Skólanefnd, fundur nr. 105
Dags. 8.3.2010
Fundinn sátu:
Björn Sverrisson formaður, Katrín Pálsdóttir, Gunnar Svanlaugsson skólastjóri grunnskóla, Sigrún Þórsteinsdóttir skólastjóri leikskóla, Elín Guðrún Pálsdóttir fulltrúi leikskólakennara, Inga Eyþórsdóttir og Edda Baldursdóttir, fundarritari.
Fundargerð ritaði: Edda Baldursdóttir.
Dagskrá:
1. Skýrslur skólastjóra.
2. Samstarf heimila og skóla – Staða og væntingar.
3. Önnur mál.
- Skýrsla Gunnars um starfið í grunnskólanum (08.03.2010)
1. Marspunktar GSS kynntir.
2. Undirbúningur næsta skólaárs: Verið er að gera upp veturinn eftir að skólinn var allur fluttur í eitt húsnæði. Skólastjóri er þessar vikurnar að kortleggja starfsmannahópinn. Endanlega staða mun vonandi liggja fyrir ekki seinna en 1. maí. Annars gengur undirbúningur næsta skólaárs nokkuð vel.
3. Uppeldi til ábyrgðar: Guðlaug Erla Gunnarsdóttir verkefnisstjóri mun koma í skólan og vera með verkefni í sambandi við hagnýtingu stjórnunarhátta í anda uppeldis til ábyrgðar milli heimilis og skóla. Hún mun koma fyrst fljótlega eftir páska þar sem hún mun kynna verkefnið fyrir hópnum og síðan á vinnudögum í ágústmánuði þ.e. 11. 12. og 13 ágúst og setur allt í gang.
4. Önnur mál.
- Skýrsla Sigrúnar um starfið í leikskólanum (08.3.2010)
1. Sálfræðingur kom 17. febrúar, nú er Félags-og skólaþjónustan búin að kaupa próf sem vantað hefur til þess að Inga Stefánsdóttir sálfræðingur geti tekið próf þegar þess þarf. Um er að ræða greindarpróf ofl.
2. Haldið var upp á bollu-sprengi-og öskudag með hefðbundnum hætti.
3. Við fengum heimsókn frá Tónlistarskólanum. Nokkrir blokkflautur leikarar komu með kennaranum sínum.
4. Mikil vinna hefur verið lögð í grænfánann og er búið að funda með fulltrúum barnanna í leikskólanum. Þar komu þau fram með hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu. Stefnan er að vinna með grænfánann til framtíðar. Hvetjum fólk til þess að skoða heimasíðu leikskólans undir heimildarmöppu sem heiti grænfánavinna.
5. Foreldraviðtöl byrja í þessari viku og eru svo út næstu viku.
6. Ásta talmeinafræðingur kemur hingað á miðvikudaginn 10. mars.
Önnur mál:
·Sumarleyfi Leikskólans sem tekið var fyrir á síðasta fundi var samþykkt af bæjarstjórn
·Gunnar Svanlaugsson lagði fram eftirfarandi bókun: Ég undirritaður skólastjóri við grunnskólann í Stykkishólmi fagna mjög þeirri ákvörðun bæjarstjórnar að halda áfram með það metnaðarfulla verkefni er hófst með störfum nefnda er skipuð var í maimánuði 2005
Nefndinni var falið að koma með tillögur að stefnumörkum í húsnæðismálum Tónlistarskólans og GSS.
Í áframhaldi af þeirri vinnu var skipaður blandaður vinnuhópur rúmlega 30 bæjarbúa sem tóku til starfa í september 2006. Árgangur þeirra vinnu er að koma í ljós nú á þessum vikum og því vil ég fagna sérstaklega.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 18:10
Til baka