Skólanefnd Tónlistarskóla Stykkishólms, fundur nr. 136
Dags. 18.8.2010
136. fundur
Skólanefnd Tónlistarskóla Stykkishólms
Fundargerð
136. fundur skólanefndar Tónlistarskóla Stykkishólms var haldinn þann 18. ágúst 2010 kl. 17:00 á skrifstofu skólastjóra.
Boðaðir voru aðalmenn og varamenn.
Dagskrá:
1. Kjör ritara nefndarinnar
2. Fundartími nefndarinnar ákveðinn
3. Ráðning kennara
4. Skýrsla skólastjóra
5. Önnur mál
Mætt voru:
Jóhanna Guðmundsdóttir, skólastjóri; Sigurborg Sturludóttir, formaður; Anna Melsteð; Jósep Ó. Blöndal; Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri; Daði Jóhannesson; Unnur Sigmarsdóttir.
1.
Ritari nefndarinnar var kosin Unnur Sigmarsdóttir.
2.
Ákveðið var að fundir yrðu haldnir á þriðjudögum kl. 17 á 4 – 6 vikna fresti.
3.
Hafsteinn Sigurðsson er sestur í helgan stein og í stað hans var ráðinn Gunnar Þorgeirsson óbóleikari. Aðrir kennarar skólans eru: Hafþór Guðmundsson (slagverk), Hólmfríður Friðjónsdóttir (söngur, gítar), Lárus Pétursson (bassi, gítar), Hjálmar Sigurbjörnsson (málmblásturshljóðfæri, lúðrasveit), Hólmgeir Sturla Þórsteinsson (píanó, meðleikur), Lázló Petö (píanó, meðleikur). Lazló er í feðraorlofi sem stendur og kemur aftur 15. september en Hólmgeir og Jóhanna leysa hann af á meðan. Samið verður við Þórð í tónlistarskólanum í Grundarfirði um að kenna einum nemanda sem er í fjölbraut á rafbassa.
4.
Umsóknir nemenda í tónlistarskólans eru (enn sem komið er) 112 og skiptast þær þannig: 78 grunnskólanemendur, 18 fjölbrautaskólanemendur og 16 fullorðnir. Stefnt er að því að kennsla hefjist um miðja næstu viku og verður skólaárið 35 kennsluvikur. Margar umsóknir hafa komið á slagverk og þyrfti að auka kennsluhlutfall Hafþórs, sem er í 25% stöðu, í 50%. Það vantar því 5 tíma í viðbót á slagverkið og þá myndu slagverksnemendur fá kennslu í eina klukkustund á viku í stað hálftíma. Þessu var vísað í bæjarráð (Daði fór af fundi). Stefnt er að því að taka þátt í Nótunni, sem er uppskeruhátíð tónlistarskólanna, og lokahátíð tónlistarskólanna sem er síðasta laugardag í mars. Uppskeruhátíð tónlistarskóla Stykkishólms verður haldin á Degi tónlistarskólanna síðasta laugardag í febrúar.
5.
Óskir hafa komið frá dvalarheimilinu um að nemendur tónlistarskólans spili fyrir gamla fólkið. Umræða skapaðist um að auka samspil nemenda í tónlistarskólanum svo þau öðlist meiri reynslu í að koma fram og auki fjölbreytni í tónlistarlífi bæjarins. Rætt var um hvort samstarf gæti orðið milli tónlistarskólans og sumartónleikaraðarinnar, jafnvel að lúðrasveitin myndi halda fyrstu tónleika sumarraðarinnar. Ræddum að það þyrfti að leggja grunn að orgelsumri þegar nýtt orgel kemur (sennilega 2012) og undirbúa tónlistarnemendur undir það. Áhugi er fyrir því að efla samstarf söngdeildar tónlistarskólans og kirkjukórsins. Hugmynd kom fram um að sameina leikskóla-, grunnskóla- og tónlistarskólanefndir Stykkishólms og var von sú að við myndum hugsa um kosti þess og galla.
Fundi slitið kl. 18:55
Unnur Sigmarsdóttir
Til baka