29. apríl 2010 10:21
Vortónleikar og skólaslit
Stutt er orðið í skólalok hér í tónlistarskólanum. Í fyrstu viku maí taka allir vorpróf eða stigspróf og í annarri viku maí eru svo hefðbundnir vortónleikar.
Skólaslit verða í kirkjunni 13. maí (á uppstigningardag) kl. 14:00.
Þangað mæta allir nemendur og taka á móti einkunnaspjöldum.
Kaffisala verður hjá ferðasjóði lúðrasveitarinnar eftir skólaslit.
Aðrir vortónleikar verða eftirtaldir:
- mánud. 10. maí kl. 18:00 - í sal skólans
- þriðjud. 11. maí kl. 18:00 - í sal skólans
- miðv. 12. maí kl. 18:00 - í sal skólans
- miðv. 12. maí kl. 20:00 - í kirkjunni (söngdeild)
Allir eru hjartanlega velkomnir á alla tónleikana og aðgangur er ókeypis.