Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 422

Dags. 22.5.2007

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund þriðjudaginn 22. maí 2007 kl. 15:00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:  Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður

                  Gretar D. Pálsson

                  Lárus Á. Hannesson

                  Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                  Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1. Fundargerðir nefnda.

1.1. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 15. maí 2007.

Fundargerð framlögð.

Liður 2 deiliskipulagstillaga lögð fram að nýju af íbúðabyggð við Móholt / Búðanesveg dags. 5.03.2007. Tillagan var í auglýsingu frá 29. mars til 10. maí 2007. Engar athugasemdir bárust. Deiliskipulagstillaga samþykkt.

Liður 3 deiliskipulagstillaga af óverulegri breytingu á deiliskipulagi við Laufásveg nr.  4. Deiliskipulagstillagan samþykkt ásamt umsögn nefndarinnar.

Liður 5 tillaga að lóðarafmörkun vatnstanks Orkuveitu Reykjavíkur við Skólastíg nr. 17.a. Samþykkt að lóð verði hringlaga og nái 1m út fyrir tankinn með aðkomu frá Skólastíg.

Liður 7 staðsetningar á gangbrautum.

Nefndin leggur til að:

a) Gangbrautir og gangbrautamerki verði yfir Aðalgötu við Tjarnarás og við Búðanesveg.

b) Gangbrautir verði yfir Tjarnarás við Tjarnarhólma og við Búðanesveg.

c) Gangbraut verði yfir Búðanesveg við Búðanes.

Bæjarráð samþykkir tillögur a, b, og c., Auk þess samþykkir bæjarráð að

gangbraut verði lögð yfir Ásbrú við Áskinn og Nestún.

Liður 9 Pétur Geirsson óskar eftir að staðsetja undirmerki fyrir Hótel Stykkishólm samkvæmt bréfi dags.7. maí 2007.

Samþykkt að sett sé hefðbundið hótel upplýsingaskilti við gatnamót Aðalgötu og Borgarbrautar.

Liður 10 Björgvin Guðmundsson Hjallatanga nr. 8, óskar eftir að byggja sólstofu sbr.   teikningu frá Sveini Ingólfssyni móttekin dags. 8. maí 2007. Stærðir: 12 m2, 29m3.

Erindi samþykkt.

Liður 11 lagt fram erindi frá Þorgrími Kristinssyni og Gerði H. Sigurðardóttur,   

Vikurflöt nr. 7 um endurbætur á lóð samkvæmt teikningu. Skriflegt samþykki lóðarhafa   Víkurflatar nr. 9 liggur fyrir.

Erindi samþykkt.

 

Fundargerð samþykkt.

1.2. Fræðslunefnd, dags. 7.5.2007.

Fundargerð framlögð og samþykkt. Bæjaráð óskar eftir greinargerð um námsferðir kennara   og starfsfólks við Grunnskólans s.l. vetur og hvernig ferðirnar nýtast fyrir starf skólans.

1.3. Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 7.5.2007.

Fundargerð framlögð og samþykkt. Liður 2 samþykkt að hækka skólagjöld um 3%  fyrir skólaárið 2007-2008.

1.4. Stjórn Dvalarheimilisins, dags. 2.5.2007.

Fundargerð framlögð og samþykkt.

1.5. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 21. maí 2007.

Fundargerð framlögð.

Liður 2.a)  Gunnar Már Gestsson og Eyrún María Guðmundsdóttir sækja um að byggja við húsið  að Silfurgötu nr. 32, samkvæmt teikningum frá Hjörleifi Sigurþórssyni dags. 26.03.2007. Erindið var grenndarkynnt fyrir eigendum húsa við Silfurgötu 20 og 24 A til og með 21. maí. Engar athugasemdir hafa borist.

Erindið er samþykkt með fyrirvara um að ekki berist athugasemdir næstu  daga sem eru  póstlagðar þann 21. maí.

Fundargerð samþykkt.

           

2. Aðrar fundagerðir.

2.1.  Fundargerð Sorpurðunar Vesturlands hf., dags. 16.5.2007 (www.ssv.is).

Fundargerð framlögð.

2.2.  76. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 20.3.2007 (www.breidafjordur.is).

Fundargerð framlögð.

2.3.  77. Fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 17.4.2007 (www.breidafjordur.is).

Fundargerð framlögð.

 

3. Samningar.

3.1. Samningur við Mostra um rekstur tjaldsvæðisins, dags. 9.5.2007.

Samningur framlagður og samþykktur.

 

4. Fundaboð.

4.1. Aðlafundarboð Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, haldinn að Hótel Glym

Hvalfjarðarsveit þann 22.5.2007, kl. 13.30.

Framlagt.

4.2. Aðalfundarboð Byggðasamlags Snæfellinga um rekstur félags- og skólaþjónustu, haldinn á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar þann 23.5.2007, kl. 20.30.

Framlagt. Bæjarstjóra falið að fara með umboð Stykkishólmsbæjar á fundinum.

 

5. Erindi til kynningar.

5.1. Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2006.

Framlagt.

5.2. Bréf Umhverfisráðuneytisins, dags. 7.5.2007 varðandi breytingu á skipulagi vegna niðurdælingarholu í Ögri.

Framlagt.

5.3. Samgönguáætlun 2007-2010.

Framlagt.

 

6. Erindi til afgreiðslu.

6.1. Bréf Landverndar, dags. 9.5.2007 vegna uppsetningu flaggstanga við grunnskólann og leikskólann til að flagga Grænfánanum.

Bæjarstjóra falið að afgreiða málið í samráði við skólastjóra grunn- og leikskóla.

6.2. Skjalstjórnunarkerfi.  Tilboð í skjalastjórnunarkerfið One System.

Samþykkt að kaupa skjalastjórnunarkerfið One System af One System Ísland ehf.

6.3. Bréf Pósts- og fjarskiptastofnunar dag. 10.5.2007, vegna umsagna um reglur.

Bæjarráð hefur engar athugasemdir við reglur um aukið öryggi í fjarskiptum.

6.4. Reglur um skilti.  Frestað frá bæjarráðsfundi 3.5.2007.

Drög að reglum um staðsetningu skilta í Stykkishólmi samþykkt með ágerðum breytingum.

 

7. Styrkbeiðnir.

7.1. KKD Snæfells sækir um styrk, dags. 12.4.2007, vegna keppnistímabilsins 2006-2007.

Samþykkt að bæjarráð boði stjórn KKD Snæfells á fund.

7.2. All Senses hópurinn sækir um styrk, dags. 18.5.2007 til gerðar stuttmyndar um Vesturland.

Samþykkt að veita All Senses styrk að upphæð 200.000 kr., til gerðar stuttmyndar um Vesturland.

7.3. Umsjónarnefnd um framkvæmd minkaátaks sækir um styrk, dags. 30.4.2007, vegna átaksins um útrýmingu minks.

Samþykkt að vísa erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2008.

7.4. Skólahreysti sækir um styrk, vegna Skólahreysti 2007.

Bæjarráð sér sér ekki fært á að veita Skólahreysti styrk.

7.5. Helga Hjördís Björgvinsdóttir sækir um styrk, dags. 7.5.2007 til að leika með U16 landsliðinu á Norðurlandamóti Unglingalandsliða í körfuknattleik.

Samþykkt að styrkja Helgu Hjördísi Björgvinsdóttur að upphæð 20.000 kr.

7.6. Egill Egilsson sækir um styrk til að leika með U16 landsliðinu á Norðurlandamóti Unglingalandsliða í körfuknattleik.

Samþykkt að styrkja Egil Egilsson að upphæð 20.000 kr. Bæjarráð óskar Agli innilega til hamingju með Norðurlandameistaratitilinn.

7.7. Atli Rafn Hreinsson sækir um styrk til að leika með U18 landsliðinu á Norðurlandamóti Unglingalandsliða í körfuknattleik.

Samþykkt að styrkja Atla Rafni Hreinsson að upphæð 20.000 kr.

 

8. Önnur mál.

a. Í dag eru tuttugu ára afmæli Stykkishólmsbæjar.

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.16:45

Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 



Til baka
Á næstunni
25. maí 2012
30. maí 2012
29. júní 2012
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré