Nú er skólaárinu 2009-2010 lokið. Því lauk með fernum vortónleikum daganan 10-12. maí, auk skólaslitanna sem fram fóru í kirkjunni á uppstigningardag 13. maí.
Á skólaslitum voru rifjuð upp nokkur af þeim fjölmörgu og fjölbreyttu verkefnum sem tekist var á við á skólaárinu:
- Námskeið í spuna fyrir eldri nemendur og kennara
- Tónfræðadagurinn mikli - með tónlistargetraunum o.fl.
- Dagur tónlistarskólanna með tónleikaröð og kaffisamsæti í kirkjunni
- NÓTAN - uppskeruhátíð tónlistarskólanna á landinu (Stykkishólmur, Hólmavík, Reykjavík)... o.fl.
Stigspróf á hljóðfæri/í söng:
1. stig tóku 7 nemendur
2. stig tóku 4 nemendur
Grunnpróf þreyttu 7 nemendur
Miðpróf þreyttu 2 nemendur
Stigspróf í tónfræðagreinum:
1. stig tóku 9 nemendur (þ.a. 2 á haustönn)
2. stig tóku 7 nemendur
3. stig tóku 2 nemendur og fullgiltu þar með Grunnprófið sitt
4. stig tóku 6 nemendur
Kennaramál:
Einn kennari lætur af störfum, Hafsteinn Sigurðsson, eftir áratuga störf við skólann. Honum var þakkað framlag hans við tónlistaruppeldi í bænum og færð bók að gjöf.
Martin Markvoll sem hefur verið í ársleyfi, hefur samið við Hjálmar Sigurbjörnsson að leysa sig af í 1 ár til viðbótan. Hann kemur því ekki til starfa aftur fyrr en haustið 2011.
Lúðrasveitin:
Lúðrasveitin hefur ekki lokið sínu starfsári, enda er hún að undirbúa tónleikaferð til Gautaborgar í Svíþjóð um mánaðamótin júní-júlí. Vortónleikar hennar verða í kirkjunni fimmtudaginn 10. júní.
Húsnæðismál:
Í vetur hefur verið undirbúin bygging nýs skólahúsnæðis fyrir tónlistarskólann í tengslum við stækkun grunnskólans. Ráðgert er að byggingarframkvæmdir hefjist í júní og að flutt verði í nýja húsið um áramótin 2011-2012. Hlökkum við til að halda upp á 50 ára afmæli skólans í nýju, sérhönnuðu húsi.