Bæjarstjórn, fundur nr. 230
Dags. 20.12.2007
Bæjarstjórn Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 20. desember 2007 kl. 17.00 í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar GDP
Elísabet Lára Björgvinsdóttir, ELB
Ólafur Guðmundsson, ÓG
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, EF
Símon M. Sturluson, varamaður SMS
Berglind Axelsdóttir, BA
Lárus Á. Hannesson, LÁH
Davíð Sveinsson, DS
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Forseti bæjarstjórnar setti fund og stýrði.
Forseti bæjarstjórnar fór fram á afbrigði við dagskrá fundar um að setja lið 5 á dagskrá Bréf Sjávarútvegsráðuneytis varðandi byggðakvóta Stykkishólmsbæjar fiskveiðiárið 2006/2007. Samþykkt samhljóða.
1. Fundargerðir bæjarráðs.
1.1. Fundargerð bæjarráðs nr. 431, dags. 13.12.2007.
Liður 1 fundargerðir.
Liður 1.5. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 11.12.2007.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Skólastígur 12 íbúðarhúsnæði.
Bæjarráð vísaði erindi til skipulags- og bygginganefndar þ. 22. nóvember s.l. vegna athugasemda frá tveimur aðilum sem bárust innan tilskilins auglýsingafrests en voru ekki lagðar fyrir skipulags- og byggingarnefndina. Athugasemdirnar eru frá Hergard Jensen Skólastíg nr. 10, dags. 29. 10.2007 , og Birni Jóhanni Guðmundssyni, tölvupóstur dags. 17.08.2007 , sendur þ. 6. 11. 2007.
Nefndin fellur frá fyrri afgreiðslu í ljósi framkominna athugasemda. Erindi er vísað í yfirstandandi deiliskipulagsvinnu af svæðinu.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 2 Hjallatangi 38, einbýlishús.
Skipavík ehf. óskar eftir f.h. lóðarhafa að byggja einbýlishús á lóð nr. 38 við Hjallatanga. Stærðir: 146,4 m2, 556,0 m3.
Samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 5 flokkunarsvæði við gámastöðina Snoppu.
Stefán Eyfjörð Stefánsson f.h. Íslenska Gámafélagsins ehf. óskar eftir að staðsetja flokkunarstöð á sorpi norðan við gámastöðina Snoppu fyrir geymslugáma, tjaldskýli og jarðgerðargám sbr. bréf og teikningar dags. 4.12.2007.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest samhljóða.
Til máls tóku:LÁH og GDP
Liður 7 Nesvegur 14, færsla á gluggum.
F.h. Tinds ehf. Páll Guðmundsson óskar eftir leyfi til að færa glugga á skemmu við Nesveg 14 sbr. bréf dags. 10.12. 2007.
Samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 9 Skipulagsvinna tjaldsvæðis .
Skipulags- og byggingarfulltrúi greindi frá að nauðsyn væri að endurskoða skipulag tjaldsvæðis í heild sinni, m.a. vegna nýrrar aðkomu inn á svæðið, legu vegar og þörfina fyrir nýju þjónustuhúsi.
Nefndin leggur til að lokið verði við skipulag af svæðinu.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Fundargerð samþykkt.
Liður 1.6. Atvinnumálanefnd, dags. 11.12.2007.
Fundargerð framlögð, liður 1 tillaga um hljóðleiðsögn samþykkt og tillaga um styrkumsókn til ferðamálaráðs vegna tjaldsvæðis samþykkt. Fundargerð samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest samhljóða.
Til máls tóku:DS og GDP
Liður 4.1. Bréf Siglingastofnunar Íslands, dags. 01.12.2007 varðandi úttekt á slysavörnum í höfnum.
Erindi vísað til hafnarstjórnar.
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest samhljóða.
Liður 4.2. Stofnsamningur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga-drög.
Stofnsamningur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga samþykktur.
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest samhljóða.
Liður 4.3. Bréf Magnúsar V. Vésteinssonar, dags. 20.11.2007 varðandi beiðni um samþykki á landamerkjum Hóla og Vatnsdals.
Bæjaráð gerir ekki athugasemdir við landamerki milli Hóla og svæðis í eigu Stykkishólmsbæjar við Vatndalsvatn.
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest samhljóða.
Liður 4.4. Tilboð Eldstoða í eldvarnareftirlit í Stykkishólmi.
Tilboði vísað til næsta bæjarstjórnarfundar.
Samþykkt samhljóða að leita eftir tilboðum í eldvarnareftirlit í Stykkishólmi, annað hvort sameiginlega með nærliggjandi sveitarfélagum á Snæfellnesi eða Stykkishólmsbær einn.
Til máls tóku:EF, DS, ÓG og GDP
Liður 4.5. Sameiginleg tillaga bæjarstjóra bæjarfélaga á Snæfellsnesi um stuðning við nemendafélag FSN. Frá bæjarráðsfundi nr. 429.
Samþykkt samhljóða að bæjarfélögin á Snæfellsnesi styrki nemendafélag FSN sem nemur einni rútuferð í mánuði til eflingar félagslífs nemenda. Þó að hámarki um 400.000 kr. fyrir skólaárið. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga greiðir nemendafélaginu styrkinn gegn framvísun reiknings fyrir rútuferðum. Félags- og skólaþjónustan innheimtir reikninginn hjá sveitarfélögunum skv. reiknireglu Félags- og skólaþjónustunnar.
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest samhljóða.
Til máls tóku:EF, BA og GDP
Liður 5. Erindi til umsagnar.
Liður 5.1. Bréf Sýslumanns Snæfellinga, dags. 22.11.2007 varðandi nýtt rekstrarleyfi Hótels Breiðafjarðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Hótels Breiðafjarðar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt og Ólafur Guðmundsson sat hjá vegna tengsla við embætti Sýslumanns Snæfellinga.
Liður 6. Samningar.
Liður 6.1. Verksamningur milli Stykkishólmsbæjar og BB & sona ehf., dags. 12.12.2007 um gatnagerð og lagnir við Móholt.
Verksamningur milli Stykkishólmsbæjar og BB & sona ehf. framlagður og samþykktur.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 7. Reglur og samþykktir.
Liður 8. Kæra
Liður 8.2. Umsögn Stykkishólmsbæjar, dags. 11.12.2007 varðandi stjórnsýslukæru frá Páli Guðmundssyni f.h. Tinds ehf.
Umsögn Stykkishólmsbæjar samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt fjórum atkvæðum gegn þremur.
Til máls tóku:LÁH og GDP
Liður 9. Fjármál.
Liður 9.1. Fjárhagsáætlun Félags- og skólaþjónustu Snæfellsness fyrir árið 2008.
Fjárhagsáætlun Félags- og skólaþjónustu Snæfellsness fyrir árið 2008 samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Fundargerð staðfest samhljóða.
2. Fundargerðir nefnda.
2.1. Umhverfisnefnd, dags. 26.11.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.2. Skólanefnd Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 28.11.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
Til máls tóku:ELB, LÁH og GDP
2.3. Stjórn Dvalarheimilis, dags. 04.12.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.4. Fræðslunefnd, dags. 10.12.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
Til máls tóku: LÁH og EF
2.5. Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 11.12.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt fyrr á fundinum.
2.6. Atvinnumálanefnd, dags. 11.12.2007.
Fundargerð framlögð og samþykkt fyrr á fundinum.
3. Fjármál.
3.1. Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 – síðari umræða.
Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 samþykkt samhljóða.
Gretar forseti bæjarstjórnar þakkaði bæjarritara og stafsfólki bæjarskrifstofunnar fyrir vel unnin störf við vinslu á fjárhagsáætlun. Lárus tók undir þakkir til bæjarritara og stafsfólks bæjarskrifstofunnar.
Til máls tóku:DS,EF,BA,LÁH og GDP
3.2. Þriggja ára fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar, 2009-2011, fyrri umræða.
Samþykkt að vísa þriggja ára fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar til seinni umræðu.
Til máls tóku:DS og GDP
4. Samþykktir.
4.1. Samþykkt um gatnagerðagjöld – síðari umræða.
Gatnagerðagjöld í Stykkishólmsbæ samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:EF,LÁH,DS og GDP
5. Bréf Sjávarútvegsráðuneytis varðandi byggðakvóta Stykkishólmsbæjar fiskveiðiárið 2006/2007.
Bókun Elísabet L. Björgvinsdóttur.
Ég tel rétt að víkja af fundi undir þessum lið, úr því sem komið er og kalla inn í minn stað varamann minn, Símon Sturluson.
Ég vil jafnframt, áður en ég vík af fundi , lýsa því yfir að ég tel mig ekki vanhæfa í því máli sem til umfjöllunar er og byggi þá afstöðu mína m.a. á nokkrum úrskurðum um hæfi sveitarstjórnarmanna í sambærilegum málum.
Ég vill jafnframt benda á að aldrei í ferlinu hefur komið fram nein önnur afstaða annarra bæjarfulltrúa um hæfi mitt í málinu.
Elísabet L. Björgvinsdóttur
Elísabet Lára Björgvinsdóttir vék af fundi og Símon M. Sturluson kom inn á fund sem varmaður hennar.
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkir að leita álits umboðsmanns Alþingis og fá úr því skorið hvort mat sjávarútvegsráðuneytis á hæfi Elísabetar Láru Björgvinsdóttur (ELB), við atkvæðagreiðslu á tillögu bæjarstjórnar til sjávarútvegsráðherra að sérstöku skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta, eigi við rök að styðjast og sé í samræmi við fyrri úrskurði ráðuneyta í sambærilegum málum.
Einnig, að þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að aðild ELB hafi ekki ráðið úrslitum við atkvæðagreiðslu í málinu, hvort sú ákvörðun ráðuneytisins að hafa í hyggju að fella úr gildi reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Stykkishólmi fyrir fiskveiðiárið 2006/2007, vegna meints vanhæfis ELB, eigi við rök að styðjast.
Gretar D. Pálsson
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:GDP,DS,LÁH,SMS,ÓG og BA
Í bréfi sjávarútvegsráðuneytis dagsettu þann 14.desember 2007 er tilkynnt það mat ráðuneytisins að hæfisreglum 19.gr sveitarstjórnarlaga hafi ekki verið framfylgt við gerð tillagna um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í sveitarfélaginu. Ekki er lagður dómur á skilyrðin fyrir úthlutun byggðakvótans, enda þær reglur settar af ráðuneytinu sjálfu að tillögu bæjarstjórnar.
Ráðuneytið hefur í hyggju að fella reglurnar úr gildi vegna ætlaðs vanhæfis eins bæjarfulltrúa, en gefur bæjarstjórn kost á að gera tillögur að nýjum reglum um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta.
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur ekki efast um hæfi Elísabetar Láru Björgvinsdóttur til að fjalla um svo almennt mál sem tillögur að sérstöku skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta er. Á engan hátt verður sýnt fram á að hlutdeild hennar í atkvæðagreiðslu málsins hafi verið byggð á öðrum sjónarmiðum en þeim sem snerta byggðalagið í heild sinni og því að byggðakvótanum er úthlutað sbr. 4. gr. B. reglugerðar nr. 440/2007, þ.e. úthlutun vegna samdráttar í vinnslu á skel. Tillagan að sérstöku skilyrði fyrir úthlutuninni tekur mið af því og því er lagt til að þeir aðilar sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti verði úthlutað hlutdeild í byggðakvótanum en það eru bátar þeirra útgerða sem eiga aflahlutdeild í hörpuskel í Breiðafirði þann 1. september 2006 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum og aðilar sem keypt hafa báta eða útgerðir sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum. Byggðakvóta verði úthlutað í hlutfalli við aflahlutdeild í hörpusskel í Breiðafirði þann 1.9. 2006.
Í samræmi við framangreint, ásamt því að bæjarstjórn telur þær reglur sem sjávarútvegsráðuneytið hefur sett að tillögu bæjarstjórnar um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í sveitarfélaginu, sanngjarnar og í samræmi við umsókn og úthlutun byggðakvótans, staðfestir bæjarstjórn fyrri tillögu sína.
Bæjarstjórn leggur því til að áfram gildi reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Stykkishólmi fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 sem staðfestar voru af sjávarútvegsráðuneytinu og birtar í B-deild Stjórnartíðinda með 3.tl auglýsingar nr. 844/2007, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.
Gretar D. Pálsson
Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn tveimur, Davíð sat hjá.
Vegna tillögu D-listans um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2006-2007.
Undirrituð hafna tillögu meirihluta bæjarstjórnar Stykkishólms á þeim forsendum að við teljum að nota eigi byggðakvótann til styrkingar hafnarinnar eins og kostur er eins og hafnarnefnd hefur samhljóða lagt til.
Lárus Ástmar Hannesson
Berglind Axelsdóttir
Lög um úthlutun byggðakvóta kveður á um að afla skuli landað í heimahöfn að tvöföldu úthlutuðu magni. Hagsmunir hafnarinnar eru því tryggðir í lögunum.
Gretar D. Pálsson
Til máls tóku:GDP,EF,ÓG,LÁH og DS
Forseti bæjarstjórnar þakkar minnihluta fyrir að samþykkja lið 5 inn á dagskrá.
Hann óskaði fundarmönnum gleðilegra jóla og farsælt komandi ár og þakkaði fyrir samstarfið á árinu og tók fundurinn undir.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.19:05
Þór Örn Jónsson
Til baka