Bæjarstjórn, fundur nr. 226
Dags. 30.8.2007
Bæjarstjórn Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 30. ágúst 2007 kl. 17.00 í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar GDP
Elísabet Lára Björgvinsdóttir, ELB
Ólafur Guðmundsson, ÓG
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, EF
Berglind Axelsdóttir, BA
Helga Guðmundsdóttir, varamaður, HG
Davíð Sveinsson, DS
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Forseti bæjarstjórnar setti fund og stýrði.
1. Fundargerðir bæjarráðs.
1.1. Fundargerð bæjarráðs nr. 424, dags. 12.07.2007.
Liður 1. Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs.
Ólafur Guðmundsson var kosinn formaður og
Gretar D. Pálsson kosinn varaformaður.
Liður 2. Fundargerðir nefnda.
Liður 2.1. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 11.6.2007
Fundargerð framlögð. Samþykkt að vísa hugmynd um
starf öldrunarfulltrúa til stjórnar Dvalarheimils til umsagnar.
Liður 2.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 10.7.2007
Fundargerð framlögð.
Liður 2 Skipavík ehf / Sævar Harðarson sækir um að
endurklæða þak og veggi að Víkurgötu 2 og hækka mæni
á bílskúr um 30 sm.
Erindi samþykkt.
Liður 3 Unnur Steinsson og Ásgeir Ásgeirsson sækja um
að endurnýja og stækka skjólgirðingu og pall við
Skólastíg nr. 8 í samráði við Jon Nordstein arkitekt.
Erindi samþykkt með fyrirvara um að hæð og útlit verði
í samráði við byggingarfulltrúa.
Liður 4 Kristján Lárentsínusson og Þórhildur Pálsdóttir
sækja um að byggja hús að Hjallatanga 32.
Erindi samþykkt með fyrirvara um að teikningar verði
lagfærðar í samræmi við athugasemdir.
Liður 5 f.h. Stykkishólmsbæjar / Hrannar Pétursson
sækir um leyfi fyrir byggingu á tveimur landsstólpum
á hafnarsvæði, samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu
E.K. dags júní 2007.
Erindi samþykkt.
Liður 6 UMF. Snæfell /Hjörleifur K. Hjörleifsson óskar
eftir að staðsetja flöskugám nálægt bensínstöð
samkv. bréfi dags. 9.07.´07.
Samþykkt að veita stöðuleyfi á gám. Staðsetning á gám
skal vera ákveðin í samráði við byggingarfulltrúa.
Gjöld samþykkt kr.6.000. Samþykkt að veita Snæfell
styrk að upphæð kr. 6.000.
Liður 7 Agnar Svavarsson / Vélsmiðju Agnars óskar
eftir að endurnýja fyrirtækjaskilti sem staðsett er við
Nesveg nr. 13 samkvæmt bréfi dags. 8.07.2007.
Erindi samþykkt með fyrirvara á að skilti sé í samræmi
við reglugerð um skilti.
Liður 8 Skipavík /Sævar Harðarson sækir um
byggingarleyfi fyrir sumarhúsi að Arnarborg nr.2.
Erindi samþykkt. Davíð sat hjá.
Liður 9 Bæring Bjarnar Jónsson f.h. Skipavík, sækir
um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við
Nesvog samkvæmt skipulagsuppdrætti frá
teiknistofunni Glámu / Kím ´07.
Samþykkt að grenndarkynna óverulega breytingu
á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 26. gr. skipulags-
og byggingarlaga.
Liður 10 aukin umferð við Bókhlöðustíg.
Samþykkt að sett verði upp botngötumerki við götu
og að umferð hópferðabifreiða verði bönnuð.
Liður 11 Samkeppni um götuheiti á athafnasvæði 2A.
Samþykkt að nefna götuna Trönuslóð.
Liður 12.c Ásgeir Gunnar leggur til að skoðaður verði
möguleiki á að hafa íbúðir fyrir aldraða á efri hæð
lóðar nr.Aa við Laufásveg á deiliskipulagi miðbæjar.
Samþykkt og að skipulags-og bygginganefnd
vinni tillöguna áfram.
Liður 12.dsamþykkt að birt verði auglýsing um
leyfisskyldar framkvæmdir í bænum.
Liður 3. Lóðaumsóknir
3.1. Lóðir við Móholt.
Skipavík ehf. er úthlutað lóðunum Hjallatanga 1 og 3., einnig er Skipavík ehf. úthlutað lóðunum við Móholt 2,4,6,8,10 og 12.
Samþykkt að úthluta Krýnu ehf. lóðina við Móholt 14 og16.
Liður 3.2. Lóð við Hamraenda 4.
Samþykkt að úthluta Jónatani Sigtryggssyni lóðina við Hamraenda 4.
Liður 5. Lántaka.
5.1. Lán frá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 45.000.000
kr. til 10 ára. Vextir eru verðtryggðir 6,05% árlega, fastir
allan lánstímann.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem
tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 45.000.000 kr. með 6,05% vöxtum
til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar
sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga
nr. 45/1998. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir í miðbæ Stykkishólms, sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.
afnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Liður 7. Erindi til afgreiðslu.
Liður 7.1. Bréf félags áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum dags. 24. 06.07.
Samþykkt að verða við erindi áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum.
Liður 7.2. Bréf íbúa við Silfurgötu, Lágholt og Sundabakka dags. 19.06.07. varðandi útbreiðslu Lúpínu í Stykkishólmi og áhrif hennar á plöntulíf.
Samþykkt að fá Náttúrustofu Vesturlands til að meta útbreiðslu Lúpínu í Stykkishólmi og áhrif hennar á plöntulíf. Einnig er beðið um hver áhrif útbreiðslu njóla, túnfífla og hvanna er í landi Stykkishólms á plöntulíf.
Til máls tóku: EF
Liður 7.3. Geymsluhúsnæði frá bæjarráðsfundi nr. 423
Samþykkt að ganga til samninga við Hamraafl ehf. um eitt bil í Hamraendum 3., með fjórum atkvæðum þrír sátu hjá.
Liður 8. Samningar.
Liður 8.1. Verksamningur við Grástein dags. 27.06.07. vegna yfirborðsfrágangs í miðbæ.
Samningur framlagður og samþykktur.
Til máls tóku: EF og DS
Liður 9. Umsóknir um starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar.
Samþykkt að fela bæjarstjóra að ræða við umsækjendur og koma með tillögu á næsta fund. Davíð sat hjá.
Liður 10. Umsóknir um starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar.
Samþykkt að fela bæjarstjóra að ræða við umsækjendur og koma með tillögu á næsta fund.
Liður 11. Styrkbeiðni.
Bréf Aftanskins dags. 05.07.07 þar sem óskað er eftir styrk til sumarferðar.
Samþykkt að veita Aftanskin styrk að upphæð 100.000 kr.
Liður 12. Skýrsla SSV Þróun og ráðgjöf um staðbundin efnahagsleg áhrif 30% kvótaskerðingar á einstök sveitarfélög Vesturlands, dags. í júlí 2007.
Skýrsla framlögð, bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með vel unna skýrslu og er höfundi hennar þakkað fyrir vel unnið starf.
Bókun bæjarráðs.
Nú liggur fyrir að þorskafli verði skorinn niður um þriðjung þ.e. í 130.000 tonn úr 193.000 tonnum. Í Stykkishólmsbæ er heildarþorskkvóti 2.500 tonn og kemur því til með að skerðast um 800 tonn. Áætluð staðbundin efnahagsleg áhrif í Stykkishólmi munu nema um 350 m.kr. við þessa skerðingu, skv. skýrslu SSV þróun & ráðgjöf dags. í júlí 2007.
Tekjuskerðingin sem núna blasir við vegna skerðingar fiskveiðiheimilda er áfall fyrir sveitarfélagið til viðbótar við það að árið 2003 varð Stykkishólmur fyrir verulegu áfalli vegna hruns áhörpudiskstofninum. Ekki verður séð að þær mótvægisaðgerðir sem ríkisstjórnin hefur lagt til komi til móts við þá tekjuskerðingu sem sveitarfélagið og aðilar innan þess verða fyrir.
Bæjarráð Stykkishólmsbæjar skorar á ríkisstjórn Íslands að koma til móts við tekjuskerðingu sveitarfélaga með raunhæfum mótvægisaðgerðum og verði það gert í samvinnu við hlutaðeigandi sveitarfélög.
Liður 13. Tillögur.
Tillaga frá Gretari D. Pálssyni að gengið verði til samninga við Kaupþing um kaup á húsnæði bankans við Aðalgötu 10.
Samþykkt að ganga til samninga við Kaupþing um kaup á húsnæði bankans við Aðalgötu 10, með sex atkvæðum einn var á móti.
Til máls tóku: HG, DS og GDP
Liður 14. Nafngift á götunni við Móholt.
Samþykkt að gatan heiti Móholt.
Fundargerð samþykkt.
1.2. Fundargerð bæjarráðs nr. 425, dags. 19.07.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 2. Lóðaumsóknir
Liður 2.1. Lóð við Skúlagötu 23.
Samþykkt að úthluta Auði Hinriksdóttur lóðina við Skúlagötu 23. Berglind sat hjá vegna skyldleika.
Liður 2.2.Lóð við Skúlagötu 25.
Samþykkta að úthluta Guðbirni Þór Ævarssyni lóð við Skúlagötu 25.
2.3. Bergþór Smárason sækir um lóð við Hjallatanga 48.
Samþykkt að úthluta Bergþóri Smárasyni lóð við Hjallatanga 48.
Berglind sat hjá vegna skyldleika.
2.4. Tindur ehf. sækir um lóð við Nesveg.
Samþykkt að úthluta Tindi ehf. lóð við Nesveg.
Liður 5. Erindi til afgreiðslu
Liður 5.1.Verðmat Áskinn 2a.
Samþykkt að setja Áskinn 2a á sölu.
Til máls tóku: BA og EF
Liður 6. Umsóknir um starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar.
amþykkt að ganga til samninga við Rafn Júlíus Rafnsson í starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar til eins árs frá 1. september 2007.
Davíð sat hjá vegna tengsla.
Liður 7. Umsóknir um starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar.
Samþykkt að auglýsa starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar aftur, vegna breytna forsenda, þar sem Helena Rut Hinriksdóttir er flutt úr bænum.
Til máls tóku: HG og GDP
Liður 8. Önnur mál.
Liður a. Tillaga um úthlutun byggðakvóta
Byggðakvótanum er úthlutað sbr. 4. gr. B. reglugerðar nr. 440/2007, þ.e. úthlutun vegna samdráttar í vinnslu á skel. Undirrituð leggja til að einungis þeir aðilar sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti verði úthlutað hlutdeild í byggðakvótanum en það eru bátar þeirra útgerða sem eiga aflahlutdeild í hörpuskel þann 1. september 2006 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum. Óskað er eftir þessum sérstöku skilyrðum á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 439 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007.
fangreind tillaga var samþykkt á 225. bæjarstjórnarfundi þann 21.júní 2007.
Tillagan er samhljóma tillögu síðasta árs og ætlun hennar að hafa sömu áhrif á úthlutun byggðakvóta og þá.
Við úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 leggur Fiskistofa annað mat á tillöguna og beitir öðrum aðferðum en áður hefur verið gert.
Því vill bæjarráð Stykkishólmsbæjar árétta eftirfarandi:
Byggðakvótanum er úthlutað sbr. 4. gr. B. reglugerðar nr. 440/2007, þ.e. úthlutun vegna samdráttar í vinnslu á skel.Undirrituð leggja til að einungis þeir aðilar sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti verði úthlutað hlutdeild í byggðakvótanum en það eru bátar þeirra útgerða sem eiga aflahlutdeild í hörpuskel í Breiðafirði þann 1. september 2006 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum og aðilar sem keypt hafa báta eða útgerðir sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum. Byggðakvóta verði úthlutað í hlutfalli við aflahlutdeild í hörpusskel í Breiðafirði þann 1.9. 2006.
Óskað er eftir þessum sérstöku skilyrðum á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 439 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007.
Samþykkt með fjórum geng tveimur atkvæðum einn sat hjá.
Til máls tóku: DS og GDP
Fundargerð samþykkt.
1.3. Fundargerð bæjarráðs nr. 426, dags. 23.08.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1. Fundargerðir nefnda.
Liður 1.2. Skipulags- og bygginganefnd, dags. 14.08.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Trausti Tryggvason Silfurgötu 41 sækir um að staðsetja gróðurskýli á lóðinni sbr. bréf dags. 13.08.2007.
Samþykkt að grenndarkynna erindi fyrir eigendum húsa við Silfurgötu 39, 43, 45 og 47 Skólastíg 26, 28 og 30.
Liður 2 Sæþór H. Þorbergsson Vallarflöt 1, sækir um að klæða málaðan krossvið með ljósum flísum við glugga hússins, sbr. bréf dags. 26.07.2007.
Erindi samþykkt.
Liður 3 Alexander Helgason Laufásvegi 5 sækir um að fjarlægja skorstein á húsi og breyta jarðhæð í íbúð.
Erindi samþykkt.
Liður 4 Sigurður Amlín Kristjánsson og Hanna D. Jónsdóttir Silfurgötu 23 sækja um að byggja glerhýsi yfir svalapall sbr. teikningu dags. 26.06.2007.
Erindi samþykkt.
Liður 6 Rakel Olsen óskar eftir að setja upp leiðbeiningarskilti við Ægisgötu nr.3. Samþykkt að setja upp botnlangaskilti við Austurgötu.
Liður 1.3. Hafnarstjórn, dags. 20.08.2007.
Fundargerð framlögð, liður 1 samþykkt að unnið verði deiliskipulag að hafnarsvæðinu.
Liður 2 samþykkt að leigja bása við nýju flotbryggjuna frá 1. september n.k.
Liður 4. Lóðaumsóknir
Liður 4.1. Edda Baldursdóttir sækir um framlengingu lóðarumsóknar
við Reitarveg, dags. 16.07.2007.
Samþykkt að veita Eddu Baldursdóttur 6 mánaða framkvæmdafrest.
Liður 4.2. Sæþór Þorbergsson og Pétur Ágústsson sækja um lóð við höfnina á svokölluðum “garði” við Árnasteina í syðri hluta hafnarinnar fyrir hönd óstofnaðs eignarhaldsfélags, dags. 20.07.2007.
Ekki hægt að úthluta lóð, þar sem ekki er búið að deiliskipuleggja hafnarsvæðið.
Samþykkt að halda fund með hlutaðeigandi aðilum um málið.
Liður 4.3. Atlantsolía ehf. sækir um lóð við Aðalgötu 35, dags. 27.07.2007.
Samþykkt að úthluta Atlantsolíu ehf. lóðina og skulu framkvæmdir vera hafnar fyrir 1. maí 2008.
Til máls tóku: DS og GDP
Liður 4.4. Nesvegur 12, tvær umsóknir. Gissur Tryggvason, dags. 02.08.2007 og Emilli ehf., dags. 21.08.2007.
Samþykkt að veita Gissuri Tryggvasyni lóðina að Nesveg 12, þar sem umsókn hans barst á undan. Berglind sat hjá vegna tengsla.
Liður 4.5. Pétur Geirsson sækir um leyfi til að reisa tvö sumarhús í landi sem nefnist “Birgisborg”, dags. 15.08.2007.
Umsókn hafnað, vegna þess að þetta svæði er ekki deiliskipulagt fyrir sumarhús.
Til máls tóku :HG og GDP
Liður 5. Lántaka
Liður 5.1. Tilboð um lánveitingu, Lánasjóður sveitarfélaga (LS) til Stykkishólmsbæjar, dags. 16.08.2007.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 40.000.000 kr. með 6,23% vöxtum til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir í miðbæ Stykkishólms, sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.
Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Stykkishólmsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Liður 8. Erindi til afgreiðslu
Liður 8.1. Bréf Sjávarútvegsráðuneytis, dags. 14.08.2007, varðandi sérstök skilyrði vegna úthlutunar byggðakvóta í Stykkishólmi.
Samþykkt að svara bréfinu með sama hætti og á síðasta bæjarráðsfundi frá19. júlí 2007 liður 8.a., með fjórum atkvæðum gegn einu, tveir sátu hjá.
8.3. Bréf frá Gunnari Svanlaugssyni skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi, dags. 16.08.2007, varðandi tilraun til reksturs starfsdeildar á komandi starfsári frá bæjarráðsfundi nr. 423.
Samþykkt að veita heimild til að gera tilraun með starfsdeild við Grunnskóla Stykkishólms.
Liður 9. Tilboð
Liður 9.1. Opnun tilboða - í hádegismat í Grunnskóla Stykkishólms frá Fimm fiskum.
Samþykkt að ganga til samninga við Fimm fiska um hádegismat í Grunnskóla Stykkishólms.
Til máls tóku: DS, ELB og EF
Liður 10. Útboð á gatnagerð
Liður 10.1. Útboð á gatnagerð við Laufásveg.
Samþykkt að bjóða út gatnagerð við Laufásveg.
Liður 11. Tillögur
Liður 11.1. Tillaga Gretars D. Pálssonar um að starf húsvarðar við Grunnskólann í Stykkishólmi verði lagt niður frá og með starfslokum núverandi húsvarðar.
Undirritaður leggur til að starf húsvarðar við Grunnskólann í Stykkishólmi verði lagt niður frá og með starfslokum núverandi húsvarðar. Þess í stað verði sett á laggirnar staða Umsjónarmanns fasteigna sem hafi það meginhlutverk að hafa eftirlit með öllum fasteignum í eigu og umsjá Stykkishólmsbæjar, sinna lágmarksviðhaldi og gera tillögur að stærri viðgerðum og viðhaldi fasteignanna. Bæjarráð geri tillögur að starfslýsingu Umsjónarmanns fasteigna.
Gretar D.Pálsson
Tillaga samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: DS og GDP
Liður 11.2.Tillaga Ólafs Guðmundssonar um parhúsalóð við Skólastíg.
Bæjarráð samþykkti á fundi 29. janúar 2004 lóðaumsókn Skipavíkur um parhúsalóð við Skólastíg (Letisund) sem var svo staðfest í bæjarstjórn 19. febrúar sama ár. Í kjölfar minnispunkta frá fundi með áhugahópi vegna gamla miðbæjarins var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 23. júní 2005 að úthluta ekki lóðum að sinni í miðbænum á meðan verið væri að skoða hugmyndir um breytt skipulag.
Nú hefur sú vinna farið fram og framkvæmdir í miðbænum á lokastigi samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Engar forsendur eru því lengur til staðar að stöðva eða tefja frekar framkvæmdir á þessari lóð. Því legg ég til að Skipavík fái aftur lóðina með 12 mánaða byggingarfresti.
Ólafur Guðmundsson.
Tillaga samþykkt samhljóða.
Liður 11.3. Tillaga Berglindar Axelsdóttur um flutning grunnskólans niður á Borgarbraut.
Ég vel að bera þessar tillögur upp saman vegna hversu þær eru tengdar hvor annarri þannig að ekkert gagn er í að samþykkja aðra nema samþykkja hina.
Ég undirrituð geri það að tillögu minni að hafist verði handa við að undirbúa og byggja fjórar lausar kennslustofur í tveimur húsum við skólann við Borgarbraut.Kennslustofurnar verði teknar til notkunar haustið 2008. Náttúrustofa Vesturlands og Háskólasetur Stykkishólms fái aðstöðu í gamla skólanum auk Tónlistarskóla Stykkishólms.
Greinargerð: Þar sem löngu er orðið tímabært að koma Grunnskóla Stykkishólms á einn stað legg ég til þessa einföldu, góðu og ódýru lausn. Það er nemendum jafnt sem öðru starfsfólki mikil hagræðing og tímasparnaður í því að þurfa ekki að fara á milli Gamla skólans og skólans við Borgarbraut. Það er mikil þörf á að Náttúrustofa Vesturlands og Háskólasetur Stykkishólms fái stærra húsnæði til umráða þannig að þessar „stofnanir” geti vaxið og dafnað áfram sem hingað til. Sá peningur sem sparast í rekstri skólans við að fá hann á einn stað mun nýtast til að borga af þeim kostnaði sem hlýst af framkvæmdunum. Fjármagnið sem Háskóli Íslands mun leggja í nýtt húsnæði gæti nýst til að koma þeirri virðulegu byggingu sem gamli skólinn er í boðlegt ástand. Jafnframt verði hafinn undirbúningur að flutningi Tónlistarskóla Stykkishólms niður að Borgarbraut. Það má því segja að þarna sé möguleiki á að koma þremur aðkallandi málum í rétt horf. Því miður er staðan sú að stöðugt fækkar nemendum við Grunnskóla Stykkishólms og þeir árgangar sem eru í Leikskóla Stykkishólms, verðandi nemendur við grunnskólann eru fámennir.
Ég tel tillögu þessa allrar athygli verðar og vona að hún fái jákvæðar viðtökur.
Berglind Axelsdóttir
Bókun Gretars D. Pálssonar.
Í skýrslu sem hópur um “Stefnumörkun í húsnæðismálum Grunnskólans í Stykkishólmi og Tónlistarskóla Stykkishólms” gaf út í nóvember 2005, kemur fram að samrekstur mun harla lítil áhrif hafa til lækkunar á kostnaði en nýting starfsfólks mun aukast vegna nálægðar og minni ferðatíma” (kafli 3.3 Fjármál) ”
Í niðurstöðu nefndarinnar kemur fram að:
Að brýnt er að Grunnskólinn verði í einu og sama húsnæðinu með sína starfsemi og að Tónlistaskóli verði á sama svæði/húsnæði og Grunnskólinn.
Að nýting starfsfólks verði betri og meri ef skólarnir eru á sama svæði.
Að samlegðaráhrif í rekstri geti leitt til lækkunar á rekstrarkostnaði.
Að horfa beri til sveigjanleika og breytilegrar skólastefnu við hönnun húsnæðis.
Að skoða beri samþættingu, til dæmis heildagsskóla (frístundaskóla),
Félagsmiðstöðvar, bæjarbókasafns og sérhæfðrar starfssemi s.s.
Svæðisskrifstofu fatlaðra, í húsnæði Grunn- og Tónlistarskóla.
Og að lokum í tillögum hópsins:
Lagt er til að Grunnskólinn verði í einu og sama húsnæðinu með sína starfsemi og að Tónlistaskóli verði í samtengdu húsnæði. Húsnæði verði byggt upp á skólasvæðinu við Borgarbraut.
Lagt er til að samin verði skólastefna sem taki mið af nýrri tækni og nýjum tímun.
Lagt er til að við hönnun húsnæðis verði horft til sveigjanleika og breytilegrar skólastefnu.
Lagt er til að skipaður verði vinnuhópur sem haldi utan um þessa vinnu (sjá dæmi um skipulag í viðauka 7.2)
Í ofangreindum hóp sátu Elísabet L Björgvinsdóttir, Gretar D Pálsson og Berglind Axelsdóttir.
Farið var að þessum tillögum og skipaður vinnuhópur (28 manns) sem hefur skilað sinni skýrslu (janúar 2007); “Skýrsla vinnuhóps vegna sameiningu skólanna” Niðurstaða þeirrar skýrslu er í meginatriðum samhljóða niðurstöðum fyrri hópsins.
Í beinu framhaldi af þessari vinnu eru skólarnir að vinna að stefnumótun skólanna svo hægt sé að vinna hönnun nýbygginga í anda þeirra.
Stefnan í málefnum skólanna liggur fyrir.
Hvað húsnæðismál Náttúrustofu Vesturlands og Háskólaseturs varðar, þá eru þau mál í ákveðnum farvegi að höfðu samráði við stjórnendur og forsvarsmenn þeirra stofnana. Samþykkt er að ganga til samninga við Kaupþing um kaup á húsnæði bankans við Aðalgötu 10 og hafa kaup á því húsnæði verið handsöluð.
Í ljósi alls þessa ásamt vönduðum og faglegum vinnubrögðum þeirra sem unnið hafa af metnaði og ábyrgð að framtíðarlausn málefna skólanna; stjórnenda, starfsmanna, foreldra og leikmanna, er það ábyrgðarleysi af hálfu fulltrúa L-listans og ekki í anda lýðræðis að leggja fram illa ígrundaða tillögu án raunhæfs kostnaðarmats og án nokkurs samráðs við stjórnendur eða forstöðumenn viðkomandi skóla eða stofnana. Auk þess sem málefni þau sem tillögurnar taka til eru í ákveðnum farvegi sem sátt ríkir um.
Stykkishólmi 23.08.07
Gretar D. Pálsson
Tillaga felld með fjórum atkvæðum gegn þremur.
Tillaga.
Leggjum til að kannaðar verði leiðir til að flýta flutningi skólanna á einn stað.
Ástæður tillögunnar eru:
Umtalsverð fækkun nemenda og ekki fyrirsjáanleg fjölgun á næstu árum.
Mikil hagræðing í starfsemi skólans.
Húsnæði gamla skólans verður sett í gott stand og því fundin framtíðarlausn.
Berglind Axelsdóttir
Davíð Sveinsson
Helga Guðmundsdóttir
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: DS, GDP, ELB, EF, HG
Fundargerð samþykkt.
Til máls tóku: DS og GDP
Varðandi lið 12 Mótvægisaðgerðir í Stykkishólmi vegna 33% skerðingar á þorskveiðiheimildum. Lýsir Davíð ánægju með bréf til forsætisráðherra.
2. Fundargerðir nefnda.
2.1. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 11.06.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.2. Safna- og menningarmálanefnd, dags. 12.06.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 10.07.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.4. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 11.07.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.5. Húsnæðisnefnd, dags. 09.08.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
Til máls tóku: ELB og EF
2.6. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 14.08.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.7. Hafnarstjórn, dags. 20.08.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.18:48
Þór Örn Jónsson
Til baka