Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi

Nokkrar orðsendingar til foreldra

 

Námsskipan

Í Tónlistarskóla Stykkishólms er kennt á öll hefðbundi hljóðfæri nema strokhljóðfæri og einnig er kenndur söngur.  Námskrá skólans má nálgast á heimasíðunni sem og fleiri upplýsingar um skólastarfið og sögu skólans.

 

Nemendur fá einka spilatíma/söngtíma og svo hóptíma eftir því sem náminu miðar og kennarar telja hæfilegt.  Blokkflautukennsla fer þó yfirleitt fram í hóptímum. Tónfræðagreinar eru einnig kenndar og nemendum er úthlutað tímum í þeim eftir því sem náminu miðar.  Reynt er að láta tónfræðaáfangana haldast í hendur við það hvernig miðar í hljóðfæra- eða söngnáminu.

 

Söngkennsla er miðuð við nemendur eldri en sextán ára, en nú er sérstaklega komið til móts við áhugasama yngri nemendur með því að bjóða söngnám í sérstakri unglingadeild fyrir nemendur 14-16 ára.

 

Söngnemendur fá undirleikstíma eftir því sem þeim fer fram við námið.  Eins fá blástursnemendur sem komnir eru á miðstig eða lengra undirleikstíma þegar viðfangsefni þeirra krefjast þess. Nemendur á blásturshljóðfæri og slagverk (trommur) ganga til liðs við lúðrasveitina (litlu eða stóru eftir færni) og fá þar nauðsynlega viðbót við námið.  Þannig taka nemendur þátt í að skapa þann menningarbrag sem lúðrasveitin hefur sett á bæinn í áratugi.   

 

 

Foreldrar og tónlistarnám

Mikilvægt er að nemendur búi við jákvætt viðhorf til tónlistarnámsins, að foreldrar/forráðamenn sýni náminu áhuga og að þeir fylgist með framvindu þess.  Gott samband við foreldra er nauðsynlegt þar sem tónlistarnám byggist mikið á góðri heimavinnu. 

 

Ekki eru skipulögð sérstök foreldraviðtöl en foreldrar eru velkomnir að koma með börnum sínum í tíma.  Foreldrar og forráðamenn nemenda fylgi þeim að sjálfsögðu á tónfundi og tónleika. 

 

Hafi nemandi sjóngalla eða eigi við einhver veikindi eða önnur vandamál/erfiðleika að stríða sem áhrif geta haft á nám eða kennslu, er nauðsynlegt að skólastjóri og kennari séu upplýstir um slíkt svo réttilega sé á málum haldið. 

 

 

 Nokkrar skólareglur

1.     Nemendum ber að mæta stundvíslega í allar kennslustundir.

2.     Forföll / veikindi þarf að tilkynna með eins miklum fyrirvara og unnt er.  Þurfi kennari að fella niður tíma ber honum að bæta hann upp nema um veikindi sé að ræða og atvik í skólastarfinu, t.d. tónleika eða próf.

3.     Þegar nemendur koma fram á tónleikum er ætlast til að þeir séu snyrtilegir til fara.  Nemendur sýni hver öðrum tillitsemi með því að sitja hljóðir og hlusta.

4.     Séu nemendur beðnir um að flytja tónlist opinberlega er nauðsynlegt að það sé með vitund og samþykki viðkomandi kennara, sem fúslega mun aðstoða við undirbúning og val verkefna.

 

 

 

Hljóðfæri

Tónlistarskólinn á nokkur hljóðfæri til útleigu.  Þau eru fyrst og fremst ætluð fyrir þá sem eru að hefja nám og er miðað við að eftir 2 ára nám kaupi nemendur sér eigin hljóðfæri.  Stærri lúðrasveitarhljóðfæri eru þó leigð lengur ef óskað er.

 

Nemendur sem leigja hljóðfæri frá skólanum bera ábyrgð á þeim meðan þau eru í þeirra vörslu. Verði hljóðfæri fyrir óhappi í vörslu nemanda ber honum að sjá um kostnað við viðgerð á því.  Mikilvægt er að fara vel með hljóðfærin.

 

Píanónemendur þurfa að hafa aðgang að hljóðfæri heimafyrir.  Í byrjun er hægt að notast við hljómborð með nótum í réttri stærð, en skólinn mælist til þess að eftir 2ja ára nám fái píanónemendur píanó til að æfa sig á.  Gott rafpíanó dugar nemendum vel í grunn- og miðnámi.  Nauðsynlegt er að píanóin séu jafnan rétt stillt.

 

 

Innritun og skólagjöld

Innritun nemenda lýkur síðsumars.  Til að tryggja sér aðgang næsta skólaár skila eldri nemendur umsóknum að vori.

 

Skólaárið skiptist í tvær annir (haust og vor) og greiðast skólagjöld í tvennu lagi eftir því.  Þegar nemandi hefur fengið inngöngu í tónlistarskólann er litið svo á að hann ætli að stunda námið til vors.  Greiðir hann skólagjöld samkvæmt því þó hann hætti námi fyrr.

 

Skólagjöld eru innheimt með útsendum greiðsluseðlum.  Hægt er að hafa samband við starfsfólk Stykkishólmsbæjar í Ráðhúsinu og semja t.d. um Visa boðgreiðslur.

 

Vilji nemendur einhverra hluta vegna breyta námshlutfallinu eða hætta námi eftir haustönn (um áramót) verða þeir að tilkynna skólastjóra það eigi síðar en 15. desember

 

 

 Námskröfur

Tónlistarskólinn gerir kröfur um ástundun (tímasókn og heimavinnu), en kröfur um námsárangur miðast við getu og hæfileika hvers og eins. 

 

Gott er að hafa í huga að „æfingin skapar meistarann“ og betra er að æfa stutta stund í einu á hverjum degi en að æfa lengi og sjaldan.

 

 

Tónleikar og tónfundir

Gert er ráð fyrir að flestir nemendur komi fram  á tónfundum og tónleikum u.þ.b. 4 sinnum á vetri, tvisvar sinnum á hvorri önn (haust og vor).  Að auki taka nemendur skólans þátt í ýmsumviðburðum í samráði við kennara sína og skólann og koma fram við ýmis önnur tækifæri, s.s. guðsþjónustur, aðventustundir o.fl.   

 

Þegar nemandi er beðinn að spila við ýmis tækifæri utan skólans, s.s. í afmælum og fjölskylduboðum er æskilegt að viðkomandi kennari sé með í ráðum (sbr. skólareglu nr. 4). Oft hafa komið upp klaufaleg tilvik þar sem reynt hefur verið að láta óskyld hljóðfæri spila saman án þess að það hafi verið undirbúið í skólanum, en það er ekki sama hvernig hljóðfæri eru valin saman.  Því er mælst til þess að kennarar fái að aðstoða nemendur við að velja og undirbúa viðfangsefni í þessum tilfellum.

 

Nemendur eru hvattir til að sækja almenna tónleika.  Mælst er til þess að þeir sæki a.m.k. tvenna tónleika utan skólans á hverjum vetri.

 

Nokkrar dagsetningar úr skóladagatali 2011-2012

  28. sept.. - 3. okt.     Starfsdagar og VETRARFRÍ (sbr. grunnskóli)  – Engin kennsla

                   7. okt.     Svæðisþing tónlistarskóla. Engin kennsla

    24. - 28. október     Haust-tónfundir (sjá nánari auglýsingar)

             5. - 9. des.     Jólatónleikar (nánar auglýstir síðar)

     19. des. - 2. jan.     JÓLAFRÍ

               3. janúar      Fyrsti kennsludagur eftir jólafrí

                  25. feb.     DAGUR TÓNLISTARSKÓLANNA - uppskeruhátíð skólans

               10. mars      NÓTAN, uppskeruhátíð tónlistarskólanna á Vesturlandi

              18. mars       NÓTAN, lokahátíð í Eldborg, stærsta sal Hörpu

   3. mars - 9. apríl      PÁSKAFRÍ

               19. apríl       Sumardagurinn fyrsti - engin kennsla

               20. apríl       FRÍDAGUR   

                  1. maí       Verkalýðsdagurinn - engin kennsla

              2.-4. maí       Vorpróf – spilapróf

             7.-11. maí      Vortónleikar

         14. - 16. maí      Vorheimsóknir og tónleikar

                17. maí       Lokatónleikar og skólaslit (uppstigningardagur)

 

(Athugið að þessar dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar)

 

 

Annað efni

Tónlistarskóli Stykkishólms - Kt. 620269-7009 - Skólastíg 11 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8140 - Fax 438 1713 - tonlistarskolinn@stykkisholmur.is