Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarstjórn, fundur nr. 228

Dags. 19.10.2007

Bæjarstjórn Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 18. október

 2007 kl. 19.00 í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru: Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar GDP
                 Elísabet Lára Björgvinsdóttir, ELB
                 Ólafur Guðmundsson, ÓG
                 Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, EF
                 Berglind Axelsdóttir, BA  
                 Helga Guðmundsdóttir, varamaður, HG
                 Davíð Sveinsson, DS
                 Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Forseti bæjarstjórnar setti fund og stýrði.
  
1. Fundargerðir bæjarráðs.

 

1.1 Fundargerð bæjarráðs nr. 428, dags. 04.10.2007.

1. Fundargerðir nefnda.
1.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 02.10.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Hjörleifur Sigurþórsson/ Brynjar Daníelsson f.h.

eigenda Skólastígs nr. 12 sækja um  að rífa húsið og

byggja nýtt samkvæmt teikningum dags. 25.08.2007,

en með síðari breytingum frá 14.9 2007. Einnig er sótt

um afmörkun á lóð. Stærðir: 108,1 m2, 275,4m3. 
Umsögn frá Húsfriðunarnefnd Ríkisins liggur fyrir

dags. 4.05.2007.
Samþykkt að grenndarkynna erindið samkvæmt

7. mgr. 43 gr. skipulags- og byggingarlaga  fyrir

Höfðagötu nr. 2 og 5, Skólastíg nr.7, 8, 9 og 10, 

Bókhlöðustíg nr. 8 og 10.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

Liður 2 Trausti Tryggvason Silfurgötu 41 sækir um

að  staðsetja  gróðurskýli á  lóðinni sbr. bréf

dags. 13.08.2007. Erindið var grenndarkynnt  fyrir

 eigendum húsa við Silfurgötu 39, 43, 45 og 47 S

kólastíg 26, 28 og 30. Engar athugasemdir  bárust.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

Liður 3 Baldur Þorleifsson Ásklif 10 sækir um að

loka svölum samkvæmt  teikningum frá Hjörleifi

Sigurþórssyni / Brynjari Daníelssyni dags. ágúst 2007.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

Liður 4 Narfeyri ehf /Baldur Þorleifsson sækir um að

flytja hús að Þvervegi nr.  12 og byggja við það

samkvæmt teikningum frá Hjörleifi Sigurþórssyni/Brynjari

Daníelssyni dags 14.09.2007.

Stærðir samtals: 132,4 m2, 391 m3.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

Liður 8 Tindur ehf, sækir um að byggja

stálgrindarskemmu að Nesvegi 14  samkvæmt

teikningum frá Verkfræðistofu E.K. dags. sept. 2007.

Stærðir samtals:  196.6 m2, 946,6 m3.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

Liður 9 Gunnlaugur Auðunn Árnason óskar eftir að

staðsetja upplýsingaskilti við  Sæmundarpakkhús

sbr. bréf dags. 28.09.2007.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

Liður 10 Stykkishólmsbær óskar eftir að nýta svæðið 

norðaustur af  Snoppu fyrir geymslupláss.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

Liður 11 Símon Sturluson sækir um að setja milliloft

í byggingar við  Hamraenda  3, eða mhl. 02-0103,

mhl. 01-0103 og 01-0102, samkvæmt teikningum frá  

Verkfræðistofu E.K. dags. sept. 2007.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Fundargerð samþykkt.

 

4. Styrkbeiðnir.
4.1. Bréf Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar

Vesturlands, dags. 14.09.2007 varðandi styrkbeiðni.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt með sex atkvæðum,

Davíð sat hjá, vegna setu í stjórn UKV.
Til máls tóku: DS og GDP

 

5. Samningar.
5.1. Verksamningur milli Stykkishólmsbæjar og

Palla Sig. ehf., EB véla ehf. og Stefáns Björgvinssonar,

 dags. 27.09.2007 um endurbætur á Laufásvegi.
Verksamningur milli Stykkishólmsbæjar og

Palla Sig. ehf., EB véla ehf. og Stefáns Björgvinssonar

framlagður og staðfestur.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

5.2. Samningur Stykkishólmsbær og OneSystems

varðandi kaup á rafrænu mála- og skjalastjórnunarkerfi.
Samningur Stykkishólmsbæjar og OneSystems

framlagður og staðfestur.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: BA og GDP

 

6. Kauptilboð.
6.1. Kauptilboð frá Ómari Erni Gunnarssyni,

dags. 01.10.2007 í húseignina Áskinn 2a.
Kauptilboð Ómars Arnar Gunnarssonar samþykkt

í húseignina Áskinn 2a.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

7. Lóðarumsókn.
7.1 F.h. óstofnaðs félags sækja Jón Á. Ingólfsson

og Páll V. Þorbergsson um reit merktan Aa v/Laufásveg

og Borgarbraut, dags. 24.09.2007.
Samþykkt að veita óstofnuðu félagi Jóns Á. Ingólfssonar

 og Páls V. Þorbergssonar lóðina Aa v/ Laufásveg og

Borgarbraut fyrir verslun og þjónustu samkvæmt gildandi

 deiliskipulagi. Berglind situr hjá.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 
Bókun vegna úthlutunar reits Aa v/Laufásveg og

Borgarbraut.
Að gefnu tilefni vonast fulltrúar L-listans til þess að

í framkvæmdum á reit Aa v/Laufásveg og Borgarbraut

 verði sérstaklega hugað að bílastæðamálum.

Berglind Axelsdóttir
Davíð Sveinsson
Helga Guðmundsdóttir

 

7.2. Ýsuheiði ehf. sækir um lóð við Nesveg 16 og

viðbyggingu við iðnaðarhúsnæði sem Gestur Hólm,

S. Sturluson ehf. og ÞB Borg ehf. eiga, dags. 03.10.2007.
Samþykkt að vísa umsókn til umsagnar í skipulags-og

bygginganefnd, ásamt hafnarstjórn.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

8. Umsóknir um starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar.
Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við Maríu Kúld

Heimisdóttur og    Matthías Arnar Þorgrímsson.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: DS, GDP, EF og BA

 

9. Erindi til umsagnar.
9.1. Reglugerð um lögreglusamþykkt  

(http://www.samband.is/files/793485953drog_reglug_um_

logreglusamthykkti r.pdf).
Bæjarráð hefur engar athugasemdir. 
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

10. Til afgreiðslu
10.1. Tilboð Íslenska gámafélagsins í miðlæga

moltugerð og grænar tunnur á hvert heimili

í Stykkishólmsbæ.
Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við

Íslenska gámafélagið um miðlæga moltugerð

og grænar tunnur á hvert heimili í Stykkishólmsbæ.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

Vegna bókunar Gretars D. Pálssonar frá því á

bæjarráðsfundi nr. 428  dags. 4. október 2007
Fulltrúar minnihlutans gera sér grein fyrir að rangt

var farið með staðhæfingar í bókun þeirra á

bæjarstjórnarfundi
nr. 227 fimmtudaginn 27. september og biðjumst

við velvirðingar á því.

Berglind Axelsdóttir
Davíð Sveinsson
Helga Guðmundsdóttir

Fundargerð bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: DS, EF, GDP og BA


2. Fundargerðir nefnda.
 
2.1. Umhverfisnefnd, dags. 24.09.2007 og 02.10.2007.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.

 

2.2. Safna- og menningarmálanefnd, dags. 25.09.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.

2.3. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 02.10.2007.
Fundargerð samþykkt fyrr á fundinum.

 

2.4. Stýrihópur um mótun fjölskyldustefnu

Stykkishólmsbæjar, dags.    10.04.2007 og 21.05.2007.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar.


Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.19:40
Þór Örn Jónsson

 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré