Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi

 

 

 

 

 

 

 

Stykkishólmur - EDEN áfangastaður Íslands í Evrópu 2011

 

 

 

 

 

 

Hluti I Staður eða svæði sem hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga

 

Stykkishólmur hefur eflst sem áfangastaður fyrir ferðamenn á síðustu árum og gegnir ferðaþjónusta æ mikilvægara hlutverki í atvinnusköpun og tekjuöflun bæjarins. Við uppbyggingu ferðaþjónustunnar hefur m.a. verið tekið mið af hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar um varðveislu menningarminja, sögu og náttúru.

 

 

Eitt helsta aðdráttarafl Stykkishólms eru gömlu húsin sem hafa gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og gegna nú mörg hver ferðaþjónustutengdu hlutverki. Þannig hefur elsta íbúðarhús bæjarins fengið nýtt hlutverk og hýsir nú byggðasafn, í amtbókasafninu er nú starfrækt vatnasafn, í gamla bíóinu eldfjallasafn, í bakaríinu farfuglaheimili, í apótekinu verslun fyrir ferðamenn svo eitthvað sé nefnt. Gömlu húsin setja skemmtilegan svip á bæinn og gefa einstaka mynd að byggingarsögu þjóðarinnar.

 

 

Bæjarfélagið tók upp markvissa stefnu um endurgerð gamalla húsa á áttunda áratug síðustu aldar og hefur fylgt þeirri stefnu síðan. Lögð hefur verið áhersla á að viðhalda gömlu bæjarmyndinni og varðveita þann menningararf sem felst í gömlum húsum bæjarins sem mörg hver eru frá 19. öld. Þátttaka eigenda gömlu húsanna hefur skipt sköpum í þessari verndaráætlun og hafa þeir tekið virkan þátt í endurnýjun og viðhaldi þeirra.

 

 

 

 

Hluti II Verkefni stuðlar að félags-/ menningar- og umhverfilegri sjálfbærni áfangastaðarins

 

Stykkishólmur hefur breyst úr hefðbundnu sjávarþorpi í bæjarsamfélag þar sem fjölbreyttir atvinnuvegir eru fyrir hendi. Ferðaþjónusta hefur haft jákvæð áhrif á uppbyggingu bæjarins og aukið hagvöxt og fjölbreytni atvinnulífsins og liggja mikil tækifæri í fjölgun ferðamanna og lengingu ferðamannatímans. Sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku varðandi efnahagslega, menningarlega og félagslega þætti. Þar sem áður voru gömul hús í niðurníðslu er nú starfrækt blómleg þjónusta sem ferðamenn og heimamenn njóta góðs af og sífellt bætast við ný tækifæri til frekari uppbyggingar. Sú markvissa stefnumörkun sem bæjaryfirvöld hafa innleitt í anda sjálfbærni hefur bætt vitund heimamanna um umhverfi og sögu staðarins og hefur jafnframt aukið ánægju þeirra með búsetuskilyrði sín.

 

 

Stykkishólmur hefur verið virkt í innleiðingu sjálfbærnistefnu og hefur unnið markvisst að umhverfisvottun frá 2003. Stykkishólmur sem eitt af fimm sveitarfélögum á Snæfellsnesi fékk fullnaðarvottun Earthcheck (áður Green Globe) árið 2008 sem var síðan endurnýjuð árið 2010 en um er að ræða alþjóðlegt vottunarkerfi sem er notað á ferðaþjónustufyrirtæki og ferðaáfangastaði sem vilja stuðla að sjálfbærri þróun. Smábátahöfnin í Stykkishólmi var fyrst allra hafna á Íslandi til að hljóta hina alþjóðlegu viðurkenningu Bláfánans og grunnskólinn í Stykkishólmi hefur hlotið umhverfismerki Grænfánans. Auk þess hefur Stykkishólmur hlotið skipulagsverðlaun Skipulagsfræðingafélags Íslands fyrir vel heppnað bæjarskipulag.

 

 

Hluti III Umhverfisvitund og markaðssetning

 

Bæjarfélagið Stykkishólmur hefur staðið að markvissri kynningu á bænum sem áfangastað fyrir erlenda og innlenda ferðamenn. Jafnframt hefur bæjarfélagið átt í nánu samstarfi við nágrannasveitarfélögin þar sem lagst hefur verið á eitt í samþættri kynningarstarfsemi með áherslu á umhverfisþætti og sjálfbærni. Náin samvinna með sveitarfélögum og öðrum þjónustuaðilum á Snæfellsnesi og Vesturlandi styrkti umsóknina ennfremur verulega.

 

 

 

Lokaorð dómnefndar

Umsóknin endurspeglar þann metnað sem hefur ríkt í sveitarfélaginu á vegferðinni til sjálfbærrar þróunar. Dómnefnd var einróma um að áfangastaðurinn Stykkishólmur og sú uppbygging og endurnýjun sem þar hefur átt sér stað falli mjög vel að þema EDEN verðlaunanna að þessu sinni og sé því vel að tilnefningunni kominn. Vonast er til að verðlaunin styðji við markaðssetningu áfangastaðarins Stykkishólms. Dómnefndin óskar aðstandendum verkefnisins velfarnaðar í framtíðinni

 

Nánari upplýsingar um Stykkishólm og nágrenni 

Á næstunni
25. maí 2012
30. maí 2012
29. júní 2012
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré