Skólanefnd, fundur nr. 104
Dags. 9.2.2010
Fundinn sátu:
Björn Sverrisson formaður, Katrín Pálsdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Einar Gunnarsson fulltrúi kennara, Gunnar Svanlaugsson skólastjóri grunnskóla, Sigrún Þórsteinsdóttir skólastjóri leikskóla, Elín Guðrún Pálsdóttir fulltrúi leikskólakennara , Gretar D. Pálsson og Edda Baldursdóttir, fundarritari.
Fundargerð ritaði: Edda Baldursdóttir.
Dagskrá:
Gretar fór yfir stækkun gunnskólans og tónlistarskólans, m.a. teikningar, útlit að utan, tengibygginguna, hugsanlegt útileiksvæði fyrir yngstu börnin, útgönguleiðir (flóttaleiðir),Hjólastólaaðgengi, útlit að innan: Samkomusalinn, fjölnotasalinn(mötuneyti) og kennslustofur, möguleikar voru sýndir á notkun salanna.
Viðbygging skólans verður byggð í áföngum, fyrsti áfanginn sem verður byggður er um 800 fermetrar, heildar fermetrar viðbyggingarinnar með tengibyggingunni eru 1500 fermetrar. Áætlað er að byrjað verði á fyrsta áfanga viðbyggingarinnar um leið og skóla líkur í vor og mun líklega verða í byggingu næstu tvö árin. Búið er að fjármagna framkvæmdirnar.
1.- Skýrsla Gunnars um starfið í grunnskólanum (08.02.2010)
1. Starfsmannamál: Jón Ólafur var ráðin í starf íþróttakennara í fjarveru Róberts Jörgensen á meðan hann er í feðraorlofi. Sigrún Elín Svavarsdóttir fyrrverandi kennari við grunnskólans mun koma og leysa Öldu Leyf af þar sem hún er að fara í barnsburðarleyfi.
2. Febrúarpunktar: Farið var yfir febrúarpunktana.
2. - Skýrsla Sigrúnar um starfið í leikskólanum (08.2.2010)
1. Sumarlokun leikskólans
*Tillaga lögð til samþykktar um að vera með lokað í fimm vikur (24 virkir dagar). Tillagan var samþykkt hjá nefndinni og verður lögð fyrir bæjarráð.
2. Barnafjöldi 1. febrúar 2010.
*Nú eru 58 börn á skrá í 3 – 9 tíma vistun. Fjöldi barna í hverjum árgangi eru 13 fædd 2004, 10 fædd 2005, 8 fædd 2006, 11 fædd 2007 og 17 fædd 2008.
3. Sumardagurinn fyrsti, breytingar
*Við verðum ekki með opið hús á sumardaginn fyrsta, heldur verður það á virkum degi að þessu sinni. Dagurinn sem við völdum var 7. maí frá kl 14:00 – 16:00. Þá komumst við hjá því að vinna aukavinnu og umtalsverður sparnaður ætti að vera á launakostnaði leikskólans.
4. Sérfræðingar, talmeinafræðingur og sálfræðingur.
*Ásta Sigurbjörnsdóttir, talmeinafræðingur kom hér 22. janúar og gerði athuganir á nokkrum börnum. Ekki ákveðið hvenær hún kemur aftur.
*Inga Stefánsdóttir, sálfræðingur kemur 17 febrúar og eru þegar skráð á hana nokkur viðtöl.
5. Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur 5 febrúar. (Er í rauninni 6 feb.)
*Þá var einnig dagur stærðfræðinnar og því var lögð áhersla á stærðfræði tengd verkefni þann dag. 6. febrúar voru svo liðin 60 ár frá því að fyrstu hagsmunasamtök leikskólakennara voru stofnuð.
6.Hækkun var á fæðiskostnaði um 10% frá áramótum.
3. Önnur mál.
Eineltismál voru rædd, bæði í leikskóla, skóla og á vinnustöðum.
Gunnar Svanlaugsson skólastjóri kynnti eineltisáætlun.
Fleira ekki gert.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19.30
Til baka