Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarráð, fundur nr. 424

Dags. 12.7.2007

Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 12. júlí 2007 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:        Ólafur Guðmundsson, formaður

                        Gretar D. Pálsson

                        Berglind Axelsdóttir

                        Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri

                        Þór Örn Jónsson, bæjarritari.

 

 

Gretar D. Pálsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.

 

1.  Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs.

     Ólafur Guðmundsson var kosinn formaður og Gretar D. Pálsson kosinn varaformaður.

2.  Fundargerðir nefnda.

     2.1.Þjónustuhópur aldraðra, dags. 11.6.2007

            Fundargerð framlögð og samþykkt. Samþykkt að vísa hugmynd um starf           öldrunarfulltrúa til stjórnar Dvalarheimils til umsagnar.

     2.2.Safna- og menningarmálanefnd, dags. 12.6.2007

            Fundargerð framlögð og samþykkt.

     2.3.Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 10.7.2007

            Fundargerð framlögð.

      Liður 2 Skipavík ehf / Sævar Harðarson sækir um að endurklæða þak og veggi að       Víkurgötu 2 og hækka mæni á bílskúr um 30 sm.

Erindi samþykkt.

      Liður 3 Unnur Steinsson og Ásgeir Ásgeirsson sækja um að endurnýja og stækka         skjólgirðingu og  pall við Skólastíg nr. 8 í samráði við Jon Nordstein arkitekt.

Erindi samþykkt með fyrirvara um að hæð og útlit verði í samráði við byggingarfulltrúa.

      Liður 4 Kristján Lárentsínusson og Þórhildur Pálsdóttir sækja um að byggja hús            að Hjallatanga 32.

Erindi samþykkt með fyrirvara um að  teikningar verði lagfærðar í samræmi við athugasemdir. 

      Liður 5 f.h. Stykkishólmsbæjar / Hrannar Pétursson sækir um leyfi fyrir             byggingu á        tveimur landsstólpum á hafnarsvæði, samkvæmt teikningum frá         Verkfræðistofu E.K. dags júní 2007.

Erindi samþykkt.

      Liður 6 UMF. Snæfell /Hjörleifur K. Hjörleifsson óskar eftir að staðsetja          flöskugám nálægt bensínstöð samkv. bréfi dags. 9.07.´07.

Samþykkt að veita stöðuleyfi á gám. Staðsetning á gám skal vera ákveðin í samráði við byggingarfulltrúa. Gjöld samþykkt kr.6.000. Samþykkt að veita Snæfell styrk að upphæð kr. 6.000.

      Liður 7 Agnar Svavarsson / Vélsmiðju Agnars óskar eftir að endurnýja             fyrirtækjaskilti sem staðsett er við Nesveg nr. 13 samkvæmt bréfi dags.           8.07.2007.

Erindi samþykkt með fyrirvara á að skilti sé í samræmi við reglugerð um skilti.

      Liður 8 Skipavík /Sævar Harðarson sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi að             Arnarborg nr.2.

Erindi samþykkt.

      Liður 9 Bæring Bjarnar Jónsson f.h. Skipavík, sækir um breytingu á      deiliskipulagi frístundabyggðar við Nesvog samkvæmt skipulagsuppdrætti frá    teiknistofunni Glámu / Kím ´07.

Samþykkt að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga.

      Liður 10 aukin umferð við Bókhlöðustíg.

Samþykkt að sett verði upp botngötumerki við götu og að umferð hópferðabifreiða verði bönnuð.

      Liður 11 Samkeppni um götuheiti á athafnasvæði 2A. Eftirfarandi tillögur bárust:

Arnarvegur, Arnarholt sbr. Arnarborg, Trönuholt, Skreiðaholt, Trönuendi sbr. Hamraendi, Hamraborg sbr. Hamraendi og Birgisborg, Athafnabraut og Trönuslóð, nafnið vísar til þess að á þessum slóðum voru trönur eða hjallar.

Samþykkt að leggja til nafnið Trönuslóð.

Liður 12.c  Ásgeir Gunnar leggur til að skoðaður verði  möguleiki á að hafa íbúðir fyrir aldraða á efri hæð lóðar nr.Aa við Laufásveg á deiliskipulagi miðbæjar. Samþykkt og skipulags-og bygginganefnd vinni tillöguna áfram.

Liður 12.d  samþykkt að birt verði auglýsing um leyfisskyldar framkvæmdir í bænum. 

 

3. Lóðaumsóknir

3.1.Lóðir við Móholt. 

Umsóknafrestur rann út þann 10.07.07.

            Hjallatangi 1

            Skipavík ehf. 700175-0149

           

            Hjallatangi 3

            Skipavík ehf. 700175-0149

 

            Móholt 2

            Skipavík ehf. 700175-0149

 

            Móholt 4

            Skipavík ehf. 700175-0149

 

            Móholt 6

            Skipavík ehf. 700175-0149

 

            Móholt 8

            Skipavík ehf. 700175-0149

 

            Móholt 10

            Skipavík ehf. 700175-0149

 

            Móholt 12

            Skipavík ehf. 700175-0149

 

            Skipavík ehf. er úthlutað lóðunum Hjallatanga 1 og 3., einnig er Skipavík ehf.     úthlutað lóðunum við Móholt 2,4,6,8,10 og 12.

 

            Móholt 14-16

            Krýna ehf. 450799-2389

           

            Samþykkt að úthluta Krýnu ehf. lóðina við Móholt 14 og16.

 

 

3.2.Lóð við Hamraenda 4. 

Umsóknarfrestur rann út þann 26.06.07.

1.      Hamraafl ehf. 570506-0480

2.      STH steypa 600307-0610

3.      Sumarbústaðir ehf. 470103-3880

4.      Jónatan Sigtryggsson 081148-2369

5.      Halldór Lúðvígsson 141163-4859

6.      Trésmiðjan Þytur 630106-0870

7.      Þórarinn Sighvatsson 010571-3679

8.      Tryggvi Tryggvason 210549-3319

9.      Þórður Sighvatsson 200578-5389

10.  Elísabet Sigtryggsdóttir 150850-3049

11.  Kristinn Már Pálsson 130476-3259

Dregið var um hver fengi lóðina. Út var dregin Jónatan Sigtryggsson fyrir fund  að viðstöddum umsækjendum.

Samþykkta að úthluta Jónatani Sigtryggssyni lóðina við Hamraenda 4.

4.  Ársskýrslur.

4.1.    Árskýrsla Brunamálastofnunar fyrir starfsárið 2006.

          Ársskýrsla framlögð.

4.2.    Árskýrsla Byggðastofnunar fyrir árið 2006.

          Ársskýrsla framlögð.

 

5.  Lántaka.

5.1.    Lán frá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 45.000.000 kr. til 10 ára. Vextir eru verðtryggðir 6,05% árlega, fastir allan lánstímann.

      Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í    tekjum sveitarfélagsins:

 

   Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð            45.000.000 kr. með 6,05% vöxtum til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála        lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur          sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er             lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir í miðbæ Stykkishólms, sbr. 2. gr. laga            um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.

 

   Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð        til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð             sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út,       og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku    þessari.

 

6.  Erindi til kynningar.

6.1.    Bréf Berglindar Gunnarsdóttur dags. í júní 2007, þar sem áður veittur styrkur til þátttöku í æfingabúðum er afþakkaður.

          Bréf framlagt.

6.2.    Bréf Sambandsins dags. 11.06.07, vegna hópferðar á Opna daga sveitarstjórnarvettvangs ESB í haust.

          Bréf framlagt.

6.3.    Bréf sambandsins dags. 26.06.07, vegna námskeiðs í samningsstjórnun.

          Bréf framlagt.

6.4.    Bréf frá Umhverfisstofnun dags. 09.07.07, eftirlit Umhverfisstofnunar með meðhöndlun úrgangs í Stykkishólmsbæ.

          Bréf framlagt.

 

7.  Erindi til afgreiðslu.

7.1.    Bréf félags áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum dags. 24. 06.07.

          Samþykkt að verða við erindi áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum.

7.2.    Bréf íbúa við Silfurgötu, Lágholt og Sundabakka dags. 19.06.07. varðandi útbreiðslu Lúpínu í Stykkishólmi og áhrif hennar á plöntulíf.

          Samþykkt að fá Náttúrustofu Vesturlands til að meta útbreiðslu Lúpínu í Stykkishólmi og áhrif hennar á plöntulíf. Einnig er beðið um hver áhrif útbreiðslu njóla og túnfífla er í landi Stykkishólms á plöntulíf.

7.3.       Geymsluhúsnæði frá bæjarráðsfundi nr. 423

Samþykkt að ganga til samninga við Hamraafl ehf. um eitt bil í Hamraendum 3. Berglind sat hjá.

 

8.         Samningar.

          8.1.    Verksamningur við Grástein dags. 27.06.07. vegna yfirborðsfrágangs í miðbæ.

          Samningur framlagður og samþykktur.

 

9.         Umsóknir um starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar.

         Umsækjendur:

         Ásgeir Héðinn Guðmundsson,

         Guðrún Svana Pétursdóttir,

         Heimir Laxdal Jóhannsson,

         Jóhann Garðar Eggertsson,

         Magnús Valdimar Vésteinsson,

         Rafn Júlíus Rafnsson.

Samþykkt að fela bæjarstjóra að ræða við umsækjendur og koma með tillögu á næsta fund.

10.       Umsóknir um starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar.

                     Umsækjendur:

         Guðrún Svana Pétursdóttir,

         Heimir Laxdal Jóhannsson,

         Helena Rut Hinriksdóttir og Erna Rut Kristjánsdóttir sækja sameiginlega um       starfið.

Samþykkt að fela bæjarstjóra að ræða við umsækjendur og koma með tillögu á næsta fund.      

11.       Styrkbeiðni.

            Bréf Aftanskins dags. 05.07.07 þar sem óskað er eftir styrk til sumarferðar.

            Samþykkt að veita Aftanskin styrk að upphæð 100.000 kr.

 

12.       Skýrsla SSV Þróun og ráðgjöf um staðbundin efnahagsleg áhrif 30%

          kvótaskerðingar á einstök sveitarfélög Vesturlands, dags. í júlí 2007.

Skýrsla framlögð, bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með vel unna skýrslu og er höfundi hennar þakkað fyrir vel unnið starf.

 

Bókun bæjarráðs.

 

            Nú liggur fyrir að þorskafli verði skorinn niður um þriðjung þ.e. í 130.000 tonn úr           193.000 tonnum. Í Stykkishólmsbæ er heildarþorskkvóti 2.500 tonn og      kemur   því til með að    skerðast um 800 tonn. Áætluð staðbundin efnahagsleg áhrif           í Stykkishólmi munu nema         um 350 m.kr. við þessa skerðingu, skv. skýrslu SSV     þróun & ráðgjöf dags. í júlí 2007. 

            Tekjuskerðingin sem núna blasir við vegna skerðingar fiskveiðiheimilda er áfall    fyrir sveitarfélagið til viðbótar við það að árið 2003 varð Stykkishólmur fyrir         verulegu áfalli vegna hruns áhörpudiskstofninum. Ekki verður séð að þær             mótvægisaðgerðir sem ríkisstjórnin hefur lagt til komi til móts við þá       tekjuskerðingu sem sveitarfélagið og aðilar             innan þess verða fyrir. 

            Bæjarráð Stykkishólmsbæjar skorar á ríkisstjórn Íslands að koma til móts við    tekjuskerðingu sveitarfélaga með raunhæfum mótvægisaðgerðum og verði það     gert í samvinnu við hlutaðeigandi sveitarfélög.

 

13.       Tillögur

            Tillaga frá Gretari D. Pálssyni að gengið verði til samninga við Kaupþing                        um kaup á húsnæði bankans við Aðalgötu 10.

            Samþykkt að ganga til samninga við Kaupþing um kaup á húsnæði bankans við Aðalgötu 10. Berglind sat hjá.

 

14.       Nafngift á götunni við Móholt.

            Samþykkt að gatan heiti Móholt.

 

 

15.       Önnur mál.

            Enginn önnur mál.

           

 

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 18:40

Þór Örn Jónsson, bæjarritari.



Til baka
Á næstunni
25. maí 2012
30. maí 2012
29. júní 2012
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré