Bæjarráð, fundur nr. 423
Dags. 8.6.2007
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 7. júní 2007 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Elísabet L. Björgvinsdóttir, formaður
Gretar D. Pálsson
Berglind Axelsdóttir
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Arna Sædal Andrésdóttir, fundarritari.
Elísabet L. Björgvinsdóttir setti fund og fól bæjarstjóra fundarstjórn.
Samþykkt var tillaga um breytingu á dagskrá. Byrjað var á lið nr. 8.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1.Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 5.6.2007.
Liður 2 Skipavík/Kristján Gunnlaugsson sækir um að byggja sumarhús við Arnarborg nr. 3, samkvæmt teikningum frá Glámu Kím dags. 15.03.2007.
Samþykkt samhljóða.
Liður 3 Björgvin Ólafsson Laufásvegi nr. 4 sækir um að byggja ofan á húsið samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu E.K.
Samþykkt samhljóða.
Liður 4 Ævar Gestsson/heimagisting Ölmu sækir um að staðsetja upplýsingaskilti fyrir gistingu á ljósastaurum við Aðalgötu/Nesveg, Nesveg/Lágholt, Lágholt/Sundabakka.
Samþykkt samhljóða.
Liður 5 Lögð fram tillaga frá Róberti Jörgensen um lóðarfrágang og staðsetningu á garðhýsi við Tjarnarás nr. 3.
Samþykkt samhljóða.
Liður 7 Óleyfisbygging við Ásklif nr. 10. Nefndin fer fram á að byggingarframkvæmdir við Ásklif nr. 10 verði stöðvaðar þar til tilskilin leyfi hafa verið gefin út.
Samþykkt samhljóða.
Liður 8 Stykkishólmsbær/upplýsingamiðstöð sækir um að staðsetja upplýsingaskilti með i merkinu á ljósastaura við Aðalgötu og Borgarbraut.
Samþykkt samhljóða.
Liður 9 Kristján Bentsson og Eydís Jónsdóttir Víkurflöt nr. 3 óska eftir að byggja bílskúr með bárujárnsklæðningu og klæða íbúðarhús með bárujárni samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu E.K. dags. Maí ’07.
Samþykkt með fyrirvara um fullnægjandi brunavarnir.
Liður 10 Lagt fram bréf frá Grétu Sigurðardóttur um fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð við Laufásveg nr. 1. Einnig ósk um minnkun á lóð sem nemur göngustíg og hann lagfærður.
Samþykkt samhljóða.
Liður 12 Lagðar fram teikningar frá Arkitektastofu Benjamíns Magnússonar dags. 1.06.2007, um að breyta innkeyrsluhurð í vegg og glugga ásamt breytingum innanhúss á flugstöð sem stendur á flugvallarsvæði.
Samþykkt samhljóða.
Liður 13 Magda Kulinska Borgarflöt nr. 7 sækir um að byggja við húsið samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu E.K., dags. maí 2007.
Samþykkt samhljóða.
Liður 15Önnur mál.
Nefndin leggur til að farið verði í viðhald á göngustígum og tröppum í Stykkishólmsbæ.
Samþykkt samhljóða að byggingarfulltrúi geri tillögur um viðhald á göngustígum og tröppum.
1.2.Hafnarstjórn, dags. 5.6.2007.
Liður 1 Gjaldskrárhækkun samþykkt. Fundargerð framlögð og samþykkt samhljóða.
1.3.Húsnæðisnefnd, dags. 5.6.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt samhljóða.
1.4. Umhverfisnefnd, dags. 21. maí 2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt samhljóða.
2. Aðrar fundagerðir.
2.1. 78. fundur Breiðafjarðarnefndar, dags. 7.5.2007 (www.breidafjordur.is).
Fundargerð framlögð.
2.2.Aðalfundur FSS, dags. 30.5.2007.
Fundargerð framlögð.
2.3.Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, dags. 22.5.2007.
Fundargerð framlögð.
2.4.71. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands, dags. 22.5.2007.
Fundargerð framlögð.
3. Lóðaumsóknir
3.1.Símon Sturluson sækir um lóð við Laufásveg 17, dags. 23. maí 2007.
Lóðarumsókn samþykkt samhljóða.
4. Ársskýrslur.
4.1. Ársreikningur og skýrsla forstöðumanns FSS 2006.
Framlagður.
4.2. Skýrsla stjórnar 2006/2007 og ársreikningur Eflingar 2006.
Framlögð.
4.3. Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2006.
Framlögð.
5. Tilnefningar.
5.1. Tilnefning í félagsmálanefnd Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í stað Öldu Baldursdóttur.
Helga Guðmundsdóttir verður aðalmaður og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir varamaður.
Samþykkt samhljóða.
6. Erindi til umsagnar.
6.1. Bréf félagsmálaráðuneytis, dags. 16.5.2007 vegna umsagnar um tillögu að frumvarpi til laga um réttindi og skyldur eigenda og leigjenda lóða í skipulagðri frístundabyggð. www.felagsmalaraduneyti.is/umraedan/umsogn/3272.
Framlagt.
7. Erindi til afgreiðslu.
7.1. Bréf KKÍ dags. 4.6.2007 vegna æfingabúða fyrir unga og efnilega leikmenn.
Samþykkt samhljóða að Berglind Gunnarsdóttir verði á launaskrá vinnuskólans á meðan hún stundar æfingabúðir fyrir unga og efnilega leikmenn á vegum KKÍ.
7.2. Bréf GSS dags. 4.6.2007 vegna starfsdeildar og bréf dags. 23.5.2007, trúnaðarmál.
Erindi frestað og bæjarstjóra falið að vinna með málið.
7.3. Kauptilboð vegna Bókhlöðustígs 17 dags. 21.5.2007 v/forkaupsréttar.
Samþykkt samhljóða að falla frá forkaupsrétti.
7.4. Bréf Símonar Sturlusonar f.h. Íslenskrar bláskeljar dags. 20.5.2007 vegna leyfis til að leggja kræklingalínur.
Samþykkt samhljóða af hálfu Stykkishólmsbæjar að veita leyfi til að leggja kræklingalínur (lirfusafnara) í sundinu milli flugvallarsvæðisins annars vegar og Lundakletts og Siglugríms hinsvegar.
7.5. Bréf Heilbrigðiseftirlits Vesturlands dags. 31.5.2007 v/endurskoðunar fjárhagsáætlunar árið 2007.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við hækkun á sýnatökugjaldi og hækkunar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2007.
7.6. Tilboð í geymsluhúsnæði frá Skipavík og Hamraafli.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjóri fari yfir tilboðin og komi með tillögur til bæjarstjórnar.
7.7. Bréf Erlu Harðardóttur og Jóseps Ó. Blöndal dags. 21.5.2007 vegna greiðslu á kostnaði tónlistarnáms Sigurbjargar Maríu Jósepsdóttur.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
7.8. Bréf Sambands íslenskar sveitafélaga, dags. 9. 5.2007 vegna viðbragðsáætlunar vegna sorphirðu komi til heimsfaraldurs inflúensu.
Bæjarstjóra falið að kalla eftir viðbragðsáætlun frá samningsaðila Stykkishólmsbæjar um sorphirðu.
7.9. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 31.5.2007 vegna nýrra laga um gatnagerðagjöld.
Bæjarstóra falið að vinna áfram að málinu.
7.10. Bréf sjávarútvegsráðuneytisins, dags. 21.5.2007 vegna úthlutunar byggðakvóta fiskveiðiárið 2006/2007.
Tillaga um skiptingu byggðakvóta
Undirrituð leggur það til að einn þriðji byggðakvóta fari til að bæta þeim sem höfðu aflahlutdeild í hörpuskel upp samdrátt vegna banns við skelfiskveiðum á Breiðafirði.
Tveir þriðju byggðakvótans fari til þeirra báta sem hafa landað í Stykkishólmshöfn frá og með upphafi kvótaárs 2006 og fram til 6. júní 2007 og skiptist í jöfnu hlutfalli við landaðan afla í Stykkishólmshöfn frá og með upphafi kvótaárs 2006 og fram til 6. júní 2007.
Útgerðum sem úthlutað er byggðakvóta er skylt að leggja til aflaheimildir að lágmarki til jafns við úthlutaðan byggðakvóta sem einnig verði unninn í fiskvinnslu í bæjarfélaginu.
Berglind Axelsdóttir
Tillaga felld með tveimur atkvæðum gegn einu.
Tillaga um úthlutun byggðakvóta
Byggðakvótanum er úthlutað sbr. 4. gr. B. reglugerðar nr. 440/2007, þ.e. úthlutun vegna samdráttar í vinnslu á skel. Undirrituð leggja til að einungis þeir aðilar sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti verði úthlutað hlutdeild í byggðakvótanum en það eru bátar þeirra útgerða sem eiga aflahlutdeild í hörpuskel þann 1. september 2006 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum. Óskað er eftir þessum sérstöku skilyrðum á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 439 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007.
Gretar D. Pálsson
Elísabet L. Björgvinsdóttir
Tillagan samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.
7.11. Sölutilboð vegna geymsluhúsnæðis við Aðalgötu 6c.
Samþykkt samhljóða að kaupa Aðalgötu 6c á 2.500.000.- og auglýsa eignina til sölu í heild sinni og þar með talið hlut Stykkishólmsbæjar til niðurrifs.
7.12. Umsókn Vignis Sveinssonar um launalaust leyfi í eitt ár frá starfi sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.
Afgreiðslu umsóknarinnar vísað til bæjarstjórnar.
8. Styrkbeiðnir.
8.1. Styrkbeiðni KKD Snæfells (frá bæjarráðsfundi nr. 423 þann 22.5.2007).
Daði Sigurþórsson, formaður KKD Snæfells, greindi nánar frá erindi stjórnar.
Samþykkt samhljóða að veita KKD Snæfells 1.000.000.- styrk, tímabilið 2007-2008, með skilyrði um að stjórn Snæfells leggi fram rekstrarreikning á þriggja mánaða fresti.
9. Tillögur.
9.1. Bæjarstjóri leggur til að sala á mat til Grunnskólans verði boðin út þar sem samningur við Hótel Stykkishólm er runninn út.
Samþykkt samhljóða að bjóða út skólamáltíðir.
10. Önnur mál.
10.1 Samþykkt samhljóða að auglýsa stöðu forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar X-ins.
10.2 Minnt er á að á næsta bæjarstjórnarfundi er kosið í ársnefndir og ráð.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19:56
Arna Sædal Andrésdóttir, fundarritari.
Til baka