Æskulýðs- og íþróttanefnd, fundur nr. 39
Dags. 30.8.2010
39. fundur í Æskulýðs – og íþróttanefnd
30. ágúst 2010 kl:18:00
Mættir: Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri, Helga Guðmundsdóttir, formaður, Ingi Berg Ingason, Erna Rut Kristjánsdóttir, Helga Sveinsdóttir og varamenn Sara Hjörleifsdóttir, Guðný Pálsdóttir, Davíð Sveinsson auk Vignis Sveinssonar og Eydísar Eyþórsdóttur.
1. Helga Sveinsdóttir kosinn ritari nefndarinnar.
2. Kynning frá Æskulýðs- og tómstundarfulltrúa
· Íþrótta- og leikjanámskeið fór fram á vegum Snæfells í 5 vikur í sumar og var það vel sótt. Námskeiðið var ætlað krökkum úr 1. – 7. bekk. Krakkar úr vinnuskólanum aðstoðuðu á námskeiðunum og mæltist það mjög vel fyrir. Eydís telur nauðsynlegt að framhald verði á þessum námskeiðum næstu sumur.
· Starfið fyrir eldri borgarana var aðallega í höndum starfsfólks Dvalarheimilisins. En ýmislegt skemmtilegt var gert og gekk það mjög vel.
· Um þessar mundir er verið að undirbúa starf vetrarins fyrir unglingana. Ýmsar umræður spunnust um unglingastarf og hvað er hægt að gera.
3. Kynning frá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar.
· Nú er kominn á vetraropnun í sundlauginni
· Mæting í ár í sundlaugina er svipuð og undanfarin ár ef frá er talið árið 2009 en þá var met – aðsókn.
· Mikið er spurt um útiklefa og gufubað. Fólk er orðið ansi þreytt á of litlum búningsklefum.
· Mikil umræða fór fram um opnunartíma sundlaugar í vetur.
· Áhaldakaup – íþróttakennarar leggja mikla áherslu á að keypt verði ýmis ný áhöld í íþróttahúsið. Mesta þörfin er fyrir dýnukaup og ýmis útiáhöld.
· Spurt var um hvernig virkaði að hafa sérstakan starfsmann á íþróttavellinum. Vignir lýsti ánægju sinni yfir því að hafa starfsmann til að sinna þessu og hefur völlurinn aldrei verið í betra ástandi.
· Spurt var um lausa tíma í húsinu fyrir hádegi, viðhald á húsinu og lauginni, gólfið sem er komið á síðasta snúning.
-Vignir og Eydís véku af fundi -
4. Ungmennaráð
· Æskulýðs – og íþróttanefnd tilnefnir fimm fulltrúa í Ungmennaráð: Erna Rut Kristjánsdóttir, Ólöf Rún Ásgeirsdóttir, Benedikt Óskarsson, Berglind Gunnarsdóttir og Páll Grétarsson.
5. Félagsmiðstöð
· Rætt um hvert hlutverk Æskulýðs – og tómstundafulltrúa er og hvert hlutverk starfsamanna í félagsmiðstöðinni verður. Ungmennaráð gæti komið að starfinu í samvinnu við starfsmenn.
· Einnig mikið rætt um húsnæði og er verið að vinna í því að finna það. Rætt um mikla þörf fyrir aðstöðu fyrir hljómsveitaræfingar fyrir hin ýmsu bönd bæjarins.
· Lagt er til að húsnæði verði fundið sem fyrst og mikilvægt er að ráða 1 – 2 starfsmenn sem helst hafi áhuga á og reynslu af starfi með börnum og unglingum.
Fleira ekki gert, fundið slitið kl. 20:00
Helga Sveinsdóttir (sign) Gyða Steinsdóttir (sign)
Helga Guðmundsdóttir (sign) Ingi Berg Ingason (sign)
Erna Rut Kristjánsdóttir (sign) Sara Hjörleifsdóttir (sign)
Guðný Pálsdóttir (sign) Davíð Sveinsson (sign)
Til baka