Bæjarstjórn, fundur nr. 237
Dags. 28.8.2008
Bæjarstjórn Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 28. ágúst 2008 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar GDP
Elísabet Lára Björgvinsdóttir, ELB
Ólafur Guðmundsson, ÓG
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, EF
Lárus Ástmar Hannesson, LÁH
Berglind Axelsdóttir, BA
Davíð Sveinsson, DS
Þór Örn Jónsson, bæjarritari
Forseti bæjarstjórnar setti fund og stýrði.
1. Fundargerðir bæjarráðs.
1.1. Fundargerð bæjarráðs nr. 439, dags. 10.07.2008.
Fundargerð framlögð.
Liður 1 kosning formanns og varaformanns bæjarráðs.
Ólafur Guðmundsson var kosinn formaður og Elísabet Lára Björgvinsdóttir var kosin varaformaður.
Fundargerðir nefnda
Liður 2 fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, dags. 01.07.2008 (108. fundur).
Fundargerð framlögð.
Liður 1.Laufásvegur 17. Óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar.
Lögð fram að nýju breyting á deiliskipulagi miðbæjar fyrir lóð nr. 17 við Laufásveg. Breytingin fólst í stækkun á byggingarreit og leyfa kjallara undir hluta af húsi. Erindið var grenndarkynnt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar samkvæmt 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga fyrir eigendum húsa að Skúlagötu 26 og Laufásvegi 15. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 4.Austurgata 10, bílastæði á lóð.
Halldór Jóhann Halldórsson óskar eftir að gera bílastæði vestan megin við húsið sbr. bréf dags. 18.06.´08.
Erindi synjað þar sem aðkeyrsla fyrir bíl er til staðar fyrir austan húsið.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 5.Sverrir Kristjánsson óskar eftir að stækka lóð Höfðagötu 9 úr 442 m2, í 903 m2 sbr. mæliblað.
Erindi samþykkt.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 6.Hamraendi 3 mhl. 02, bæta við gluggum.
Hamraafl ehf /Símon Sturluson mhl. 020106 og Beiti ehf /Heimir Kristinsson mhl. 020101 óska eftir að bæta við gluggum í sitt hvort bilið að vestanverðu. Skriflegt samþykki meðeigenda hússins liggur fyrir. Hamraafl ehf, óskar einnig eftir að setja milliloft í bil mhl. nr. 02 0106, samkvæmt teikningu frá Verkfræðistofur EK dags. júní 2008.
Erindi samþykkt.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 8.Ægisgata 8, útlitsbreytingar.
Teiknistofan hús og skipulag /Hildigunnur Haraldsdóttir FAÍ sækir um f.h. Guðbrands Björgvinssonar að klæða húsið og fjarlægja pósta úr stofuglugga sbr. teikn. dags. 25.06.´08.
Björgvin situr hjá undir lið 8 vegna tengsla.
Erindi samþykkt.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Lárus Á. Hannesson mætir til fundar.
Erindi til kynningar.
Liður 9 tvö bréf og reglugerð félags- og tryggingamálaráðuneytis, dags. 11.06.2008 um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými og dags, 02.07.2008 varðandi aðsetur matsteyma.
Framlagt. Bréfum vísað til þjónustuhóps aldraðra og stjórnar Dvalarheimilisins.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Erindi til afgreiðslu/umsagnar.
Liður 13 kennslukvóti GSS skólaárið 2008-2009, dags. 07.07.2008.
Kennslukvóti GSS skólaárið 2008-2009 samþykktur.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: BA og GDP
Liður 14 umsókn um áframhaldandi starfsdeild við Grunnskólann í Stykkishólmi, dags. 08.07.2008.
Umsókn um áframhaldandi starfsdeild við Grunnskólann í Stykkishólmi samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 15 bréf bæjarstjóranna á Snæfellsnesi, dags. 26.06.2008 varðandi tilnefningu fulltrúa í Dreifmenntar verkefninu og kostnað vegna skólaaksturs í FSN.
Samþykkt að tilnefna Rósu Guðmundsdóttur sem fulltrúa sveitarfélagana á Snæfellsnesi í Dreifmenntar verkefninu og samþykkt að greiða hlutdeild í tapi skólaaksturs FSN.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 16 bréf Sólbjartar S. Gestsdóttur, dags. 08.07.2008 varðandi umsókn um námsstyrk.
Samþykkt að veita Sólbjörtu styrk skv. reglum Stykkishólmsbæjar um námsstyrki.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 17 bréf Steinunnar I. Magnúsdóttur, dags.12.06.2008 varðandi umsókn um námstyrk.
Samþykkt að veita Steinunni styrk skv. reglum Stykkishólmsbæjar um námsstyrki.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 18 bréf Hrafnhildar Sævarsdóttur og Berglindar Gunnarsdóttur, dags. 03.07.2008 varðandi styrkbeiðni vegna Evrópumóts í Mónakó.
Samþykkt að veita Hrafnhildi styrk að upphæð 20.000.- og Berglindi styrk að upphæð 20.000.-.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 19 tölvupóstur Hrafnhildar Sævarsdóttur, dags. 08.07.2008 varðandi styrkbeiðni.
Samþykkt að greiða Hrafnhildi þær vinnustundir sem hún missir úr vinnuskóla Stykkishólmsbæjar vegna landsliðsskyldu.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:LÁH og GDP
Liður 20 styrkumsókn, ódags. varðandi nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 21 bréf Hafnasambands Íslands, dags. 30.06.2008 varðandi boðun á hafnasambandsþing 25. og 26. sept. 2008.
Fulltrúar á Hafnasambandsþing 25. og 26. sept. 2008: Erla Friðriksdóttir, hafnarstjóri, Símon Sturluson formaður hafnarstjórnar og Hrannar Pétursson hafnarvörður.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 22 bréf Jeratúns, dags. 30.06.2008 varðandi hlutafjáraukningu aðildarsveitarfélaga í Jeratúni ehf. 2008.
Samþykkt hlutafjáraukning í Jeratúni ehf. að upphæð 8.640.000.-.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Bókun varðandi beiðni stjórnar Jeratúns ehf. um aukningu
hlutafjár frá Stykkishólmsbæ
Við undirrituð samþykkjum aukningu hlutafjár frá Stykkishólmsbæ. Við teljum þó mjög miður að ríkið komi ekki betur að rekstri Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði og standi við þau lög sem kveða á um að rekstur framhaldsskóla sé í höndum ríkis. Það er augljóst að ef sá leigusamningur sem í gildi er á milli Menntamálaráðuneytis og þeirra sveitarfélaga sem standa að Jeratúni ehf. verður ekki leiðréttur munu sveitarfélögin þurfa að auka hlutafé félagsins árlega næstu árin til að standa undir húsnæðiskostnaði skólans.
Lárus Ástmar Hannesson
Berglind Axelsdóttir
Davíð Sveinsson
Til máls tóku:BA,GDP,LÁH,EF og DS
Liður 23 bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, dags. 27.06.2008 varðandi umsókn um úthlutun byggðakvóta.
Tillaga um skiptingu byggðakvóta
Undirrituð leggja til að helmingur byggðakvóta fari til að bæta þeim sem höfðu aflahlutdeild í hörpuskel upp samdrátt vegna banns við skelfiskveiðum á Breiðafirði.
helmingur byggðakvótans fari til þeirra báta sem hafa landað í Stykkishólmshöfn frá og með upphafi kvótaárs 2007 og fram til loka kvótaárs 2008 og skiptist í jöfnu hlutfalli við landaðan afla í Stykkishólmshöfn frá og með upphafi kvótaárs 2007 og fram til loka kvótaárs 2008.
Útgerðum sem úthlutað er byggðakvóta er skylt að leggja til aflaheimildir að lágmarki til jafns við úthlutaðan byggðakvóta sem einnig verði unninn í fiskvinnslu í bæjarfélaginu.
Greinargerð
Við teljum að þann kvóta sem byggðarlagið fær úthlutað vegna tekjumissi vegna banns við skelveiðum vel varið á þennan hátt. Með þessari úthlutun er kominn hvati fyrir útgerðir að landa afla í Stykkishólmshöfn sem eykur tekjur hafnarinnar og byggðarlagsins í heild.
Berglind Axelsdóttir
Lárus Á. Hannesson
Tillaga felld með fimm atkvæðum gegn tveimur.
Tillaga bæjarráðs Stykkishólmsbæjar dags. 10.07.08 að reglum um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Stykkishólmi fyrir fiskveiðiárið 2007/2008 er því þannig:
Byggðakvótanum er úthlutað sbr. 4. gr. B. reglugerðar nr. 640/2008, þ.e. úthlutun vegna samdráttar í vinnslu á skel. Einungis þeir aðilar sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti verði úthlutað hlutdeild í byggðakvótanum. Það eru bátar þeirra útgerða sem eiga aflahlutdeild í hörpuskel í Breiðafirði þann 1. september 2007 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum og aðilar sem keypt hafa báta eða útgerðir sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum. Byggðakvóta verði úthlutað í hlutfalli við aflahlutdeild í hörpuskel í Breiðafirði þann 1.9.2007.
Tillaga samþykkt með fimm atkvæðum gegn tveimur.
Til máls tóku:LÁH og GDP
Liður 24 bréf Sæferða ehf., dags. 26.06.2008 varðandi aðkomuleiðir að ferjunni Baldri.
Erindi þegar komið í vinnslu. Nú þegar er búið að halda fund með Pétri Ágústssyni, framkvæmdastjóra Sæferða ehf. Auk Péturs sátu fundinn, Erla Friðriksdóttir, hafnarstjóri, Símon Sturluson formaður hafnarstjórnar og Hrannar Pétursson, hafnarvörður. Samþykkt að vísa erindinu til hafnarstjórnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 25 bréf Katrínar Oddsteinsdóttur dags, 12.06.2008 varðandi félagslegar íbúðir.
Bæjarstjóra falið að svara Katrínu.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:BA og GDP
Liður 26 tillaga GDP og ÓG um að taka 12-18 mánaða börn í leikskólann ásamt greinargerð frá leikskólanum, dags. 18.06.2008 varðandi leikskólagöngu 12-18 mánaða barna.
Tillaga um að taka inn 12-18 mánaða börn í leikskólann:
Undirritaðir leggja til að frá 1. september 2008 verði heimilt að taka börn allt frá 12 mánaða aldri inn í leikskólann.
Greinargerð:
Undirritaðir telja að bæjarfélagið eigi að bjóða upp á þessa þjónustu við foreldra ungra barna þar sem aðstæður í leikskólanum leyfa og að ekki eru aðrir möguleikar á dagvistun fyrir 12 – 18 mánaða börn í Stykkishólmi. Margir foreldrar geta því ekki snúið til baka til vinnu að fæðingaorlofi loknu.
Miðað við núverandi aðstæður í leikskólanum bæði hvað varðar faglega getu starfsfólks og húsrými, er nægt pláss fyrir þau börn sem eru á aldrinum 12-18 mánaða og búsett eru í bæjarfélaginu.
Skv. kostnaðarmati er áætlaður kostnaður við leiktæki og annan búnað sem bæta þyrfti við til að geta tekið á móti börnunum um 1-1,5 millj. kr. Viðbótar rekstrarkostnaður leikskólans samsvarar launum 60-80% stöðugildis. Tekjuaukning er í samræmi við fjölda barna og vistunarstundir. Aukinn rekstrarkostnaður við þessa breytingu umfram tekjur er áætlaður um 800-1.000 þús. kr. á ári.
Gretar D. Pálsson
Ólafur Guðmundsson
Tillaga samþykkt samhljóða.
Elísabet L. sat hjá í þessum lið, vegna tengsla.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:LÁH,ELB og GDP
Liður 27 tillaga bæjarstjóra vegna skólamáltíða.
Tillaga vegna skólamáltíða:
Þar sem engin tilboð bárust í skólamáltíðir leggur bæjarstjóri til að kannaðar verði aðrar leiðir við matseld fyrir grunnskólabörn.
Tillaga bæjarstjóra samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Samningar/tilboð.
Liður 28 samningur. Stykkishólmsbær og Sæferðir ehf. vegna hafnargjalda ferjunnar Baldurs.
Samningur framlagður og samþykktur.
Lárus Á. sat hjá vegna tengsla.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Fundargerð samþykkt.
1.2.Fundargerð bæjarráðs nr. 440, dags. 21.08.2008.
Fundargerð framlögð.
|
Liður 1 fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, dags. 12.08.2008 (109. fundur).
Fundargerð framlögð.
Liður 1 Arnarborg frístundabyggð, óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Lögð fram að nýju óveruleg deiliskipulagsbreyting frístundabyggðar við Arnarborg. Deiliskipulagsbreytingin var grenndarkynnt fyrir eigendum frístundahúsa til og með 21. júlí. Athugasemdarbréf barst frá Starfsmannafélagi Kópavogs, Starfsmannafélagi Garðabæjar og Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar dags. 16. júlí 2008.
Í ljósi athugasemda leggur nefndin til að aðkomuvegur verði felldur út. Að öðru leiti verði skipulagstillaga samþykkt.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 2 Reitavegur 6, viðbygging.
Þorbjörn Geir Ólafsson kt. 300575 5369 sækir um eftirfarandi breytingar á Reitavegi nr. 6 . a) Að byggja um 25 m2 viðbyggingu við aðalhús. b) Að setja hurð á austurgafl og glugga á vesturgafl geymslu sbr. teikningar dags.15.05.2008. Stærðir 25,3 m2.
Nefndin samþykkir að grenndarkynna erindi fyrir eigendum húsa við Reitaveg nr. 2, 4 og 4a og lóðarhafa við Reitaveg nr. 6a.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 3 Laufásvegur 17, byggingarleyfi.
Símon Sturluson kt. 241256-4489 sækir um að byggja einbýlishús með bílgeymslu að Laufásvegi nr. 17 samkvæmt teikningum frá AL- Hönnun/ Runólfi Þ. Sigurðssyni dags. 10.08.2008. Stærðir samtals: 260,3 m2, 911,6 m3.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 4 Skúlagata 25, byggingarleyfi.
Guðbjörn Þór Ævarsson kt. 211056-7899 sækir um að byggja einbýlishús og bílgeymslu við Skúlagötu nr. 25 samkvæmt teikningum frá KRark/Kristni Ragnarssyni dags. 12.08.2008. Stærðir samtals: 204,1 m2, 659,0 m3.
Erindi samþykkt.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:LÁH,EF og GDP
Liður 5 Skúlagata 1, breytingar á tröppum og hurð.
Fasteignir Ríkisins /Kristján Þórarinsson sækir um að endurbyggja og breyta tröppum og að setja útihurð á þvottahús samkvæmt teikningum frá Vektor/Jóni Hrafni Hlöðverssyni dags 16.07.2008. Samþ meðeigenda liggur fyrir.
Erindi samþykkt.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 6 Reitavegur 10. Lóðarstækkun.
Álfar ehf./ Ásmundur Skeggjason sækir um lóðarstækkun, og að endurnýja hurðir og þakklæðningu hússins samkvæmt erindi dags. 15.07.2008.
Lóðarstækkun hafnað þar sem enn hefur ekki verið unnið deiliskipulag af svæðinu.
Nefndin samþykkir erindi um endurnýjun á hurðum og klæðningu.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 8 Þjónustuhús við Tjaldsvæði.
Stykkishólmsbær sækir um að breyta staðsetningu á þjónustuhúsi á tjaldsvæði bæjarins samkvæmt teikningum frá Arkitektastofu OG/ Ormari Þór Guðmundssyni dags. 08.08. 2008.
Erindi samþykkt.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:LÁH,GDP og EF
Liður 9 Laufásvegur 13. Heitur Pottur.
Berglind Þorbergsdóttir Laufásvegi 13 sækir um að staðsetja heitan pott við húsið samkvæmt erindi dags. 29.07.2008.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum byggingarreglugerðar.
Berglind sat hjá undir 9. lið.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 12 Móholt 14 – 16, byggingarleyfi.
Kristján Hallvarðsson kt. 040567-4889 sækir um að byggja parhús við Móholt nr. 14-16 samkvæmt teikningum frá OSS studio/ Sigrúnu Birgisdóttur dags. 12.08.2008. Stærðir samtals: Móholt 14, 128,9 m2, 436,1 m3. Móholt 16, 181,6 m2, 613,3 m3.
Erindi samþykkt að uppfylltum skilyrðum.
Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:LÁH og GDP
|
Lóðaumsóknir.
|
Liður 3-10 lóðarumsókn Skipavíkur ehf., dags. 14.08.2008 um lóðina Hjallatangi 44.
Liður 3-10 lóðarumsókn Emil og Bergur ehf., dags. 14.08.2008
um lóðina Hjallatangi 44.
Liður 3-10 lóðarumsókn Hrafnhildar Jónsdóttur, dags. 14.08.2008 um lóðina Hjallatangi 44.
Liður 3-10 lóðarumsókn Emilli ehf., dags. 14.08.2008 um lóðina
Hjallatangi 44.
Liður 3-10 lóðarumsókn Emils Þórs Guðbjörnssonar,
dags. 14.08.2008 um lóðina Hjallatangi 44.
Liður 3-10 lóðarumsókn Davíðs Sveinssonar,
dags. 05.08.2008 um lóðina Hjallatangi 44.
Liður 3-10 lóðarumsókn Önnu Maríu Rafnsdóttur,
dags. 05.08.2008 um lóðina Hjallatangi 44.
Liður 3-10 lóðarumsókn Elísabetar Svansdóttur og Magnúsar A. Jónssonar, dags. 08.08.2008 um lóðina Hjallatangi 44.
Fyrir fund var dregið um lóðina. Út var dregin Hrafnhildur Jónsdóttir.
Samþykkt að úthluta Hrafnhildi Jónsdóttur lóðina við Hjallatanga 44.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:LÁH,DS og GDP |
Erindi til kynningar.
|
Liður 16 bréf Siglingastofnunar Íslands, dags. 23.07.2008 varðandi úttekt á Stykkisbryggju og ferjuaðstöðu.
Framlagt, samþykkt að vísa erindinu til hafnarstjórnar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
|
Erindi til afgreiðslu/umsagnir.
|
Liður 19 bréf Vinjar Þorsteinsdóttur sálfræðinema og fl., dags. 05.08.2008 varðandi hegðunarvandamál barna og unglinga og úrræði á netinu.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 20 bréf Kaupþings banka hf., dags. 30.07.2008 varðandi lóðarstækkun lóðar Kaupþings að Aðalgötu 17 Stykkishólmi og
breyting á byggingarreit.
Framlagt og erindinu vísað til umsagnar skipulags- og bygginganefndar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:LÁH og GDP
Liður 21 bréf Jökuls Helgasonar, skipulags- og byggingarfulltrúa,
dags. 05.08.2008 varðandi Vatnsaflsvirkjun í Svelgsá í landi Hrísa í Helgafellssveit.
Bæjarráð hefur ekki athugasemdir varðandi framkvæmdir við vatnsaflvirkjun í Svelgsá í landi Hrísa í Helgafellssveit.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 22 bréf árshátíðarnefndar 2007, frá bæjarráðsfundi nr. 430,
dags. 22.11.2007.
Eftirfarandi tillaga bæjarstjóra samþykkt.
Árshátíðin verður haldin í október ár hvert.
Hver stofnun tilnefnir einn fulltrúa og einn til vara í árshátíðarnefnd. Ritari bæjarstjóra sendir forstöðumönnum bréf þess efnis í ágúst ár hvert og boðar til fyrsta fundar. Stofnanir geta sameinast um fulltrúa.
Fyrrverandi starfsfólki bæjarins sem látið hefur af störfum vegna aldurs er gefinn kostur á að vera með á árshátíðinni og greiðir sama gjald og aðrir.
Árshátíðin er ætluð starfsmönnum Stykkishólmsbæjar og mökum þeirra.
Starfsfólki Náttúrustofu Vesturlands, Háskólasetri Snæfellsness, Minjavernd Vesturlands og Byggðasafni Snæfellinga er boðin þátttaka í árshátíðinni en greiða fullt gjald fyrir sitt starfsfólk.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:EF og GDP
Liður 23 bréf Sýslumanns Snæfellinga varðandi umsögn um leyfi (Olíuverslun Íslands-Olís Stykkishólmi)til að reka veitingastað að Aðalgötu 25, dags. 24.07.2008.
Bæjarráð hefur engar athugasemdir varðandi leyfi til Olís til að reka veitingastað að Aðalgötu 25.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Liður 24 bréf Rafns og Árna Páls Jóhannssona, dags. 07.07.2008 varðandi Ljósmyndasafn Stykkishólms.
Bæjarstjóra falið að svara bréfinu.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:LÁH,GDP og EF
Liður 25 mötuneyti Grunnskólans í Stykkishólmi.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að matur fyrir mötuneyti Grunnskóla Stykkishólms verði búinn til í eldhúsinu í Dvalarheimilinu og hefur Sumarliði Ásgeirsson matreiðslumeistari verið ráðinn til að sjá um eldhúsið á Dvalarheimilinu. Verðið á mat til grunnskólabarna verður 398 kr. á máltíð veturinn 2008-2009.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:BA,GDP,DS,LÁH,ELB og EF
Liður 26 Hanna María Björgvinsdóttir sækir um framkvæmdafrest við lóð að Skúlagötu 23 fyrir hönd Auðar Hinriksdóttur. Sótt er um frestinn vegna tafa á hönnun hússins.
Bæjarráð samþykkir að veita Auði Hinriksdóttur sex mánaða frest til framkvæmda.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:DS,EF,GDP og LÁH |
Samningar/tilboð.
|
Liður 27 tilboð í eldvarnareftirlit.
Samþykkt að bæjarstjóri gangi til samninga við Eldstoða ehf. um eldvarnareftirlit.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.
Til máls tóku:EF og LÁH
Bæjar stjóri vakti athygli á lið 14 bréf Jafets Ólafssonar,
dags. 07.08.2008 sem fylgir gjöf sem inniheldur gamlar vísur og myndir.
Bæjarstjóri las eina vísu sem var í gjöfinni.
Bæjarstjórn þakkaði Jafeti Ólafssyni fyrir gjöfina.
Til máls tóku:EF og LÁH
Fundargerð samþykkt.
|
2. Fundargerðir nefnda.
2.1. Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, dags. 01.07.2008.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
2.2. Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, dags. 12.08.2008.
Fundargerð framlögð og samþykkt.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.18:
Þór Örn Jónsson
Til baka