Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Bæjarstjórn, fundur nr. 225

Dags. 21.6.2007

225. fundur

 

Bæjarstjórn Stykkishólms hélt fund fimmtudaginn 21. júní 2007 kl. 17.00 í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.

 

Mætt voru:                  

Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar GDP

Elísabet Lára Björgvinsdóttir, ELB

Ólafur Guðmundsson, ÓG

Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, EF

Lárus Á. Hannesson, LÁH

Berglind Axelsdóttir, BA                      

Helga Guðmundsdóttir, HG

Daði Heiðar Sigurþórsson, fundarritari

 

Forseti bæjarstjórnar setti fund og stýrði.          

 

1. Fundargerðir Bæjarráðs. 

1.1. Fundargerð bæjarráðs nr. 423, dags. 07.06.2007

Fundargerðin er í 10 tölusettum liðum.

 

1.  Fundargerðir nefnda.

1.1.Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 5.6.2007.

Liður 2 Skipavík/Kristján Gunnlaugsson sækir um að byggja sumarhús við Arnarborg nr. 3, samkvæmt teikningum frá Glámu Kím dags. 15.03.2007.

Samþykkt samhljóða

Liður 3 Björgvin Ólafsson Laufásvegi nr. 4 sækir um að byggja ofan á húsið samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu E.K.

Samþykkt samhljóða

Liður 4 Ævar Gestsson/heimagisting Ölmu sækir um að staðsetja upplýsingaskilti fyrir gistingu á ljósastaurum við Aðalgötu/Nesveg, Nesveg/Lágholt, Lágholt/Sundabakka.

Samþykkt samhljóða

Liður 5 Lögð fram tillaga frá Róberti Jörgensen um lóðarfrágang og staðsetningu á garðhýsi við Tjarnarás nr. 3.

Samþykkt samhljóða.

 

Liður 7 Óleyfisbygging við Ásklif nr. 10. Nefndin fer fram á að byggingarframkvæmdir við Ásklif nr. 10 verði stöðvaðar þar til tilskilin leyfi hafa verið gefin út.

Samþykkt samhljóða

Liður 8 Stykkishólmsbær/upplýsingamiðstöð sækir um að staðsetja upplýsingaskilti með i merkinu á ljósastaura við Aðalgötu og Borgarbraut.

Samþykkt samhljóða

Liður 9 Kristján Bentsson og Eydís Jónsdóttir Víkurflöt nr. 3 óska eftir að byggja bílskúr með bárujárnsklæðningu og klæða íbúðarhús með bárujárni samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu E.K. dags. Maí ’07.

Samþykkt með fyrirvara um fullnægjandi brunavarnir.

Samþykkt samhljóða

Liður 10 Lagt fram bréf frá Grétu Sigurðardóttur um fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð við Laufásveg nr. 1. Einnig ósk um minnkun á lóð sem nemur göngustíg og hann lagfærður.

Samþykkt samhljóða

Liður 12 Lagðar fram teikningar frá Arkitektastofu Benjamíns Magnússonar dags. 1.06.2007, um að breyta innkeyrsluhurð í vegg og glugga ásamt breytingum innanhúss á flugstöð sem stendur á flugvallarsvæði.

Samþykkt samhljóða

Liður 13 Magda Kulinska Borgarflöt nr. 7 sækir um að byggja við húsið samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu E.K., dags. maí 2007.

Samþykkt samhljóða

Liður 15Önnur mál.

Nefndin leggur til að farið verði í viðhald á göngustígum og tröppum í Stykkishólmsbæ.

Samþykkt samhljóða að byggingarfulltrúi geri tillögur um viðhald á göngustígum og tröppum.

Til máls tóku GDP, HG, BA

 

 

1.2.Hafnarstjórn, dags. 5.6.2007.

Liður 1 Gjaldskrárhækkun samþykkt. Fundargerð framlögð og samþykkt samhljóða.

Til máls tóku LH, EF. Samþykkt samhljóða

           

           

 

3. Lóðaumsóknir

3.1.Símon Sturluson sækir um lóð við Laufásveg 17, dags. 23. maí 2007.

Lóðarumsókn samþykkt samhljóða.

    

 

 

5.  Tilnefningar.

5.1.    Tilnefning í félagsmálanefnd Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í stað Öldu Baldursdóttur.

Helga Guðmundsdóttir verður aðalmaður og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir varamaður. Samþykkt samhljóða.

         

 

 

7.  Erindi til afgreiðslu.

7.1. Bréf KKÍ dags. 4.6.2007 vegna æfingabúða fyrir unga og efnilega leikmenn.

Samþykkt samhljóða að Berglind Gunnarsdóttir verði á launaskrá vinnuskólans á meðan hún stundar æfingabúðir fyrir unga og efnilega leikmenn á vegum KKÍ.

Samþykkt samhljóða

7.3. Kauptilboð vegna Bókhlöðustígs 17 dags. 21.5.2007 v/forkaupsréttar.

Samþykkt samhljóða að falla frá forkaupsrétti.

          Samþykkt samhlóða

7.4. Bréf Símonar Sturlusonar f.h. Íslenskrar bláskeljar dags. 20.5.2007 vegna leyfis til að leggja kræklingalínur.

Samþykkt samhljóða af hálfu Stykkishólmsbæjar að veita leyfi til að leggja kræklingalínur (lirfusafnara) í sundinu milli flugvallarsvæðisins annars vegar og Lundakletts og Siglugríms hinsvegar.

Samþykkt samhljóða

7.5. Bréf Heilbrigðiseftirlits Vesturlands dags. 31.5.2007 v/endurskoðunar fjárhagsáætlunar árið 2007.

Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við hækkun á sýnatökugjaldi og hækkunar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2007.

Samþykkt samhljóða

7.6. Tilboð í geymsluhúsnæði frá Skipavík og Hamraafli.

Bæjarráð leggur til að bæjarstjóri fari yfir tilboðin og komi með tillögur til bæjarstjórnar.

Til máls tóku: EF, LÁH, GDP. Erindi frestað

7.7. Bréf Erlu Harðardóttur og Jóseps Ó. Blöndal dags. 21.5.2007 vegna greiðslu á kostnaði tónlistarnáms Sigurbjargar Maríu Jósepsdóttur.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

Breytingartillaga við tillögu númer 7.7. úr fundargerð bæjarráðs númer 423 þann 7. júní 2007

Við undirrituð leggjum til að Stykkishólmsbær greiði sem nemur 60% af niðurgreiðslu bæjarins við tónlistarnám nemenda yngri en 20 ára við Tónlistarskóla Stykkishólms til stuðnings Sigurbjargar Jósepsdóttur í því tónlistarnámi sem hún hyggst leggja fyrir sig. 

 

Greinargerð: Við teljum að eðlilegt sé að Stykkishólmsbær komi til móts við þá nemendur sem einhverra hluta vegna stunda tónlistarnám í öðrum tónlistarskólum. Ef nemendur gengju í tónlistarskóla Stykkishólms yrði sveitarfélagið að borga með því námi. Nemendur frá öðrum byggðarlögum hafa stundað nám við Tónlistarskóla Stykkishólms og hefur þeirra sveitarfélag komið til móts við þá nemendur.  Það er miður ef nemendur neyðast til að flytja lögheimili sitt frá Stykkishólmi til að geta átt möguleika á að stunda tónlistarnám.  Tónlistarnám er gefandi og þroskandi auk þess sem hljóðfæraleikur og söngur auðgar mannlíf og samfélög og þroskar þann einstakling sem tekst á við verkefnið. 

 

Helga Guðmundsdóttir

Berglind Axelsdóttir

Lárus Á. Hannesson

         

Til máls tóku: LÁH, ELB, GDP, EF. Tillagan felld með 4 atkvæðum gegn 3.

 

Gretar lagði fram eftirfarandi tillögu:

Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkir að fela bæjarráði að gera tillögu að reglum um niðurgreiðslu á tónlistanámi í öðrum sveitafélögum vegna nemenda með lögheimili í Stykkishólmi. Tillagan samþykkt samhljóða

         

7.8. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 9. 5.2007 vegna viðbragðsáætlunar vegna sorphirðu komi til heimsfaraldurs inflúensu.

Bæjarstjóra falið að kalla eftir viðbragðsáætlun frá samningsaðila Stykkishólmsbæjar um sorphirðu. 

Samþykkt samhjóða

 

7.9. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 31.5.2007 vegna nýrra laga um gatnagerðagjöld.

Bæjarstóra falið að vinna áfram að málinu.

Samþykkt samhljóða

7.10. Bréf sjávarútvegsráðuneytisins, dags. 21.5.2007 vegna úthlutunar byggðakvóta fiskveiðiárið 2006/2007.

         

 

Tillaga um úthlutun byggðakvóta

 

Byggðakvótanum er úthlutað sbr. 4. gr. B. reglugerðar nr. 440/2007, þ.e. úthlutun vegna samdráttar í vinnslu á skel.  Undirrituð leggja til að einungis þeir aðilar sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti verði úthlutað hlutdeild í byggðakvótanum en það eru bátar þeirra útgerða sem eiga aflahlutdeild í hörpuskel þann 1. september 2006 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum.  Óskað er eftir þessum sérstöku skilyrðum á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 439 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007.

 

Samþykkt með 4 atkvæðum gegn þremur.

 

7.11. Sölutilboð vegna geymsluhúsnæðis við Aðalgötu 6c.

Samþykkt samhljóða að kaupa Aðalgötu 6c á 2.500.000.- og auglýsa eignina til sölu í heild sinni og þar með talið hlut Stykkishólmsbæjar til niðurrifs.

Bókun: Eignirnar hafa verið auglýstar og samþykkt er að ganga að hæsta tilboði frá Baldri Þorleifssyni f.h. Narfeyrar ehf. að upphæð 3.300.000 kr.         

Til máls tóku: EF, LÁH, GDP,       

Samþykkt samhljóða

 

7.12. Umsókn Vignis Sveinssonar um launalaust leyfi í eitt ár frá starfi sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.

         

         

Bæjarstjórn samþykkir að veita Vigni Sveinssyni launalaust leyfi í 12 mánuði frá störfum sem forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar Stykkishólmsbæjar.

 

Með þessu er verið að víkja að einhverju leyti frá reglum um veitingu launalausra leyfa starfsmanna Stykkishólmsbæjar frá 25. nóvember 2003.  Hins vegar segir í 7. gr. reglnanna að “feli umsókn um launalaust leyfi í sér frávik frá verklagsreglum þessum, skal leggja hana fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.”

 

Forsendur fyrir því að víkja frá verklagsreglunum og samþykkja launalaust leyfi Vignis eru eftirfarandi:

 

Vignir hefur starfað hjá sveitarfélaginu í 17 ár. Teljum við rétt að starfsmenn, sem starfað hafa svo lengi hjá sama vinnuveitanda, eigi kost á þvíað fá launalaust leyfi í allt að eitt ár.  Það er í samræmi við ýmsa kjarasamninga og reglur um launalaus leyfi þar sem oftast er miðað við tíu ár í starfi. 

 

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa laust til umsóknar starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar tímabundið til eins árs.

 

Til máls tóku: GDP, LÁH, ELB, ÓG. Afgreiðslan samþykkt samhljóða.

 

 

8.  Styrkbeiðnir.

8.1. Styrkbeiðni KKD Snæfells (frá bæjarráðsfundi nr. 423 þann 22.5.2007).

Samþykkt samhljóða að veita KKD Snæfells 1.000.000.- styrk, tímabilið 2007-2008, með skilyrði um að stjórn KKD Snæfells leggi fram rekstrarreikning á þriggja mánaða fresti.

 

9. Tillögur.

9.1. Bæjarstjóri leggur til að sala á mat til Grunnskólans verði boðin út þar sem samningur við Hótel Stykkishólm er runninn út.

         

Bæjarstjórn samþykkir að bjóða skólamáltíðir út til eins árs og gerð verði úttekt á mögulegum rekstri mötuneytis í tengslum við Grunnskóla Stykkishólms.

Til máls tóku: BA, ELB, EF, GDP, HG, LÁH

 

10. Önnur mál.

10.1 Samþykkt samhljóða að auglýsa stöðu forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar

X-ins.

 

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða    

           

 

 

 

2. Fundargerðir nefnda

2.1.Skipulags- og byggingarnefnd, dags. 5.6.2007.

Staðfest samhljóða

2.2.Hafnarstjórn, dags. 5.6.2007.

Staðfest fyrr á fundinum

2.3.Húsnæðisnefnd, dags. 5.6.2007.

Staðfest samhljóða

2.4. Umhverfisnefnd, dags. 21. maí 2007
Staðfest samhljóða

 

 

 

 

3. Kosningar skv. 15. og 16. grein samþykktar um stjórn Stykkishólmsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

 

Til eins árs:

 

a) Forseti bæjarstjórnar

Gretar D. Pálsson var kosinn samhljóða,.

                       

b) Fyrsti varaforseti

Elísabet L. Björgvinsdóttir var kosin samhljóða

                       

c) Annar varaforseti

Davíð Sveinsson var kosinn samhljóða

                       

 

d) Tveir skrifarar og tveir skrifarar til vara

Aðalfulltrúar:

Ólafur Guðmundsson

Lárus Á. Hannesson

                       

Varafulltrúar:

Erla Friðriksdóttir

Berglind Axelsdóttir

Samþykkt samhljóða

 

4. Kosningar skv. 57. grein samþykktar um stjórn Stykkishólmsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

 

Bæjarráð

 

Aðalfulltrúar:

Ólafur Guðmundsson

Gretar D. Pálsson

Berglind Axelsdóttir

 

Samþykkt samhljóða

 

Varafulltrúar:

Elísabet L. Björgvinsdóttir

Erla Friðriksdóttir

Davíð Sveinsson

Samþykkt samhljóða

 

 

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

Aðalfulltrúar:

Ólafur Guðmundsson

Gretar D. Pálsson

Berglind Axelsdóttir

 

Samþykkt samhljóða

 

Varafulltrúar:

Elísabet L. Björgvinsdóttir

Erla Friðriksdóttir

Davíð Sveinsson

 

Samþykkt samhljóða

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.18:50

Daði Heiðar Sigurþórsson

 



Til baka
Á næstunni
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré