Þjónustuhópur aldraðra, fundur nr. 65
Dags. 14.1.2010
Þjónustuhópur aldraðra hélt fund fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 17:00 í Setrinu. Mætt voru Brynja Reynisdóttir, Ásta Sigurðardóttir, Sólborg Olga Bjarnadóttir, Friðrik Jónsson, Hanna Jónsdóttir og María Guðmundsdóttir, formaður félags eldri borgara.
Dagskrá:
1. Úthlutun íbúðar.
2. Frístundarafþreying fram á vor.
3. Önnur mál.
1. Aðalheiður Bjarnadóttir mun flytja í lausu íbúðina í Skólastíg 14a.
Einnig ganga framkvæmdir vel við íbúðina á Skólastíg 16.
Ný umsókn hefur borist um íbúð frá Sigríði Pétursdóttur dags. 10.12.2009.
Bjarndís og Jón afþökkuðu íbúð en lögðu inn nýja umsókn 29.12.2009.
2. Þjónustuhópurinn ályktar að nauðsynlegt sé að frístunda afþreying sé í boði fyrir aldraða allt árið á vegum bæjarins. Nú er hægt að hafa félagsstarf í Setrinu sem og í salnum á Dvalarheimilinu. Þar er verið að bæta lýsingu í Setustofu þannig að hægt verði að spila þar. Við lýsum ánægju með þessar breytingar.
3. Talsvert rætt um fréttir sem verið hafa í útvarpi og blöðum um kostnað við heimaþjónustu/hjúkrun miðað við kostnað af vistum á hjúkrunardeild.
Fleira ekki rætt.
Fundi slitið kl 18:15
Hanna Jónsdóttir (sign.),
Sólborg Olga Bjarnadóttir (sign.),
María Guðmundsdóttir (sign.),
Friðrik Jónsson (sign.),
Brynja Reynisdóttir (sign.),
Ásta Sigurðardóttir (sign.).
Til baka