Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi

Tréblásturshljóðfærin

 

Blokkflautan telst til tréblásturhljóðfæra.  Hún er oftast fyrsta hljóðfærið sem börn læra á.  Önnur hljóðfæri sem tilheyra tréblástursfjölskyldunni eru: þverflauta, klarinett, óbó, saxofónn og fagott. 

 

Sum þessara hljóðfæra eru til í ýmsum stærðum og afbrigðum, t.d. er til pínulítil þverflauta sem kallast piccoloflauta og líka er til bassaklarinett sem er talsvert stærra en venjulegt klarinett.

 

Í skólanum okkar hefur ekki verið kennt á óbó eða fagott, þó breyting geti orðið á því þar sem núverandi tréblásturskennari er óbóleikari. 

 

Allir blástursnemendur taka þátt í lúðrasveit og öðru samspili eftir því sem færni leyfir.

 

Gunnar Þorgeirsson kennir nú á tréblásturshljóðfærin.  Auk þess kennir hann byrjendum á blokkflautu.

Annað efni

Tónlistarskóli Stykkishólms - Kt. 620269-7009 - Skólastíg 11 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8140 - Fax 438 1713 - tonlistarskolinn@stykkisholmur.is