Málmblásturskennsla
Málmblásturshljóðfærin eru: kornett, trompet, básúna, althorn, baritonhorn, franskt horn og túba, sem er stærst.
Kennsla fer fram í einkatímum, en nemendur taka þátt í lúðrasveit og öðru samspili strax og færni er næg.
Kennarinn sem kennir á öll málmblásturshljóðfærin heitir Hjálmar Sigurbjörnsson og stjórnar hann jafnframt lúðrasveitunum og Víkingasveitinni.