Söngdeild
Einsöngur hefur verið kenndur í skólanum frá 1994. Söngkennsla miðast við nemendur sem eru 16 ára eða eldri. Kennsla fer fram í einkatímum og eftir því sem nemendum fer fram fá þeir einnig undirleikstíma með píanista.
Nú í vetur er gerð tilraun með sérstaka unglingadeild söngdeildar fyrir nemendur 14-16 ára. Þar fer saman kennsla í hóp- og einkatímum.
Söngkennari skólans nú er Hólmfríður Friðjónsdóttir og meðleikarar á píanó eru László Petö og Hólmgeir S. Þórsteinsson.