Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
7. febrúar 2012 05:37

Fréttabréf febrúar

Nú hefur skólastjóri sent öllum nemendum og foreldrum fréttabréf febrúarmánaðar. Það greinir frá helstu viðburðum sem framundan eru í skólastarfinu. Fréttabréfið má líka lesa HÉR.

 

Rétt er að leggja sérstaka áherslu á tónfundina sem verða dagana 13.-20. febrúar og Dag tónlistarskólanna sem er laugardaginn 25. febrúar, en þá er skólinn að undirbúa þátttöku sína í NÓTUNNI 2012 og velja fulltrúa skólans þar.

 

Svæðistónleikar Nótunnar verða að þessu sinni á Akranesi laugardaginn 10. mars kl. 13:30 og þangað eru allir velkomnir. 

Meira...
24. janúar 2012 01:45

Jómfrú Mariae dans

Á sunnudaginn var, 22. janúar, var nýja Klais pípuorgelið vígt í Stykkishólmskirkju við hátíðarmessu.  Í messunni var flutt tónverk eftir einn fyrrverandi nemanda skólans, Hreiðar Inga Þorsteinsson tónskáld, en hann stjórnaði verkinu sjálfur. Þetta var tónverkið "Jómfrú Mariae dans".

 

Tónverkið er upphaflega samið fyrir blandaðan kór, barnakór, tvo einsöngvara og hljómsveit.  Tónverkið var þarna frumflutt í nýjum búningi, en Hreiðar Ingi endurútsetti lagið í tilefni af vígslunni þar sem orgelið tók við hlutverki hljómsveitarinnar.

Meira...
2. desember 2011 02:14

Tónlistarskólinn í desember

Nemendur og kennarar keppast nú við að undirbúa glæsilega jólatónleika, auk þátttöku í alls konar viðburðum vítt og breitt um bæinn og allt upp í Helgafell.

 

Nýlega sendi skólinn öllum nemendum og forráðamönnum "Fréttabréf Tónó" í tölvupósti. Þar koma fram ýmis skilaboð sem gott er að hafa í huga á þessum árstíma. Fréttabréfið má lesa HÉR.

 

Rétt er að minna á þá nýjung að dagana 12. og 13. des. (mánud. og þriðjud.) verða ÖÐRUVÍSI TÍMAR hjá okkur. Þá verða gerðar músiktilraunir í hóptímum. Nemendur fá boð um það hvenær þeim er ætlað að mæta.

 

Að lokum minnum við á að allir eru alltaf velkomnir á tónleika skólans. 

Meira...
25. nóvember 2011 11:36

Hausttónleikar lúðrasveitarinnar

Hausttónleikar lúðrasveitarinnar voru haldnir á Hótel Stykkishólmi í þetta sinn fimmtudaginn 17. nóvember. Litla Lúðró byrjaði reyndar daginn á því að heimsækja Leikskólann og sló alveg í gegn!

 

Á tónleikunum á hótelinu komu báðar sveitirnar fram og stóðu sig mjög vel. Þetta var í fyrsta sinn sem spilað var í nýjum vestum, fagurrauðum, eins og má sjá á myndinni. Skólatónleikar voru svo föstudaginn 18. nóvember, eins og venja er til. Þar slógu báðar sveitirnar í gegn aftur og enduðu glaðir tónleikagestir á að marsera út við dynjandi hljóðfæraslátt Stóru Lúðró.

 

Lesa má meira um lúðrasveitirnar og foreldrafélagið á svæði sveitarinnar hér til hliðar (sjá merki LS).

Meira...
22. nóvember 2011 10:25

Jólaundirbúningur í Tónlistarskólanum

Nú er jólaundirbúningur kominn á fulla ferð í Tónó. Búið er að skipuleggja 5 hátíðlega tónleika, ýmist í sal skólans, Vatnasafni eða á Hótel Stykkishólmi og fullt af öðrum viðburðum þar sem nemendur skólans koma við sögu. Þar sem verið er að setja upp nýja orgelið verðum við ekki með tónleika í kirkjunni í þessari törn.

 

Tónleikarnir verða sem hér segir:

5. des. (mán)  kl. 18:00 Jólatónleikar í sal skólans

6. des. (þri) kl. 18:00 Jólatónleikar í sal skólans

7. des. (mið) kl. 18:00 Jólatónleikar í Vatnasafni

8. des. (fim) kl. 20:00 Jólatónleikar í sal skólans - kvöldtónleikar

15. des. (fim) kl. 18:00 Hátíðartónleikar í Hótel Stykkishólmi 

Meira...
17. nóvember 2011 03:09

Tónleikar Lúðrasveitar Stykkishólms - á Hótel Stykkishólmi

Hausttónleikar lúðrasveitanna verða að þessu sinni haldnir fimmtudaginn 17. nóvember (í dag) á Hótel Stykkishólmi og hefjast kl. 19:00.

 

Báðar sveitirnar leika spennandi og metnaðarfulla efnisskrá.

 

Við minnum á að það er enginn aðgangseyrir og að allir eru hjartanlega velkomnir. 

Meira...
14. nóvember 2011 04:28

Góð ferð gítardeildar

Lárus Pétursson gítarkennari fór með lengst komnu gítarnemendur sína á gítartónleika í Salnum í Kópavogi í síðustu viku. Voru kapparnir mjög ánægðir með ferðina enda var þar á ferðinni einn virtasti gítarsnillingurinn í dag, Manuel Barrueco frá Kúbu. 

 

Barrueco er landsmönnum vel kunnur, en hann hefur nokkrum sinnum haldið tónleika á Íslandi, auk þess að bjóða upp á "masterclass"-námskeið fyrir lengra komna gítarnemendur.

Meira...
3. nóvember 2011 02:10

Tónfundir, tónleikar og fleira skemmtilegt í Tónó

Nú hafa allar deildir skólans lokið sínum árlegu hausttónfundum. Þar hafa áheyrendur fengið að heyra sitt lítið af hverju sem unnið hefur verið í haust. Eins og sjá má á þessari mynd er bara gaman!

 

Framundan er engin lognmolla, bíódagur, hausttónleikar lúðrasveitanna og svo styttist í blessuð jólin og jólatónlistina. Þetta verður allt saman auglýst betur síðar, en...

 

Mánudaginn 14. nóvember verður BÍÓDAGUR í tónlistarskólanum sem verður auglýstur betur síðar. Þá verður nemendum skólans boðið í bíó í salnum, enda starfsdagur í grunnskólanum.

Fimmtudaginn 17. nóvember verður Lúðrasveit Stykkishólms með árlega hausttónleika. Athugið að núna verða tónleikarnir í Hótel Stykkishólmi og hefjast kl. 19:00.

Meira...
1. nóvember 2011 11:41
25. október 2011 01:15
4. október 2011 04:51
27. september 2011 11:12
21. september 2011 11:37
2. september 2011 11:48
26. ágúst 2011 03:54
8. ágúst 2011 04:18
6. maí 2011 10:07
28. apríl 2011 12:30
27. apríl 2011 11:25
15. apríl 2011 05:31
8. apríl 2011 10:50
25. mars 2011 12:49
14. mars 2011 12:27
24. febrúar 2011 01:25
22. febrúar 2011 04:34
10. febrúar 2011 01:56
13. janúar 2011 02:11
15. desember 2010 03:31
7. desember 2010 10:32
26. nóvember 2010 10:36
16. nóvember 2010 02:44
11. nóvember 2010 11:30
10. nóvember 2010 11:08
1. nóvember 2010 11:30
21. október 2010 04:23
14. október 2010 11:35
15. september 2010 11:15
16. ágúst 2010 11:17
20. maí 2010 10:55
20. maí 2010 10:33
7. maí 2010 12:09
29. apríl 2010 10:21
Annað efni

Tónlistarskóli Stykkishólms - Kt. 620269-7009 - Skólastíg 11 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8140 - Fax 438 1713 - tonlistarskolinn@stykkisholmur.is