Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarstjórn, fundur nr. 229

Dags. 29.11.2007

Bæjarstjórn Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 29. nóvember 2007 kl. 17.00 í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru: Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar GDP
                 Elísabet Lára Björgvinsdóttir, ELB
                 Ólafur Guðmundsson, ÓG
                 Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, EF
                 Berglind Axelsdóttir, BA  
                 Lárus Á. Hannesson, LÁH
                 Davíð Sveinsson, DS
                 Þór Örn Jónsson, bæjarritari

 

Forseti bæjarstjórnar setti fund og stýrði.
  
1. Fundargerðir bæjarráðs.

 

1.1. Fundargerð bæjarráðs nr. 429, dags. 08.11.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1.Fundargerðir nefnda.
Liður  1.8. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 30.10.2007.
Fundagerð framlögð.
Liður 1 Kaupþing banki /Sigurður Kristjánsson Staðalhúsum óskar eftir færslu á byggingarreit á lóð við Aðalgötu nr. 17. Engar athugasemdir bárust.
Lagt er til að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

Liður 4. Styrkbeiðnir.
Liður 4.1. Bréf Kórs Fjölbrautaskóla Suðurlands, dags. 17.10.2007 varðandi styrkbeiðni vegna ferðar til Danmerkur.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

4.2. Bréf Nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga, dags. 23.10.2007 varðandi styrkbeiðni.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjóri hafi samráði við aðra bæjarstjóra á Snæfellsnesi og þeir leggi fram sameiginlega tillögu.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

5. Tilboð
5.1. Opnun tilboða – í gatnagerð og lagnir við Móholt.
Um er að ræða sameiginlegt útboð Stykkishólmsbæjar, OR, Mílu og Rarik. 
Eftirfarandi tilboð bárust:
Berglín ehf.   17.239.025,-
Stekksnáma ehf. 23.870.045,-
Borgarverk ehf. 25.730.000,-
BB og synir ehf. 17.752.615,-
Fínafl ehf.   20.031.750,-

OR samþykkir ekki að taka lægsta tilboði, þar sem tilboðið samræmis ekki verklagsreglum þeirra. Míla og Rarik mæla með að næst lægsta tilboði verði tekið. Samþykkt að kalla eftir ársreikningi frá Berglín ehf., og BB og sonum ehf., ásamt undirverktökum einnig er beðið um staðfestingu á að fyrirtækin séu skuldlaus við opinbera aðila.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

6. Tilnefningar í nefndir.
6.1. Tilnefning varamanns D-listans í æskulýðs- og íþróttanefnd í stað Árdísar Gísladóttur og tilnefning varamanns L-listans í stað Bylgju Mistar Gunnarsdóttur.
D-listinn tilnefnir Írisi Huld Sigurbjörnsdóttur og L-listinn tilnefnir Einar Gunnarsson sem aðalmaður, Sigurður Þorvaldsson og Jón Torfa Arason sem varamenn.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

6.2.  Tilnefning varamanns D-listans í jafnréttisnefnd í stað Auðar Ásdísar Jónsdóttur.
D-listinn tilnefnir Guðfinnu Diego Arnórsdóttur.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

6.3. Tilnefning varamanns D-listans í atvinnumálanefnd í stað Kára P. Ólafssonar.
D-listinn tilnefnir Önnu Lísu Hassing.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

6.4. Tilnefning varamanna L-listans í fræðslunefnd í stað Bylgju Mistar Gunnarsdóttur og Öldu Baldursdóttur.
L-listinn tilnefnir Alfreð Viktor Þórólfsson og Birnu Sævarsdóttur sem varamenn.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

6.5. Tilnefning varamanns L-listans í umhverfisnefnd í stað Öldu Baldursdóttur.

L-listinn tilnefnir Þórunni Sigþórsdóttur sem varamann.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

7. Erindi til umsagnar

7.1. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 10.10.2007 varðandi endurnýjun rekstrarleyfis Fimm Fiska.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Fimm Fiska. 
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða. Ólafur Guðmundsson sat hjá vegna tengsla við embætti Sýslumanns Snæfellinga.
Til máls tóku: DS, ÓG og GDP

 

7.2. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 26.10.2007 varðandi endurnýjun rekstrarleyfis Heimagistingar, Höfðagötu 1.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Heimagistingar, Höfðagötu 1.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Ólafur Guðmundsson sat hjá vegna tengsla við embætti Sýslumanns Snæfellinga.

 

7.3. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 2.11.2007 varðandi endurnýjun rekstrarleyfis Heimagistingar Ölmu, Sundabakka 12.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Heimagistingar Ölmu, Sundabakka 12.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Ólafur Guðmundsson sat hjá vegna tengsla við embætti Sýslumanns Snæfellinga.

 

7.4. Bréf Guðna Gunnarssonar, dags. 29.10.2007 varðandi ósk um skoðun eða álit bæjarstjórna á Snæfellsnesi á því hvort bygging fjölnota íþrótta- og menningarhúss á Snæfellsnesi sé vænlegur kostur.
Það er mat bæjarráðs að íþróttaaðstaða í Stykkishólmi sé með þeim hætti að ekki er þörf á að taka þátt í slíku verkefni.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: DS og GDP

 

8. Erindi til afgreiðslu.
8.1. Bréf Búnaðarsamtaka Vesturlands og Borgarbyggðar, dags. 17.10.2007 varðandi boð um þátttöku í samstarfsverkefni um þjóðlendumál.
Bæjarráð samþykkir að þjóðlendunefnd Héraðsnefndar Snæfellinga sjái um þetta samstarfsverkefni f.h. Stykkishólmsbæjar við Búnaðarsamstök Vesturlands og Borgarbyggð.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: DS, EF og GDP

 

8.2. Greinargerð vegna mats á eignarnámsbótum vegna skerðingar á lóð Hafnargötu 1.
Greinargerð framlögð og samþykkt. Bæjarráð lítur svo á að bæjarstjóri hafi alltaf haft heimild til að gera það sem gera þarf, vegna yfirborðsfrágangs á miðbænum, samkvæmt deiliskipulagi og útboðslýsingu, þar meðtalið eignanám sem lokaúrræði við Hafnargötu 1, þar sem ekki náðust samningar við lóðahafa.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

9. Samningar.
9.1. Kaupsamningur vegna Áskinn 2.
Kaupsamningur framlagður og samþykktur.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

9.2. Drög að viðaukasamningi við Íslenska gámafélagið.
Drög að viðaukasamningi við Íslenska gámafélagið framlagður og samþykktur.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

10. Önnur mál.
10.a. Bæjarstjóri gerði grein fyrir endurskoðun á heimasíðu Stykkishólmsbæjar.
Samþykkt að Anok sjái um útlitshönnun á heimasíðunni.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

10.b. Tillaga frá Berglindi Axelsdóttur um hraðatakmarkanir
Ég undirrituð legg til að byggingarfulltrúa ásamt skipulags- og byggingarnefnd verði falið að koma með tillögur sem lúti að því að draga úr hraða í Tjarnarási.

Berglind Axelsdóttir

Samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

Til máls tóku: LÁH og GDP
Fundargerð samþykkt samhljóða.


1.2. Fundargerð bæjarráðs nr. 430, dags. 22.11.2007.

 

1. Fundargerðir nefnda.
1.2.Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 13.11.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Hjörleifur Sigurþórsson/ Brynjar Daníelsson f.h. eigenda Skólastígs nr. 12 sækja um  að rífa húsið og byggja nýtt samkvæmt teikningum dags. 25.08.2007.
Nefndin telur grenndaráhrif sé óveruleg og leggur til að erindið verði samþykkt.
Bæjarráð samþykkt að vísa erindinu aftur til nefndar vegna nýrra gagna.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: LÁH, BA, DS, ELB og GDP
Liður 4 Skipavík ehf./ Sævar Harðarson sækir um að byggja parhús við Móholt nr. 6, 8, 10 og 12 samkvæmt teikningum frá Sigurjóni Jónssyni.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum byggingarreglugerðar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða. Davíð situr hjá vegna tengsla.
Liður 5 Skipavík ehf./ Sævar Harðarson sækir um að byggja einbýlishús við Hjallatanga nr. 3, samkvæmt teikningum frá Sigurjóni Jónssyni.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum byggingarreglugerðar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða. Davíð situr hjá vegna tengsla.
Liður 6 Ríkharður Hrafnkelsson f.h. stjórnar golfklúbbsins Mostra óskar eftir breytingu á aðkeyrslu til golfskála sbr. bréf og tillöguteikn. dags. 10.10.2007.
Erindi hafnað.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:DS, LÁH,EF og GDP
Liður 7 Ýsuheiði ehf. / Gestur Hólm óskar eftir viðbótarlóð og að byggja viðbyggingu austan við Nesveg nr. 16.
Erindi hafnað þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af svæðinu.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar. Samþykkt að hafnarsvæði Skipavíkurhafnar verði deiliskipulagt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: LÁH, DS og GDP
Liður 8 Guðmundur Benjamínsson sækir um leyfi til að byggja lambahús  á ræktunarsvæði Nýræktarfélagsins sbr. teikn frá Verkfræðistofu E.K.
Nefndin leggur til að veitt verði tímabundið leyfi þar til skipulag á nýræktarsvæði hefur verið endurskoðað.
Bæjarráð samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 9 f.h. slökkviliðs Stykkishólmsbæjar / Þorbergur Bæringsson óskar eftir að staðsetja tvo 20 feta gáma í bæjarlandi til æfinga fyrir reykköfun. Nefndin leggur til að veitt verði bráðabirgðaleyfi fyrir að staðsetja gáma í norðvestur af svæði A3 / við Ögursafleggjara á aðalskipulagi.
Bæjarráð samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 10 Stefán Björgvinsson Árnatúni 6 óskar eftir að klæða hús með bárustáli eins og er á bílskúr.
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 12 lagðar fram teikningar af breytingum á gluggum að framanverðu á bókasafni við Hafnargötu 7
Erindi samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 13 Guðbrandur Björgvinsson sækir um að loka vegg á milli aðalsalar og vesturenda hússins við Hamraenda nr. 5 , sbr. bréf  dags. 9.11.2007.
Erindi samþykkt. Lokun á vegg skal vera í samræmi við byggingarreglugerð.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 14 BB og synir óska eftir leyfi fyrir að ganga frá lóð við Reitarveg 16, sbr. tillöguteikningu.
Nefndin heimilar frágang lóðar. Mælst er til að gengið sé snyrtilega frá bakka án  landfyllingar við Landeyjarsund.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar, þess er krafist að fyrirstaða af grjóti verði sett við sjólínu til að styðja við jarðveg utan á skel. Bæjarráð fagnar framtaki BB og sona við lóðarframkvæmd.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 15 byggingarfulltrúi og skipulags- og byggingarnefnd eru beðin um að koma með tillögur sem lúta að því að draga úr umferðarhraða í Tjarnarási. Erindi var vísað til nefndarinnar af Berglindi Axelsdóttur á bæjarráðsfundi.
Nefndin leggur til að settur verði upp umferðargreinir við Tjarnarás.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar, bókun verði breytt, þannig að erindinu hafi verið vísað til nefndarinnar af bæjarráði.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Fundargerð samþykkt.

 

1.3. Þjónustuhópur aldraðra, dags. 15.11.2007.
Félagslega eignaíbúðakerfið var lagt niður 1998. Enn er lánað til þjónustuíbúða aldraðra á sömu kjörum og á hinum almenna markaði.

Fundargerð framlögð
Liður 1 samþykktur með gerðum breytingum. Fundargerð samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: ELB, EF og GDP
Fundargerð samþykkt.

 

3. Lóðarumsóknir.
3.1. Eggert Halldórsson skilar inn lóð við Hjallatanga nr. 38, dags. 07.11.2007.
Staðfest að taka við lóðinni.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

3.2. Egill Egilsson sækir um lóð við Hjallatanga nr. 38, dags. 07.11.2007.
Samþykkt að Egill Egilsson fái lóðina við Hjallatanga nr. 38.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

3.3. Jon Nordsteien sækir um stækkun lóðar við Reitarveg 6A f.h. eiganda og tillögu að nýbyggingu, dags. 02.11.2007.
Stækkun lóðar við Reitarveg 6A hafnað, þar sem ekki er hægt að tryggja að framtíðarskipulag geri ráð fyrir aðkomu að bátaskýli.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

4. Erindi til afgreiðslu.
4.1. Bréf frá árshátíðarnefnd 2007, dags. 07.11.2007.
Samþykkt að fela bæjarstjóra að koma með tillögu að fyrirkomulagi árshátíðar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: LÁH, BA, ELB, EF og GDP

 

4.2.Bréf foreldraráðs Grunnskólans í Stykkishólmi, dags. 08.11.2007   varðandi mötuneyti við Grunnskóla Stykkishólms.
Samþykkt að hafna niðurgreiðslu máltíða við Grunnskólann í  Stykkishólmi, með tveimur atkvæðum gegn einu.


Tillaga til bæjarstjórnar
Undirrituð leggja til að Stykkishólmsbær niðurgreiði mötuneyti við Grunnskólann í Stykkishólmi fram að skólalokum í vor, um sem nemur 117 kr. á máltíð þannig að máltíðin kosti 300 kr.  Kostnaður tillögunnar nemur  950,000 – 1,050,000 og greiðist úr bæjarsjóði.
Greinargerð
Eins og fram hefur komið er mötuneytiskostnaður foreldra grunnskólabarna í Stykkishólmi einn sá hæsti ef ekki sá hæsti í landinu líkt og hefur verið frá upphafi mötuneytis við skólann.  Sé tekið mið af þeirri íbúaþróun sem verið hefur undanfarin ár er ljóst að gjaldskrám bæjarins verður að vera stillt í hóf og vera hvetjandi fyrir barnafólk að búa í Stykkishólmi.  


Til máls tóku: BA, LÁH, EF og GDP

Tillaga feld með fjórum atkvæðum gegn þremur.

Bókun vegna niðurgreiðslu máltíða í Grunnskólanum

Undirrituð greiða atkvæði gegn því að máltíðir sem boðið er uppá í Grunnskóla Stykkishólms séu niðurgreiddar.

Við teljum sjálfsagt að boðið sé uppá heita máltíð í hádeginu í Grunnskólanum. Það er frjálst val foreldra hvort þau nýti sér þennan kost fyrir hönd barna sinna. Þeir sem ekki hafa fjárhagslega aðstæður til að greiða fæði fyrir börn sín í Gunnskólanum eru eftir sem áður styrkt til fæðiskaupanna í gegnum Félags- og skólaþjónustuna.


Gretar D. Pálsson
Elísabet Lára Björgvinsdóttir
Ólafur Guðmundsson
Erla Friðriksdóttir


4.3. Bréf Sambands Íslenskra sveitafélaga, dags. 06.11.2007 varðandi verkfallslista fyrir 1. febrúar 2008.
Samþykkt að vísa erindinu til bæjarstjórnar.
Samþykkt að framlagðar breytingar  og að auglýsa lista.

 

4.4. Starfslýsing umsjónarmanns fasteigna.

Starfslýsing umsjónarmanns fasteigna framlögð og samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: LÁH, EF og GDP

 

5. Reglur og samþykktir.
5.1. Reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði- drög að breytingum.
Reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði hjá Stykkishólmsbæ samþykktar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: LÁH, DS og GDP

 

5.2. Drög að samþykkt um gatnagerðagjöld.
Þessi liður er tekinn fyrir síðar á fundinum.

 

6. Tilboð.
6.1. Tilboð í gatnagerð og lagnir við Móholt. Frá bæjarráðsfundi nr. 429.
Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við BB og syni ehf., sem voru með næst lægsta tilboðið.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: LÁH, DS, EF og GDP

 

7. Styrkbeiðnir.
7.1. Bréf Önnu Jóhannesdóttur, dýralæknis, dags. 08.11.2007 varðandi stofnfé í Sjálfseignarstofnun um einstaklingsmerkingar gæludýra.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

7.2. Bréf Ástu S. Kristjánsdóttur, verkefnisstjóra Snorraverkefnis, dags. 09.11.2007. varðandi stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2008.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

 

8. Fjármál.

8.1. Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá Stykkishólmsbæ.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá Stykkishólmsbæ samþykktar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: EF, DS,LÁH og GDP

 

8.2. Tillaga bæjarstjóra að álagningarreglum fyrir árið 2008.

Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu:

 

Tillaga um að útsvar fyrir árið 2008 verði óbreytt miðað við fyrra ár þ.e. 13,03%.

 

Tillaga að álagningu fasteignagjalda árið 2008.

Fasteignaskattur A-flokkur                             0,43%
Fasteignaskattur B-flokkur                             1,32%
Fasteignaskattur C-flokkur                             1,65% 

Lóðaleiga íbúðarhúsnæðis                              2,00%
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis                            2,50%
Lóðarleiga ræktunarland                                 6,00%

Holræsagjald íbúðarhúsnæði                           0,22%
Holræsagjald atvinnuhúsnæði                          0,22%

 

Sorphirðu- og sorpeyðingargjöld pr. íbúð    25.000 kr.

 

Staðgreiðsluafsláttur 3% til þeirra sem greiða fyrir 1. mars 2008 öll fasteignagjöld og eru skuldlausir við bæjarsjóð og fyrirtæki bæjarins.

 

Sorphirðu og/eða sorpeyðingagjöld af fyrirtækjum verði innheimt skv. sérstakri gjaldskrá.

Elli- og örorkulífeyrisþegar:

Afsláttur á fasteignaskatti til örorku- og ellilífeyrisþega er tekjutengdur og er hámarksafsláttur kr. 50.000.-  

 

Afsláttur vegna einstaklinga:
Tekjumörk:  Afsláttur:
 1.625.000.-  100%  
 1.820.000.-  75% 
 2.000.000.-  50%  
 2.195.000.-  25%  
 2.380.000.-  0%  

 

Afsláttur vegna hjóna:
 Tekjumörk:  Afsláttur:
 2.884.000.-  100%  
 3.075.000.-  75%  
 3.258.000.-  50%  
 3.451.000.-  25%  
 3.628.000.-  0% 

 
Gjalddagar fasteignagjalda verða 5 talsins á tveggja mánaða fresti þ.e. febrúar, apríl, júní, ágúst, október, fyrst 1. febrúar 2008.

 

Tillaga að álagningarreglum fasteignagjalda og útsvars Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 samþykktar.

Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: EF,LÁH,DS og GDP

 

8.3. Drög að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008.
Þessi liður er tekinn fyrir síðar á fundinum.
 
9. Tillögur.

9.1. Tillaga Ólafs Guðmundssonar og Gretars D. Pálssonar.

Með það að markmiði að auka umferðaröryggi og tryggja eða auka líkur á að farið verði að hraðatakmörkunum, leggja undirritaðir til að í samráði við Vegagerðina og lögreglu verði vegkaflinn frá Vogsbotni og inn í bæinn tekinn til sérstakrar endurskoðunar með tilliti til umferðarhraða, merkinga og umferðarmannvirkja. 

Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson

Samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: DS,ÓG,ELB,LÁH og GDP

 

9.2. Tillaga Berglindar Axelsdóttur.
Tillaga til Bæjarráðs Stykkishólms
Undirrituð leggur það til að Skipulags- og byggingarnefnd og Umhverfisnefnd fundi saman reglulega. Lagt er til að nefndarmenn  komi sér saman um tíðni funda og fyrirkomulag.  Formaður Skipulags- og bygginganefndar boði til fyrsta fundar.

Berglind Axelsdóttir

Tillaga felld  á jöfnum atkvæðum. Gretar sat hjá.

Undirritaður telur sjálfsagt og eðlilegt að nefndir vinni saman þegar verkefni þeirra skarast.

Gretar D. Pálsson
   
Samkvæmt ósk er tillagan borun upp að nýju.Tilaga feld með þremur atkvæðum gegn þremur, Gretar D. Pálsson sat hjá.

Til máls tóku: ÓG,LÁH,DS og GDP

Bókun vegna tillögu Berglindar Axelsdóttur

Tillaga Berglindar Axelsdóttur var lögð fram án rökstuðnings og án nokkurrar greinargerðar.

Í upphafi þessa kjörtímabils var sérstök umhverfisnefnd stofnuð til að fara með umhverfismál bæjarfélagsins. Áður hafði skipulags- og byggingarnefnd farið með þennan málaflokk. Tilgangur þessara breytinga var að leggja áherslu á mikilvægi umhverfismála. Það er mat undirritaðra að vel hafi tekist til og umhverfismálin fá nú enn meira vægi en áður.

Í bókun Gretars D. Pálssonar undir þessum lið kemur fram að sjálfsagt og eðlilegt sé að nefndir bæjarins vinni saman þegar verkefni þeirra skarast. Við teljum að samstarf eigi að vera á grundvelli verkefna en ekki skv. tilskipun bæjaryfirvalda.

Gretar D. Pálsson
Elísabet Lára Björgvinsdóttir
Ólafur Guðmundsson
Erla Friðriksdóttir

Fundargerð samþykkt.
Til máls tóku: EF,BA,LÁH,DS og GDP

 

2. Fundargerðir nefnda.
 
2.1. Stýrihópur um mótun fjölskyldustefnu Stykkishólmsbæjar, dags. 21.05.2007, 18.06.2007, 04.09.2007, 18.09.2007 og 09.10.2007.
Fundargerðir framlagðar og staðfestar.

 

2.2. Fræðslunefnd, dags. 08.10.2007 og 05.11.2007.
Fundargerðir framlagðar og staðfestar.

 

2.3. Stjórn Dvalarheimilis aldraðra, dags. 10.10.2007 og 07.11.2007.
Fundargerðir framlagðar og staðfestar.

2.4. Skólanefnd Tónlistarskóla, dags. 10.10.2007.
Fundargerð framlögð og staðfest.

 

2.5 Þjónustuhópur aldraðra, dags. 11.10.2007 og 15.11.2007.
Fundargerðir framlagðar, fundargerð frá 15.11.2007 samþykkt fyrr á fundinum og fundargerð frá 11.10. 2007 samþykkt.
Til máls tóku: EF,LÁH og BA

 

2.6. Æskulýðs- og íþróttanefnd, dags. 25.10.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.

2.7. Umhverfisnefnd, dags. 29.10.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.

 

2.8. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 30.10.2007 og 13.11.2007.
Fundargerðir framlagðar og samþykktar fyrr á fundinum.

 

3.  Fjármál.
  
3.1. Drög að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 – fyrri umræða.

Þór Örn bæjarritari gerði grein fyrir fyrstu drögum að fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008.
Samþykkt að vísa fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 til seinni umræðu.
Til máls tóku: GDP,DS og LÁH

 

4. Samþykktir.

 

4.1. Samþykkt um gatnagerðagjöld – fyrri umræða.
Samþykkt að vísa samþykktum um gatnagerðargjöld til seinni umræðu.
Til máls tóku: EF,LÁH,DS,BA og GDP


Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.19:50
Þór Örn Jónsson


 



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré