.
Samþykkt að endurnýja samning á grundvelli eldri samnings.
10.3. Bæjarstjóri leggur til að upplýsingamiðstöð ferðamála verði staðsett í íþróttamiðstöð.
Samþykkt.
11. Önnur mál.
a. Tillaga frá Elísabetu L. Um að skipulags- og bygginganefnd staðsetji gangbraut við Aðalgötu hjá Leikskólanum.
Samþykkt.
b. Tillaga frá Lárusi um staðsetningu gangbrautar yfir Ásbrú.
Samþykkt að vísa málinu til skipulags- og bygginganefndar, einnig biður bæjarráð nefndina að skoða staðsetningu gangbrauta í bænum.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.21:55
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Til baka