Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
24. janúar 2012 13:45

Jómfrú Mariae dans

Á sunnudaginn var, 22. janúar, var nýja Klais pípuorgelið vígt í Stykkishólmskirkju við hátíðarmessu.  Í messunni var flutt tónverk eftir einn fyrrverandi nemanda skólans, Hreiðar Inga Þorsteinsson tónskáld, en hann stjórnaði verkinu sjálfur. Þetta var tónverkið "Jómfrú Mariae dans".

 

Tónverkið er upphaflega samið fyrir blandaðan kór, barnakór, tvo einsöngvara og hljómsveit.  Tónverkið var þarna frumflutt í nýjum búningi, en Hreiðar Ingi endurútsetti lagið í tilefni af vígslunni þar sem orgelið tók við hlutverki hljómsveitarinnar.

 

Þar sem ekki er starfandi barnakór í bænum var gripið til þess ráðs að smala saman rúmlega 20 börnum úr 3.-7. bekk grunnskólans sem flest eru líka í tónlistarskólanum. Á rúmri viku lærðu þau og æfðu sitt hlutverk og stóðu sig afar vel.

 

Haft er fyrir satt að kirkjugestir hafi átt erfitt með að standast að klappa fyrir flytjendum og höfundi þarna inni í miðri messunni.

 

Annað efni

Tónlistarskóli Stykkishólms - Kt. 620269-7009 - Skólastíg 11 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8140 - Fax 438 1713 - tonlistarskolinn@stykkisholmur.is