24. janúar 2012
Á sunnudaginn var, 22. janúar, var nýja Klais pípuorgelið vígt í Stykkishólmskirkju við hátíðarmessu. Í messunni var flutt tónverk eftir einn fyrrverandi nemanda skólans, Hreiðar Inga Þorsteinsson tónskáld, en hann stjórnaði verkinu sjálfur. Þetta var tónverkið "Jómfrú Mariae dans".
Tónverkið er upphaflega samið fyrir blandaðan kór, barnakór, tvo einsöngvara og hljómsveit. Tónverkið var þarna frumflutt í nýjum búningi, en Hreiðar Ingi endurútsetti lagið í tilefni af vígslunni þar sem orgelið tók við hlutverki hljómsveitarinnar.
2. desember 2011
Nemendur og kennarar keppast nú við að undirbúa glæsilega jólatónleika, auk þátttöku í alls konar viðburðum vítt og breitt um bæinn og allt upp í Helgafell.
Nýlega sendi skólinn öllum nemendum og forráðamönnum "Fréttabréf Tónó" í tölvupósti. Þar koma fram ýmis skilaboð sem gott er að hafa í huga á þessum árstíma. Fréttabréfið má lesa HÉR.
Rétt er að minna á þá nýjung að dagana 12. og 13. des. (mánud. og þriðjud.) verða ÖÐRUVÍSI TÍMAR hjá okkur. Þá verða gerðar músiktilraunir í hóptímum. Nemendur fá boð um það hvenær þeim er ætlað að mæta.
Að lokum minnum við á að allir eru alltaf velkomnir á tónleika skólans.
25. nóvember 2011
Hausttónleikar lúðrasveitarinnar voru haldnir á Hótel Stykkishólmi í þetta sinn fimmtudaginn 17. nóvember. Litla Lúðró byrjaði reyndar daginn á því að heimsækja Leikskólann og sló alveg í gegn!
Á tónleikunum á hótelinu komu báðar sveitirnar fram og stóðu sig mjög vel. Þetta var í fyrsta sinn sem spilað var í nýjum vestum, fagurrauðum, eins og má sjá á myndinni. Skólatónleikar voru svo föstudaginn 18. nóvember, eins og venja er til. Þar slógu báðar sveitirnar í gegn aftur og enduðu glaðir tónleikagestir á að marsera út við dynjandi hljóðfæraslátt Stóru Lúðró.
Lesa má meira um lúðrasveitirnar og foreldrafélagið á svæði sveitarinnar hér til hliðar (sjá merki LS).
22. nóvember 2011
Nú er jólaundirbúningur kominn á fulla ferð í Tónó. Búið er að skipuleggja 5 hátíðlega tónleika, ýmist í sal skólans, Vatnasafni eða á Hótel Stykkishólmi og fullt af öðrum viðburðum þar sem nemendur skólans koma við sögu. Þar sem verið er að setja upp nýja orgelið verðum við ekki með tónleika í kirkjunni í þessari törn.
Tónleikarnir verða sem hér segir:
5. des. (mán) kl. 18:00 Jólatónleikar í sal skólans
6. des. (þri) kl. 18:00 Jólatónleikar í sal skólans
7. des. (mið) kl. 18:00 Jólatónleikar í Vatnasafni
8. des. (fim) kl. 20:00 Jólatónleikar í sal skólans - kvöldtónleikar
15. des. (fim) kl. 18:00 Hátíðartónleikar í Hótel Stykkishólmi
17. nóvember 2011
Hausttónleikar lúðrasveitanna verða að þessu sinni haldnir fimmtudaginn 17. nóvember (í dag) á Hótel Stykkishólmi og hefjast kl. 19:00.
Báðar sveitirnar leika spennandi og metnaðarfulla efnisskrá.
Við minnum á að það er enginn aðgangseyrir og að allir eru hjartanlega velkomnir.