Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi

Próf

 

Stigspróf og áfangapróf

Nemendur taka stigspróf og áfangapróf eftir því sem náminu fer fram.  Áfangapróf (grunnpróf, miðpróf og framhaldspróf) eru samræmd á landsvísu og fara fram á vegum Prófanefndar tónlistarskólanna.  Þess á milli taka nemendur "heimapróf".

 

Yfirleitt eru prófin tekin í þessari röð: G-1 (1. stig), G-2 (2. stig), grunnpróf, M-4 (4. stig), miðpróf, F-6 (6. stig) og framhaldspróf.  Tíminn á milli prófa er mislangur, fer algerlega eftir framförum í námi.

 

Tónfræðapróf eru yfirleitt tekin "heima", nema miðpróf sem er samræmt og tekið á vegum Prófanefndar tónlistarskólanna.

 

Stigspróf og áfangapróf má taka hvenær sem er á starfsárinu, þ.e. þegar kennarinn telur nemandann tilbúinn.  Þau eru þó yfirleitt tekin á vorin eða í lok haustannar.

 

Vorpróf - árseinkunnir

Á vorin taka allir nemendur "vorpróf" á hljóðfærin sín.  Einnig er nemendum gefnar árseinkunnir.  Þeir nemendur sem hafa tekið stigspróf eða áfangapróf að vori taka ekki vorpróf, en fá árseinkunn kennara eins og aðrir.

 

Annað efni

Tónlistarskóli Stykkishólms - Kt. 620269-7009 - Skólastíg 11 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8140 - Fax 438 1713 - tonlistarskolinn@stykkisholmur.is