Bæjarstjórn, fundur nr. 238
Dags. 17.9.2008
Bæjarstjórn Stykkishólms hélt fund miðvikudaginn 17. september 2008 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar GDP
Elísabet Lára Björgvinsdóttir, ELB
Ólafur Guðmundsson, ÓG
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, EF
Lárus Ástmar Hannesson, LÁH
Berglind Axelsdóttir, BA
Davíð Sveinsson, DS
Guðmundur Andrésson, fundarritari
Forseti bæjarstjórnar setti fund og stýrði.
1. Fundargerð bæjarráðs nr. 441, dags. 11.09.2008
Fundargerðin er í 23. tölusettum liðum.
Fundargerðir nefnda
1. 0809009 - Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, dags. 09.09.2008 (110. fundur).
Fundargerð framlögð.
Liður 2 Móholt 10 – 12, parhús.
Skipavík ehf sækir um stækkun á húsi á áður samþykktum teikningum, stækkun á stofurýmum sbr. teikningu frá Skipavík/Sigurjóni Jónssyni dags. 1.10.2008.
Erindi samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt. Davíð sat hjá vegna tengsla.
Liður 3 Nesvegur 13. Endurnýjun á klæðningu.
Hörður Sigurðsson kt. 080257-3419 sækir um að klæða hlið hússins sem snýr út að Nesveg með stáli og timbri við glugga. Skriflegt samþykki meðlóðarhafa liggur fyrir sbr. bréf dags. 5.09.2008.
Erindi samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt.
Fundargerðin samþykkt.
6. 0809020 - Evrópusáttmáli um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum.
Framlagt og samþykkt að vísa erindinu til jafnréttisnefndar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt.
10. 0809013 - Bréf menntamálaráðuneytis, dags. 03.09.2008 varðandi breytingar við framkvæmd samræmdra könnunarprófa.
Framlagt og erindi vísað til fræðslunefndar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt.
14. 0808037 - Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 27.08.2008 varðandi yfirlýsingu og bókun stjórnar sambandsins 22. ágúst 2008.
Framlagt.
Bæjarstjórn tekur undir og styður bókun sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22.ágúst 2008.
18. 0809015 - Skipavík ehf. sækir um framkvæmdafrest við lóð að Hjallatanga 3.
Samþykkt að veita Skipavík ehf. sex mánaða framkvæmdafrest, vegna aðstæðna á fasteignamarkaði. Davíð sat hjá vegna tengsla.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs.
Davíð sat hjá vegna tengsla.
19. 0809014 - Skipavík ehf. óskar eftir að samningur Stykkishólmsbæjar og Skipavíkur vegna frístundalóða við Arnarborgir verði framlengdur um 2 ár.
Samþykkt að framlengja samninginn um 2 ár.
Davíð sat hjá vegna tengsla.
Til máls tóku Lárus, Gretar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt.
Davíð sat hjá vegna tengsla.
20. 0809012 - Bréf Sorpurðunar Vesturlands, dags. 03.09.2008 varðandi lántöku vegna urðunarreinar í Fíflholtum.
Bæjarráð samþykkir hér með að veita ábyrgð að sínum hluta vegna lántöku Sorpurðunar Vesturlands hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð allt að 35.000.000 kr.til 6 ára,með 5,0% breytilegum verðtryggðum vöxtum. Er ábyrgð þessi veitt sbr.heimild í 6 mgr. 73.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Til tryggingar ábyrgðinni standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum.
Jafnframt er Erlu Friðriksdóttur kt. 011268-5879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Stykkishólmsbæjar veitingu ofangreindar ábyrgðar með áritun á lánssamninginn.
Til máls tóku Lárus, Gretar.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt.
21. 0809001 - Guðbjörn Þór Ævarsson sækir um framkvæmdafrest við lóð að Skúlagötu 25. Sótt er um frestinn vegna tafa á hönnun hússins og afhendingu teikninga.
Samþykkt að veita Guðbirni Þór Ævarssyni sex mánaða framkvæmdafrest, vegna tafa á hönnun og afhendingu teikninga.
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt.
22. 0809022 - Tillaga Erlu Friðriksdóttur, bæjarstjóra, um endurskoðun á leigu þjónustuíbúða.
Erla fór yfir viðvarandi rekstrarvanda á þjónustuíbúðum. Samþykkt að Erla bæjarstjóri endurskoði húsaleigu þjónustuíbúða og komi með tillögu.
Til máls tóku Lárus, Gretar
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt.
Aðrir liðir í fundargerð bæjarráðs voru síðan teknir til umræðu.
Gretar D. Pálsson kom með eftirfarandi bókun.
Ritara bæjarstjóra barst þann 15.09.2008 í tölvupósti fyrirspurn til bæjarstjóra frá oddvita minnihluta, undirritaðri af öllum bæjarfulltrúum minnihluta. Í tölvupóstinum er óskað eftir við ritara bæjarstjóra að fyrirspurn verði bókuð í fundargerð bæjarstjórnar þann 17.sept.2008. Fyrirspurnin snýr að nafngreindri persónu og óskað er svara er varðað gætu persónuleg málefni.
Undirritaður getur ekki samþykkt að fyrirspurnin er varðar persónuleg málefni sé tekin fyrir og bókuð á opnum fundi bæjarstjórnar. Jafnframt skal það áréttað við minnihluta bæjarstjórnar að bæjarfulltrúar minnihluta sem meirihluta geta farið með fyrirspurnir og erindi beint til bæjarstjóra og annarra yfirmanna Stykkishólmsbæjar og þannig fengið upplýsingar frá fyrstu hendi. Hvatt er sérstaklega til þess þegar menn ganga erinda einstaklinga er varðað geta persónuleg málefni.
Bæjarstjóri mun svara framangreindri fyrirspurn beint til fyrirspyrjenda.
Gretar D Pálsson forseti bæjarstjórnar.
Til máls tók síðan, Lárus, Gretar, Davíð.
Fundargerð bæjarráðs var síðan afgreidd samhljóða.
2.Fundargerðir nefnda.
2.1. Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar, dags, 09.09.2008.
Áður afgreidd á fundinum.
2.2. Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Stykkishólms, dags. 03.09.2008.
Fundargerðin samþykkt.
2.3. Fundargerð hafnarstjórnar, dags. 02.09.2008.
Fundargerðin samþykkt.
2.3. Fundargerð umhverfisnefndar, dags. 25.08.2008.
Til máls tóku, Lárus, Gretar.
Fundargerðin samþykkt.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 17:52
Guðmundur Andrésson
Til baka