Bæjarstjórn, fundur nr. 227
Dags. 27.9.2007
Bæjarstjórn Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 27. september 2007 kl. 17.00 í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar GDP
Elísabet Lára Björgvinsdóttir, ELB
Ólafur Guðmundsson, ÓG
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, EF
Berglind Axelsdóttir, BA
Helga Guðmundsdóttir, varamaður, HG
Lárus Á. Hannesson, LÁH
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Forseti bæjarstjórnar setti fund og stýrði.
1. Fundargerðir bæjarráðs.
1.1. Fundargerð bæjarráðs nr. 427, dags. 19.09.2007.
1. Fundargerðir nefnda.
Liður 1.5. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 04.09.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 3 Bæring Bjarnar Jónsson f.h. Skipavík ehf. , sækir um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Nesvog samkvæmt skipulagsuppdrætti frá teiknistofunni Glámu / Kím dags. 9.06.2007. Deiliskipulagstillagan var í grenndarkynningu sem óveruleg breyting á deiliskipulagi sbr. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga. Athugasemdir bárust frá Starfsmannafélagi Kópavogs /Jófríði Hönnu Sigfúsdóttur bréf. dags. 16.08.2007, Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar / Haraldi Eggertssyni bréf dags. 21.08.2007 og Starfsmannafélagi Garðabæjar / Gunnari Erni Erlingssyni bréf. dags. 23.08.2007.
Samþykkt er a) að horfið verði frá að breyta lóðarstærðum á lóðum þ.m.t .á sameiginlegri lóð nr. 17 b) að skoðaðir verði möguleikar á stækkun byggingareita húsa í áfanga nr. 1
Liður 4 Sigurður Páll Jónsson og Hafdís Björgvinsdóttir sækja um að byggja hús að Hjallatanga nr. 46, samkvæmt teikningum frá Loftorku/ Vigni Jónssyni dags. 08.08.2007. Stærðir samtals: 281,2 m2, 1.211,5 m3.
Erindi samþykkt.
Liður 5 Baldur Þorleifsson Ásklif 10 sækir um að byggja viðbyggingu við húsið og að loka svölum samkvæmt teikningum frá Hjörleifi Sigurþórssyni / Brynjari Daníelssyni dags. ágúst 2007.
Viðbygging samþykkt þar sem hún er innan byggingarreits.
Liður 6 Baldur Þorleifsson Ásklif 10 og Guðjón Hjaltalín Ásklif 8 sækja um leyfi fyrir frágang á lóðarmörkum með bílastæðum samkvæmt teikningu frá Hjörleifi Sigurþórssyni/Brynjari Daníelssyni dags. ágúst 2007.
Erindi samþykkt.
Liður 7 f.h. Narfeyri ehf /Baldur Þorleifsson sækir um niðurrif á byggingu við Þverveg nr. 12, áður Aðalgötu 6b og 6c.
Erindi samþykkt.
Liður 8 Kaupþing banki/ Sigurður Kristjánsson Staðalhúsum óska eftir færslu á byggingarreit á lóð við Aðalgötu 17.
Samþykkt er að grenndarkynna erindið fyrir Aðalgötu 15 og 21, Laufásvegi 10,12 og 14 samkvæmt 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Til máls tóku: LÁH og GDP
Liður 10 f.h. Skipavík ehf/ Sævar Harðarson sækir um við Reitaveg 12 að setja innkeyrsludyr á austur- gafl, á suðurhlið og norðurhlið hússins með aðkomu frá porti sbr. bréf dags. 2.09.2007.
Erindi samþykkt.
Liður 4. Kæra.
Liður 4.1. Félagsmálaráðuneytið, dags. 21.08.2007 varðandi stjórnsýslukæru frá Heimi Jóhannssyni.
Bréf ásamt fylgigögnum varandi stjórnsýslukæru framlögð. Umsögn vegna stjórnsýslukæru Heimis Jóhannssonar samþykkt.
Liður 5. Erindi til afgreiðslu.
Liður 5.1.Bréf Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 30.08.2007 varðandi beiðni um aukningu á kennslukvóta skólaárið 2007-2008.
Samþykkt að auka kennslukvóta um fimm tíma á viku skólaárið 2007-2008.
Liður 5.2. Bréf Berglindar Lilju Þorbergsdóttur, dags. 23.08.2007 varðandi Laufásveg, nýjan hluta.
Samþykkt að vísa bréfinu til skipulags- og bygginganefndar til umsagnar.
Liður 5.3. Bréf Sæferða ehf., dags. 03.09.2007 varðandi breytingar á áætlun ferjunnar Baldurs.
Breytingar á áætlun ferjunnar Baldurs samþykktar.
Liður 5.4. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 11.09.2007 varðandi hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
Framlagt og samþykkt að Sorpurðun Vesturlands greiði hlut sveitarfélagsins, með vísan í bréf Sorpurðunar Vesturlands frá 11. september s.l.
Til máls tóku: HG og GDP
Liður 5.5. Bréf sveitarfélaganna á Snæfellsnesi til Ríkisstjórnar Íslands, dags. 18.09.2007 varðandi aðgerðir til að mæta samdrætti í úthlutuðum aflaheimildum á Snæfellsnesi.
Bréf framlagt og samþykkt.
Liður 6. Styrkbeiðnir.
Liður 6.1. Bréf Hvítasunnukirkjunnar, dags. 11.09.2007 varðandi styrk á árlegum opinberum gjöldum.
Samþykkt að veita Hvítasunnukirkjunni styrk að upphæð kr. 122.116.
Til máls tóku: LÁH og GDP
Liður 7. Samningar.
Liður 7.1.Vegagerðin og Stykkishólmsbær, dags. 17.08.2007 varðandi viðhald á þjóðvegi í þéttbýli fyrir árið 2007.
Samningur framlagður og staðfestur.
Til máls tóku: LÁH, EF og GDP
Liður 7.2. Stykkishólmsbær og Fimm fiskar, dags. 29.08.2007 varðandi sölu á mat til grunnskólanemenda.
Samningur framlagður og staðfestur.
Liður 7.3. Kaupsamningur. Hamraafl og Stykkishólmsbær, dags. 31.08.2007 varðandi Hamraenda 3.
Samningur framlagður og staðfestur.
Til máls tóku: LÁH og GDP
Liður 8. Tilboð.
Liður 8.1. Opnun tilboða – í gatnagerð við Laufásveg.
Samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðendur, þ.e. sameiginlega Palli Sig. ehf., EB vélar ehf. og Stefán Björgvinsson.
Liður 9. Tillögur og fyrirspurnir.
Liður 9.1. Tillaga Berglindar Axelsdóttur um „Grænar sorptunnur“.
Undirrituð leggur til að Stykkishólmsbær bjóði bæjarbúum upp á þann valkost að leigja sorptunnur þar sem fólk getur sett pappír sem til fellur ásamt dósum plastflöskum og niðursuðudósum svo eitthvað sé nefnt.
Greinargerð: Það er trú mín að fólk flokki frekar ef það hefur tunnuna í næsta nágrenni auk þess sem það eru alltaf einhverjir sem ekki búa við þær aðstæður að komast með sorp í móttökustöðina Snoppu.
Berglind Axelsdóttir
Varðar tillögu um “Grænar sorptunnur”
Undirritaðir greiða atkvæði gegn tillögu Berglindar þar sem
Stykkishólmsbær hefur frá því síðastliðið vor verið í viðræðum við Íslenska gámafélagið ehf. um fjölgun sorptunna og frekari flokkunar sorps ásamt því að kanna möguleika á miðlægri moltugerð fyrir Stykkishólmsbæ. Íslenska gámafélagið hyggst leggja fram kostnaðarmat og hugmyndir um leiguverð á viðbótar sorptunnum fyrir flokkað sorp. Fyrr en það liggur fyrir eru ekki nægjanlegar forsendur til frekari aðgerða.
Tillaga Berglindar er ótímabær. Hún miðar annars vegar að því að hvetja til verkefnis sem nú þegar er í vinnslu á vegum Stykkishólmsbæjar og hins vegar að því að taka ákvörðun án þess að fullnægjandi forsendur liggi fyrir.
Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson
Vegna bókunar Gretars D. Pálssonar og Ólafs Guðmundssonar varðandi tillögu Berglindar Axelsdóttur um grænar sorptunnur frá bæjarráðsfundi 19. september no. 427.
Við undirrituð fögnum því að Stykkishólmsbær stefni að því að tekin verði upp frekari flokkun sorps og tunnum fjölgað í því sambandi. Hvaða aðferð eða hvaða leið verður farin teljum við ekki vera höfuðatriði en mikilvægt að hagkvæmasta og besta leiðin verði fundin umhverfinu, bæjarfélaginu og bæjarbúum til heilla.
Lárus Ástmar Hannesson
Berglind Axelsdóttir
Helga Guðmundsdóttir
Í ljósi fyrrliggjandi upplýsinga um málefni sorphirðu og moltugerðar verður málið tekið upp að nýju í bæjarráði.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: BA,LÁH,EF og GDP
Liður 9.2. Tillaga Berglindar Axelsdóttur um skráningu á atkvæðagreiðslu.
Undirrituð leggur til að það komi fram í fundargerðum Bæjarstjórnar og Bæjarráðs hverjir það eru sem greiða atkvæði á móti eða sitja hjá.
Berglind Axelsdóttir
Varðar tillögu um skráningu atkvæðagreiðslu.
Tekið er á meðhöndlun atkvæðagreiðslna og skráningu þeirra í “Samþykkt um stjórn og fundarsköp Stykkishólmsbæjar”, sbr. 30.gr., 31.gr., 32.gr. Því til viðbótar má benda á almenna reglu fundarskapa að fundarmenn hafa rétt til að gera grein fyrir atkvæði sínu og/eða bóka afstöðu sína (sbr. Sveitarstjórnarréttur- Fundir og fundarsköp e. Gunnar Eydal). Réttur þessi er óháður því hvernig menn verja atkvæði sínu hverju sinni, með, á móti eða með hjásetu.
Undirritaðir greiða atkvæði gegn tillögu Berglindar og leggja til að áfram verði farið að samþykktum um stjórn og fundarsköp Stykkishólmsbæjar ásamt almennum reglum um fundarsköp. Það verði því áfram undir fundarmönnum komið hverju sinni hvort og hvernig þeir óski eftir að afstaða þeirra sé bókuð.
Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson
Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur.
Vegna bókunar Gretars D. Pálssonar og Ólafs Guðmundssonar varðandi tillögu Berglindar Axelsdóttur um skráningu atkvæða í fundargerðir bæjarráðs og bæjarstjórnar Stykkishólms frá bæjarráðsfundi 19. september no. 427.
Okkur þykir miður að meirihluti bæjarráðs og bæjarstjórnar Stykkishólms hafni jafn sjálfsögðu framfara máli varðandi ritun fundargerða í bæjarráði og bæjarstjórn. Við teljum miður að ekki sé hægt að lesa úr fundargerðum bæjarins hvernig einstakir fulltrúar greiða atkvæði. Þess ber að geta að á síðari hluta síðasta kjörtímabils mátti lesa úr fundargerðum hvernig einstaki fulltrúar greiddu atkvæði. Það verður því að teljast lýðræðisleg afturför að hafna því.
Lárus Ástmar Hannesson
Berglind Axelsdóttir
Helga Guðmundsdóttir
Bókun Gretar D. Pálssonar
Meirihluti bæjarstjórnar hefur ekki hafnað því að fundarmenn bóki afstöðu sína í einstökum málum vísast því til sönnunar í bókun Ólafs og undirritaðs.
Gretar D. Pálsson
Til máls tóku: LÁH, ELB,EF,HG og GDP
Liður 10. Önnur mál.
Liður 10.1. Árshátíð starfsmanna Stykkishólmsbæjar 2007.
Samþykkt að halda Árshátíð starfsmanna Stykkishólmsbæjar 2007 og að hver stofnun Stykkishólmsbæjar tilnefni einn fulltrúa í árshátíðarnefnd.
Til máls tóku:LÁH, EF ELB og BA
Fundargerð samþykkt.
Til máls tóku:LÁH,EF,BA og ELB
2. Fundargerðir nefnda.
2.1. Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 27.08.2007.
Fundargerð framlögð og staðfest.
Til máls tók: ELB
2.2. Umhverfisnefnd, dags. 27.08.2007.
Fundargerð framlögð og staðfest.
2.3. Fræðslunefnd, dags. 03.09.2007.
Fundargerð framlögð og staðfest.
2.4. Stýrihópur um framtíðarsýn Stykkishólmshafnar, dags. 03.09.2007 og 10.09.2007.
Fundargerðir framlagðar og staðfestar.
2.5. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 04.09.2007.
Fundargerð framlögð og staðfest.
2.6. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 13.09.2007.
Fundargerð framlögð og staðfest.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.18:10
Þór Örn Jónsson
Til baka