Skipulags- og byggingarnefnd, fundur nr. 124
Dags. 19.1.2010
Fundur var haldinn í skipulags- og byggingarnefnd Stykkishólmsbæjar þriðjudaginn 19. janúar 2010 , kl. 17:00 í Ráðhúsinu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnar Jónsson, Eydís B. Eyþórsdóttir, Helgi B. Haraldsson, Guðmundur Kristinsson, Björgvin Ólafsson og Bjarnfríður Vilhjálmsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og stýrði.
Dagskrá.
1. Silfurgata 27, endurnýjun á geymsluskúr.
María Inga Hannesdóttir kt. 300550- 2319 sækir um að endurnýja þak og útveggjaklæðningu á geymsluskúr við Silfurgötu 27, sbr. teikn. frá Sveini Ívarssyni ehf, kt. 550296- 2339, dags. 21.12.´09.
Nefndin samþykkir erindið með fyrirvara um að skúr lækki um 10 cm , sbr. athugasemdarbréf frá Vilbergi Guðjónssyni Silfurgötu 29, mótt. dags. 12.01.´10. Gjöld samtals kr. 3000.-
2. Silfurgata 3, aukin bílstæði á lóð og útlitsbreytingar á húsi.
Gunnar Einarsson sækir um leyfi f.h. Bjargeyjar ehf, kt. 691093 2719 ,að setja tvöfalda hurð á suðurgafl hússins og stækka glugga á norðurgafli þess og útbúa tvö bílastæði á lóðinni neðan við húsið, sbr. afstöðumynd og bréf dags. 18.01.´10.
Erindi samþykkt. Gjöld samtals kr. 3000.-
3. Svæði undir endurnýtanlegan jarðveg.
Nefndin leggur til að verktakar fái aðstöðu til að geyma endurnýtanlegan jarðveg á plani við gömlu ruslahaugana, í samráði við bæjaryfirvöld.
4. Önnur mál.
4a. Nefndin ítrekar ályktun sína frá 8. desember s.l., um lausn á förgun hrossataðs við hesthúsbyggð.
B.V.
Til baka