Starfsáætlun skólaársins 2011-2012
Gagn og gaman
Framundan er metnaðarfullt skólaár með blandi af gagni og gamni, eins og vera ber. Nemendur leggja fljótlega línur með kennurum sínum og gera áætlun um hvert skal stefna og hvaða verkefnum skuli sinnt.
Tónfræði
Fljótlega í september fara af stað tónfræðihópar. Reynt verður að uppfylla þarfir og óskir nemenda um framgang í þeim greinum.
Eitt af því sem stefnt er að, er að koma á fót hóp fyrir þá sem geta hugsað sér að taka t.d. grunnstigið á "hraðferð". Er þá einkum verið að hugsa til fullorðinna nemenda.
Samspil
Áformað er að auka fjölbreytni í samspili í smáum og stórum hópum. Eftir færni geta nemendur tekið þátt í ýmum hópum sem munu spreyta sig á ýmsum stíltegundum, svo sem spuna, salsa, barokk o.fl. Lúðrasveitin mun að sjálfsögðu halda sínu striki og æfa, en þó verða nýjungar reyndar í þeim hópi líka.
Tónleikar
Hefðbundið tónleikahald verður með tónfundum einstakra kennara í október, jólatónleikum í desember og svo vortónleikum. "Dagur tónlistarskólanna", sem jafnan er síðasti laugardagur í febrúar verður haldinn hátíðlegur með tónleikahaldi. Nánar verður skýrt frá hvernig okkar aðkoma verður útfærð.
Í mars tökum við þátt í NÓTUNNI, uppskeruhátíð tónlistarskólanna á landinu. Ekki hefur enn verið ákveðið hvar hátíð Vesturlands og Vestfjarða verður haldin að þessu sinni en líkleg dagsetningin hefur verið ákveðin laugardaginn 10. mars. Lokahátíðin verður haldin í stærsta sal Hörpu, Eldborg sunnudaginn 18. mars og aldrei að vita hvort nemandi eða nemendur héðan verði aftur fulltrúar okkar landsvæðis.
Próf
Hefðbundin vorpróf verða í byrjun maí en áfangapróf verða öðru hvoru megin við páska. Þeir sem stefna á áfangapróf (grunnpróf, miðpróf, framhaldspróf) gera um það áætlun sem fyrst með kennara sínum og nánari dagsetning prófsins verður auglýst þegar nær dregur.