Bæjarráð, fundur nr. 425
Dags. 19.7.2007
Bæjarráð Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 19. júlí 2007 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Ólafur Guðmundsson, formaður
Gretar D. Pálsson
Berglind Axelsdóttir
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.
Ólafur Guðmundsson setti fund og fól Erlu bæjarstjóra fundarstjórn.
1. Fundargerðir nefnda.
1.1.Þjónustuhópur aldraðra, dags. 11.7.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2. Lóðaumsóknir
2.1.Lóðir við Skúlagötu 23.
Umsóknarfrestur rann út þann 17.07.2007.
Umsækjendur um lóðina:
Skúlagata 23
Sigurður Andrésson kt. 131167-5559
Guðbjörn Þór Ævarsson kt. 211056-7899
Ólafur Viggósson kt. 050260-4969
Theodóra Þorsteinsdóttir kt. 020969-5479
Narfeyri ehf. kt. 440696-2609
Auður Hinriksdóttir kt. 311087-3209
Sigmar Logi Hinriksson kt. 060283-5089
Arnþór I. Hinriksson kt. 200975-4139
Ritawati Effendy kt. 220971-2449
Hanna María Björgvinsdóttir kt. 290157-2779
Hinrik Axelsson kt. 270354-2709
Fyrir fund var dregið um lóðina að viðstöddum umsækjendum. Út var dregin Auður Hinriksdóttir.
Samþykkta að úthluta Auði Hinriksdóttur lóðina við Skúlagötu 23.
2.2.Lóðir við Skúlagötu 25.
Umsóknarfrestur rann út þann 17.07.2007.
Skúlagata 25
Umsækjendur um lóðina:
Sigurður Andrésson kt. 131167-5559
Guðbjörn Þór Ævarsson kt. 211056-7899
Ólafur Viggósson kt. 050260-4969
Theodóra Þorsteinsdóttir kt. 020969-5479
Narfeyri ehf. kt. 440696-2609
Fyrir fund var dregið um lóðina að viðstöddum umsækjendum. Út var dregin Guðbjörn Þór Ævarsson.
Samþykkta að úthluta Guðbirni Þór Ævarssyni lóð við Skúlagötu 25.
2.3.Bergþór Smárason sækir um lóð við Hjallatanga 48.
Samþykkt að úthluta Bergþóri Smárasyni lóð við Hjallatanga 48.
2.4. Tindur ehf. sækir um lóð við Nesveg.
Umsóknarfrestur rann út þann 17.07. 2007.
Samþykkt að úthluta Tindi ehf. lóð við Nesveg.
3. Fjármál.
3.1.Sex mánaða uppgjör Stykkishólmsbæjar 2007.
Sex mánaða uppgjör framlagt. Þór Örn Jónsson bæjarritari gerði grein fyrir 6 mánaða uppgjöri Stykkishólmsbæjar.
4. Erindi til kynningar.
4.1. Bréf Umhverfisráðuneytis, dags. 29. júní 2007, um umhverfisþing 2007.
Bréf Umhverfisráðuneytis framlagt.
4.2. Bréf SSV, dags. 3. júlí 2007, um utanlandsferð til að til að kynna sér byggða- og sveitastjórnarmál.
Bréf SSV framlagt.
4.3. Bréf frá Umhverfisstofnun, dags. 5. júlí 2007, um byggingu frístundahúss í Skáley.
Bréf Umhverfisstofnunar framlagt.
4.4. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 9. júlí 2007, um friðlýsingu æðavarps.
Bréf Sýslumanns Snæfellinga framlagt.
5. Erindi til afgreiðslu
5.1. Verðmat Áskinn 2a.
Samþykkt að setja Áskinn 2a á sölu.
6. Umsóknir um starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar.
Umsækjendur:
Ásgeir Héðinn Guðmundsson,
Guðrún Svana Pétursdóttir,
Heimir Laxdal Jóhannsson,
Jóhann Garðar Eggertsson,
Magnús Valdimar Vésteinsson,
Rafn Júlíus Rafnsson.
Símon Bergsson Hjaltalín
Samþykkt að ganga til samninga við Rafn Júlíus Rafnsson í starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar til eins árs frá 1. september 2007.
7. Umsóknir um starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar.
Umsækjendur:
Guðrún Svana Pétursdóttir,
Heimir Laxdal Jóhannsson,
Helena Rut Hinriksdóttir og Erna Rut Kristjánsdóttir sækja sameiginlega um starfið.
María Kúld Heimisdóttir og Matthías Arnar Þorgrímsson sækja sameiginlega um starfið.
Samþykkt að ganga til samninga við Helenu Rut Hinriksdóttur og Ernu Rut Kristjánsdóttur um starf forstöðumanna æskulýðsmiðstöðvar.
8. Önnur mál.
a. Tillaga um úthlutun byggðakvóta
Byggðakvótanum er úthlutað sbr. 4. gr. B. reglugerðar nr. 440/2007, þ.e. úthlutun vegna samdráttar í vinnslu á skel. Undirrituð leggja til að einungis þeir aðilar sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti verði úthlutað hlutdeild í byggðakvótanum en það eru bátar þeirra útgerða sem eiga aflahlutdeild í hörpuskel þann 1. september 2006 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum. Óskað er eftir þessum sérstöku skilyrðum á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 439 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007.
Ofangreind tillaga var samþykkt á 225. bæjarstjórnarfundi þann 21.júní 2007.
Tillagan er samhljóma tillögu síðasta árs og ætlun hennar að hafa sömu áhrif á úthlutun byggðakvóta og þá.
Við úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 leggur Fiskistofa annað mat á tillöguna og beitir öðrum aðferðum en áður hefur verið gert.
Því vill bæjarráð Stykkishólmsbæjar árétta eftirfarandi:
Byggðakvótanum er úthlutað sbr. 4. gr. B. reglugerðar nr. 440/2007, þ.e. úthlutun vegna samdráttar í vinnslu á skel.Undirrituð leggja til að einungis þeir aðilar sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti verði úthlutað hlutdeild í byggðakvótanum en það eru bátar þeirra útgerða sem eiga aflahlutdeild í hörpuskel í Breiðafirði þann 1. september 2006 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum og aðilar sem keypt hafa báta eða útgerðir sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum. Byggðakvóta verði úthlutað í hlutfalli við aflahlutdeild í hörpusskel í Breiðafirði þann 1.9. 2006.
Óskað er eftir þessum sérstöku skilyrðum á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 439 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007.
Samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 17:40
Þór Örn Jónsson, bæjarritari.
Til baka