Skólanefnd, fundur nr. 107
Dags. 25.8.2010
107. fundur fræðslunefndar
haldinn á ráðhúsloftinu, miðvikudaginn 25. ágúst 2010 kl. 17:00.
Mættir voru: Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, formaður, Sigurður Bjarnason, Elín Pálsdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Áslaug Kristjánsdóttir, Haukur Garðarsson, Gunnar Svanlaugsson og Sigrún Þórsteinsdóttir skólastjórar og Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri sem ritaði fundargerð.
1. Skýrsla Gunnars um starfið í grunnskólanum.
Gunnar bauð nýja aðila í nefndina velkomin í hópinn.
Undirbúningur - skólabyrjun GSS 2010 – 2011
- Starfsfólk. Auglýst var eftir kennurum í sumar. Ekki náðist að leysa óskir allra umsækjenda um húsnæði, þannig að aðeins var einn kennari ráðinn. Samið var við tvo kennara að sjá um 2ja bekkja umsjón. Nú eru 22 kennar, þar af 2 stundakennarar. Gunnar lagði fram lista yfir kennara og aðra starfsmenn sem starfa munu í vetur.
- Nemendur. Tekið hefur verið við nýjum nemendum í haust og er það gleðiefni. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 160 nemendum í vetur. Tveir bekkir verða í sömu skólastofu eins og í fyrra en hafa þó sér rými innan stofunnar.
- Mötuneyti fer vel af stað og verður með sama sniði og í fyrra. Ákveðið hefur verið að halda verði óbreyttu, mötuneytið er tvískipt.
- Heimili og skóli. Skóladagatalið hefur breyst örlítið frá áður samþykktu dagatali. Starfsdagur 8. október hafði óvart verið settur á 15. október en hefur verið lagfærður. Vetrarfrí voru færð til eftir áramót í samráði við tónlistarskólann. Mikilvægt er að standa vörð um skóladagatalið og það getur komið fyrir að breyting verði í upphafi skólaárs.
- Áherslur í skólastarfinu. Gunnar lagði fram áherslupunkta fyrir starfið í ágúst og september. Sagði hann frá áhugaverðu verkefni sem verður í vali í smíðum í 10. Bekk, nánar síðar.
- Uppeldi til ábyrgðar er verkefni sem byrjar núna í haust. Námskeið var haldið í ágúst. Verkefnið er fyrir grunnskóla, tónlistarskóla og leikskóla. Mikilvægt að fylgja verkefninu eftir fyrir alla skólana. Staðið verður við það að vinna að þessu með faglegum áherslum. Hvatti hann fundarmenn til að kynna sér verkefnið. Sesselja Kristinsd. Þóra Magga og Elín Kristinsd. taka að sér ábyrgð fyrir hönd grunnskólans og sjá um innleiðingu. Verkefnið verður kynnt fyrir foreldrum á fyrstu foreldrafundum í september og hvetjum við alla foreldra til að mæta. Gunnar hvetur fræðslunefnd að taka þátt í þessu verkefni með skólunum.
Ráð og nefndir
Fræðslunefnd
- Skólaráð. Skólaráð starfaði vel á síðasta skólaári. Haldnir voru 3 fundir. Gunnar mun leggja til að ritari skólans muni starfa með skólaráði. Í skólaráði eru Ingi Ingason, Hafrún B. Guðmund. og Edda Baldursd, frá skólanum Helga Sveinsd. Sólrún Júlíusd. og Sigrún Ársælsd. Tveir nemendur eru í ráðinu, formaður nemendafélags og formaður íþróttaráðs.
- Umbótaráð er ráð skólans til að efla samvinnu innanhús til að gera okkur lífið skemmtilegra, bæta starfsandann og finna uppá ýmsu. Í umbótaráði eru Magga Ebba, Róbert Jörgensen og Helga Sveinsd.
- Nemendaverndarráð. Í því er aðstoðarskólastjóri, sem er formaður, Elín Kristinsd, Ágústína Guðmundsd. Sólborg Olga Bjarnad. og Hulda Skúlad, sem situr frá félags og skólaþjónustunni, þau funda annan hvern miðvikudag, hinn miðvikudaginn fundar eineltisteymið.
- Eineltisteymi. Í því sitja skólastjóri, árgangastjórar hverju sinni, Helga Sveinsd. og Elísabet Valdimarsd., Guðmunda Ragnarsdóttir er fulltrúi almennra starfsmanna. Gunnar kynnti þrjá bæklinga, eineltisáætlun, einelti og almenn um einelti í grunnskólanum.
- Aðrar nefndir og ráð
- Önnur mál. Í lokin sagði Gunnar frá því að gríðarlega áhersla er lögð á þagnarskyldu innan grunnskólans. Þakkaði hann formanni fræðslunefndar að koma í heimsókn til sín, og ræddi mikilvægi þess að standa saman að því að gera starfið gott til framtíðar.
Hrafnhildur þakkaði Gunnari fyrir skýrslu hans og óskaði eftir góðu samstarfi í nefndinni.
Fyrirspurnir:
Hver mun leysa Einar Gunnarsson af í fæðingarorlofi.
Gunnar sagði að ekki væri búið að ganga frá afleysingu núna í september en í vetur munu Gunnlaugur og Elísabet leysa Einar af vegna feðraorlofs.
Fyrirspurn:
Af hverju var ákveðið að fara nýjar leiðir í sambandi við Uppeldi til ábyrgðar. Er Olweus ekki í gangi?
Í fyrra var þetta verkefni skoðað og talið spennandi. Áfram verður haldið í olweus en margar áherslur eru þaðan komnar inní eineltisáætlun GSS. Innleiðing uppeldi til ábyrgðar tekur allt að þremur árum í skólum, en í dag erum u.þ.b. 60 að vinna samkvæmt því.
2. Skýrsla Sigrúnar um starfið í leikskólanum.
Sigrún bauð nýja nefnd velkomna til starfa. Á heimasíðu leikskólans er að finna foreldrahandbók, skólanámskrá og ýmsan annan fróðleik um leikskólann. Hún er mjög virk og lifandi. Deildarstjórarnir mjög virkir að setja inn nýtt efni.
- Í leikskólanum verða 49 börn frá 1. nóvember, það hafa ekki verið svo fá börn að hausti, síðan Stykkishólmsbær tók við rekstri og jafnvel lengur. Í elsta árgangi, 2005 eru 9 börn, í árg. 2006 eru 8 börn, í árg. 2007 eru 9 börn, í árg. 2008 eru 19 börn og í 2009 eru komnar 4 umsóknir. Árgangur 2010 lofar nokkuð góðu og nú þegar komnar þrár umsóknir.
- Mannabreytingar: Við vorum með 100% stöðu í afleysingum, sem hætti um sumarfrí. Anna Sigríður Guðmundsd. fór í veikindaleyfi og hættir svo að því loknu. Ekki er þörf á því að bæta við fleira fólki í haust nema að umsóknum fjölgi. Skoða þarf stöðuna um áramót þegar umsóknir yngri barna taka gildi. Það hafa verið að koma inn umsóknir um lengri viðveru.
- Skóladagatal er tilbúið og legg ég það fram til samþykktar. Eftir á að leggja það fram fyrir aðalfund foreldrafélagsins í september. Skóladagatal er hefðbundið eins og síðastliðin ár. Það verður aðgengilegt á heimasíðu skólans.
- Vetrarstarf: Um miðjan september verður allt vetrarstarf komið í fullan gang og aðlögunum ætti að vera lokið. Við höldum áfram með þemastarf sem tengist umhverfi og náttúru allt í samræmi við aldur og þroska barnanna. Skólastund, þemavinna, hópastarf og val verður með svipuðum hætti og verið hefur undanfarin ár.
- Grænfána vinna: Við erum búnar að sækja um grænfánann aftur og bíðum eftir umsögn um skýrsluna. Dagbók grænfánans er aðgengileg á heimasíðu leikskólans. Erum að vinna eftir grænfánareglum. Börnin voru farin að taka þátt í að flokka og losa pappír.
- Félags-og skólaþjónustan: Samstarf við talmeinafræðing, sálfræðing og aðra sérfræðinga verður með óbreyttum hætti næsta vetur.
- Skólastarf: Skólastarfið fer almennt vel af stað og er búinn einn 4 tíma skipulagsfundur þar sem farið var yfir heildarramma skólastarfsins. Á starfsdegi 8. október langar okkur að fara og skoða leikskóla á Hvanneyri og skoða þorpið þar með tilliti til grænfánavinnu og umhverfisstefnu og eins langar okkur að skoða leikskóla í Borgarnesi. Þar er notuð ný vinnuaðferð, sem nefnd er flæði. Í lokin langar okkur að fara í brúðusafnið í Borgarnesi. Þakkaði Sigrún fyrir sig. Hrafnhildur þakkaði Sigrúnu fyrir skýrslu og lagði skóladagatalið til samþykktar. Starfsdagar eiga að vera á sameiginlegum dögum í skólunum. Leikskólinn á 3 starfsdaga. Tveir teknir heilir og þriðja deginum skipt í 2 hálfa daga. Skóladagatal samþykkt á fundinum.
- Leikskólakennarar fóru á fyrilrestur hjá Guðlaugu Erlu í sambandi við uppeldi til ábyrgðar. Sigrún telur að þetta verkefni henti betur í grunnskólum en leikskólum, þó það nýtist starfsfólki beggja skóla vel. Þarf að skoða betur hvort þetta henti leikskólastarfinu. Sigrún telur þetta virkilega áhugavert.
Fyrirspurn: Er þetta leiðandi verkefni til að grípa inní eða er þetta forvörn. Er í raun bæði, aðferðir sem kennarinn getur notað til að grípa inní. Byggist á sjálfsskoðun starfsmanna og endurskoðun á samskiptum við nemendur, samstarfsfólk og foreldra. Starfsfólk leikskólans hefur ekki fengið kynningu ennþá og þess vegna erfiðara að ákveða hvort leikskólinn geti tileinkað sér þetta verkefni. Rætt var nánar um uppeldi til ábyrgðar og öll skólastigin. Sunnuhvoll.com er heimasíða þar sem hægt er að kynna sér Uppeldi til ábyrgðar. Ákveðið var að nefndarmenn myndu kynna sér verkefnið. Rætt var um hljóm 2 sem lagt er fyrir nemendur á síðasta ári í leikskóla. Eins um tvítyngd börn, bæði í leikskóla og grunnskóla.
3. Önnur mál
Hrafnhildur sagði frá erindisbréfi fræðslunefndar. Nefndarfólk ræddi um lagfæringar á erindisbréfi. Rætt var um skólanefnd, hvort eðlilegt væri að sameina nefnd fyrir alla þrjá skólana eða halda nefndarstörfum óbreyttum. Samþykkt var að hafa fundi fræðslunefndar annan miðvikudag hvers mánaðar kl. 17:00. Næsti fundur verður 13. október kl. 17:00.
Gunnar ræddi um nemendur með sérúrræði. Fyrirkomulagi var breytt í haust og lagði Gunnar fram bréf til nefndarfólks um áherslur í sér – og stuðningskennslu. Áslaug lýsti yfir mikilli ánægju með námsverið. Rætt var um þörf á þroskaþjálfa til skólans. Gunnar þakkaði Áslaugu fyrir hlý orð í garð skólans. Hrefna tók undir orð Áslaugar. Sigurður ræddi um upplýsingaveitu á heimasíðu fyrir skólann og notkun á mentor. Gunnar sagði að alltaf mætti gera betur og ritari skólans í samráði við aðstoðarskólastjóra sæu um þessi mál. Sigurður mælti með aukinni notkun netsins og sérstaklega mentor til að nýta þessar góðu samskiptaleiðir.
Hrefna ræddi fundartímana. Væri þæginlegt að það væri með góðum fyrirvara ef fundir væru á öðrum tíma en skipulagt var í upphafi. Hrafnhildur vill fá punkta frá skólastjórum viku fyrir fund og formaður gæti sent dagskrá með góðum fyrirvara til fundarmanna svo þau gætu undirbúið sig.
Fleira ekki gert.
Hrafnhildur þakkaði fólki fundarsetu og sleit fundi kl. 18:45.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir (sign) Sigurður Bjarnason (sign)
Elín Pálsdóttir (sign) Hrefna Frímannsdóttir (sign)
Áslaug Kristjánsdóttir (sign) Haukur Garðarsson (sign)
Gunnar Svanlaugsson (sign) Sigrún Þórsteinsdóttir (sign)
Gyða Steinsdóttir (sign)
Til baka