Til ykkar sem eruð eða hafið verið í Lúðrasveit Stykkishólms síðustu ár.
Okkur vantar heilmikið af nótum og möppum sem okkur grunar að liggi hjá ykkur sumum úti í bæ. Biðjum við ykkur vinsamlegast að kíkja nú í hillur og vita hvort þið finnið hjá ykkur eitthvað af eftirtöldu:
- Svört lúðrasveitarmappa (A4) – með merki sveitarinnar
- Dökkblá lúðrasveitarmappa (A4) – með merki sveitarinnar
- Skrúðgöngumappa með svörtu plasti sem fest er á hljóðfærið
- Hvít jólalagabók (13 jólalög)
- Rauð jólalagabók (13 lög til jóla)
- Hvít bók (A5) með ættjarðarlögum (fremst er þjóðsöngurinn „Ó, Guð vors lands“)
- Græn bók sem heitir „The Goldman Band System“ (A5)
Ef þið finnið hjá ykkur eitthvað af þessu væri frábært að þið kæmuð því til okkar í tónlistarskólann sem allra fyrst.
Ef þið vitið um búninga eða hljóðfæri í eigu lúðrasveitarinnar er best að koma því hingað líka.
Martin og Jóhanna