7. maí 2010 12:09
Litla Lúðró á landsmót
Í morgun kl. 8:00 lagði Litla Lúðró af stað á landsmót. Mótið verður að þessu sinni haldið í Vestmannaeyjum. Siglt verður með Herjólfi frá Þorlákshöfn nú í hádeginu og komið til baka á sunnudagskvöldið.
Þetta mót átti upphaflega að vera í október en var þá frestað vegna veðurs. En nú er útlit fyrir gott veður allan tímann og við hlökkum til að heyra ferðasöguna.