Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Þjónustuhópur aldraðra, fundur nr. 70

Dags. 26.8.2010

Fundargerð Þjónustuhóps aldraðra

Fundur 70

 

Fundurinn var haldinn þann 26. ágúst 2010,  kl.17. í Setrinu.

 

Viðstaddir voru:

 

Hanna Jónsdóttir, Steinunn Magnúsdóttir, Brynja Reynisdóttir, Kristín Blöndal, Hrafnhildur Jónsdóttir, Eydís Eyþórsdóttir íþrótta og tómstundafulltrúi, Gyða Steinsdóttir bæjarstjóri og Sigurborg Leifsdóttir formaður nefndarinnar.

 

Sigurborg setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

Hún vonast eftir góðu samstarfi.

 

Dagskrá fundarins var:

 

1.      Hlutverk þjónustuhópsins

2.      Biðlistinn eftir íbúð fyrir aldraða

3.      Félagsstarf eldri borgara sl. sumar

4.      Önnur mál

 

1.

Hlutverk þjónustuhópsins:  Hlutverk þjónustuhópsins var kynnt og ljósriti þar um dreift. Rætt var um bækling sem dreift var í vor. Hann þarf að yfirfara og dreifa í öll hús. Rætt var um matarkaup, akstursþörf og þörf fyrir þvotta.

 

2.

Biðlisti eftir íbúð fyrir aldraða: Búið er að ganga frá samningum við Auði Hinriksdóttur og Maríu Bæringsdóttur. Gréta Bents og Einar Steinþórs fengu tilboð um íbúð en afþökkuðu og sóttu um aftur. Níu aðilar búsettir hér í bæ eru á biðlista en þrír með búsetu annarsstaðar.

 

3.

Félagsstarf eldriborgara sl. sumar: Eydís sagði frá starfinu í sumar. Boðið var upp á lestur, bodzia, ferðir á söfn og fleira. Þetta starf sá starfsfólk dvalarheimilisins um. Rætt um þörf fyrir fjölbreytni í félagsstarfi á heils árs grunni. Ákveðið að bæjarstjóri fundi með Eydísi, Kristínu og starfskonum félagsstarfsins. Niðurstöður frá þeim fundi verða skoðaðar á næsta fundi nefndarinnar. Rætt um að fá kynningu frá Eirberg á rafskutlum og hjálpartækjum. Sigurborg tók það að sér. Fá lögregluna til að vera með fræðslu um umferðina, bæði gangandi og akandi umferð. Einnig endurskinsmerki mannbrodda og fleira. Tekur Eydís það að sér.

 

4

Önnur mál:  Rætt var um að fá slökkviliðsstjóra til að vera með kynningu á brunavörnum. Ýtt verði á að upplýsingablað með öllu er við kemur íbúðunum liggi fyrir þegar þeim er úthlutað. 

 

Næsti fundur var ákveðinn 7. október kl. 17 í Setrinu.

Fundi slitið kl. 18.15 

 

Hanna Jónsdóttir (sign.),

Steinunn Magnúsdóttir (sign.),

Brynja Reynisdóttir (sign.),

Kristín Blöndal (sign.),

Hrafnhildur Jónsdóttir (sign.),

Eydís Eyþórsdóttir (sign.),

Gyða Steinsdóttir (sign.),

Sigurborg Leifsdóttir (sign.).



Til baka
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré